Viðskipti innlent

Fjögur ráðin til KPMG sem ráð­gjafar

Atli Ísleifsson skrifar
Anna-Bryndís Zingsheim Rúnudóttir, Ingvar Ágúst Ingvarsson,Björg Ýr Jóhannsdóttir og Helena Júlía Kristinsdóttir.
Anna-Bryndís Zingsheim Rúnudóttir, Ingvar Ágúst Ingvarsson,Björg Ýr Jóhannsdóttir og Helena Júlía Kristinsdóttir. KPMG

Anna-Bryndís Zingsheim Rúnudóttir, Björg Ýr Jóhannsdóttir, Helena Júlía Kristinsdóttir og Ingvar Ágúst Ingvarsson hafa verið ráðin sem ráðgjafar á ráðgjafasviði KPMG.

Í tilkynningu frá KPMG segir að á ráðgjafarsviði fyrirtækisins starfi um 45 ráðgjafar sem veiti fyrirtækjum, stofnunum og sveitarfélögum ráðgjöf á sviði fjármála, rekstrar, áhættu- og upplýsingatækni. 

Anna-Bryndís Zingsheim Rúnudóttir

Anna-Bryndís mun starfa í rekstrarráðgjöf KPMG. Hún lauk námi við King‘s College London í hagfræði og stjórnun með áherslu á umhverfisfræði í vor. Anna-Bryndís stundaði auk þess nám við The University of Hong Kong þar sem hún vann m.a. við mat á umhverfis- og félagslegum áhrifum af starfsemi fyrirtækja í Suð-Austur Asíu.

Anna-Bryndís hefur unnið á fjármála- og viðskiptabankasviði Arion banka þar sem hún vann við erlend viðskipti og uppgjör sjóða og tengdra félaga. Þá kom hún að stofnun sprotafyrirtækis í samvinnu við King‘s College London.

Björg Ýr Jóhannsdóttir

Björg Ýr hefur hafið störf á ráðgjafarsviði í innri endurskoðun og áhættustjórnun. Hún hefur starfað við innri endurskoðun og tölvuendurskoðun frá árinu 2012 mest innan fjármálafyrirtækja. Hún vann einnig um tíma í Bandaríkjunum hjá Eaton Vance fjárfestingarfélaginu og T-Mobile símafyrirtækinu og núna síðast hjá Borgun/Saltpay.

Björg Ýr er með B.Sc. gráðu í Tölvunarfræði frá HÍ og M.ACC gráðu frá HR. Þá hefur hún lokið alþjóðlegum faggildingum í tölvuendurskoðun og áhættumati í rekstri tölvukerfa.

Helena Júlía Kristinsdóttir

Helena hefur verið ráðin á ráðgjafarsvið í innri endurskoðun og áhættustjórnun KPMG. Hún var í vor í starfsnámi á ráðgjafarsviði KPMG og lauk B.Sc. námi í fjármálaverkfræði við Háskólann í Reykjavík nú í vor. Helena hefur unnið í bókhaldsdeild Norðuráls þar sem hún vann við færslur, afstemmingar og uppgjör.

Ingvar Ágúst Ingvarsson

Ingvar Ágúst mun sérhæfa sig í Microsoft 365 ráðgjöf og hagnýtingu Microsoft lausna og þjónustu. Hann hefur verkefnastýrt fjölda Microsoft innleiðingarverkefna fyrir fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög á Íslandi og haldið fjölda vinnustofa í tengslum við innleiðingar.

Ingvar Ágúst starfaði áður sem ráðgjafi og sviðsstjóri viðskiptaþróunar- og ráðgjafar hjá Þekkingu og hefur auk þess unnið hjá Microsoft Íslandi, Háskóla Íslands, Kennaraháskóla Íslands, Skýrr og Íslenska menntanetinu.

Ingvar Ágúst er með B.Ed.-gráðu í kennslufræðum frá Kennaraháskóla Íslands og hefur auk þess lokið IPMA vottun í verkefnastjórnun,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×