Viðskipti innlent

Hörður og Ólöf leiða nýjan viðskiptamiðil á Vísi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Ólöf, Hörður og Þorsteinn Friðrik.
Ólöf, Hörður og Þorsteinn Friðrik.

Nýr miðill sem sérhæfir sig einkum í fréttum um íslenskt viðskiptalíf og efnahagsmál hefur göngu sína á Vísi á næstunni. Fyrir miðlinum fara þau Hörður Ægisson og Ólöf Skaftadóttir en auk þeirra kemur til starfa viðskiptablaðamaðurinn Þorsteinn Friðrik Halldórsson. Um verður að ræða fréttamiðil í áskrift.

Öll þrjú hafa víðtæka reynslu úr fjölmiðlum. Hörður sem ritstjóri Markaðarins á Fréttablaðinu og þar áður viðskiptaritstjóri DV og viðskiptablaðamaður á Morgunblaðinu.

„Við erum mjög ánægð að fá þau Hörð, Ólöfu og Þorstein til liðs við okkur. Þau eru fantagóðir blaðamenn sem munu lyfta upp umfjöllun um viðskipti í miðlum okkar. Vísir hefur vaxið jafnt og þétt og þessi ákvörðun er hluti af þeirri vegferð að efla hann enn frekar,“ segir Þórhallur Gunnarsson framkvæmdastjóri fjölmiðla Stöðvar 2 og Vodafone.

Fremstur í flokki

Hörður segist fullur tilhlökkunar að móta áskriftarmiðil undir hatti Vísis og fjölmiðla Stöðvar 2 og Vodafone.

„Miðillinn ætlar sér að vera fremstur í flokki þegar kemur að umfjöllun um íslenskt viðskiptalíf og skapa þannig virði fyrir lesendur sem ekki verður fundið með sama hætti á öðrum miðlum hérlendis. Leitast verður við að færa umgjörð fréttaflutnings um viðskipti, efnahagsmál og stjórnmál nær því sem þekkist á faglegum viðskiptamiðlum í helstu nágrannaríkjum,“ segir Hörður.

Ólöf er fyrrverandi ritstjóri Fréttablaðsins og blaðamaður um árabil en hún hefur að undanförnu gegnt starfi samskiptastjóra Samtaka atvinnulífsins. Þorsteinn Friðrik hefur starfað bæði á Fréttablaðinu og á Morgunblaðinu síðustu ár.

„Vísir er nú þegar mest lesni vefur landsins og hluti af öflugri fjölmiðlaflóru Stöðvar 2 og Vodafone. Okkar nýi miðill mun leggja áherslu á fréttir af viðskiptum, ásamt stjórnmálum innanlands, og auka enn frekar þjónustu við lesendur Vísis og annarra miðla fyrirtækisins. Við hlökkum til að takast á við krefjandi verkefni og móta nýja miðilinn sem sækir fyrirmynd sína meðal annars til Norðurlanda og Bretlands,“ segir Ólöf.

Nýr kafli í sögu Vísis

Tæplega 200 þúsund manns heimsækja Vísi á degi hverjum og sækja sér fréttir og afþreyingu af ýmsum toga. Nýr viðskiptamiðill verður viðbót við þá flóru.

„Við erum spennt fyrir því að hefja nýjan kafla í sögu Vísis þar sem vandaðar viðskiptafréttir í fremstu röð verða í boði fyrir áskrifendur. Þetta er þróun sem hefur rutt sér til rúms meðal fréttamiðla víða um heim síðustu ár og virðist komin til að vera. Við höfum fulla trú á því að lesendur muni taka þátt í þessu ferðalagi með okkur,“ segir Tinni Sveinsson, ritstjóri Vísis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×