Fótbolti

Barcelona reynir að losa sig við Coutinho

Smári Jökull Jónsson skrifar
Coutinho gæti verið að leið til Ítalíu
Coutinho gæti verið að leið til Ítalíu Urbanandsport/NurPhoto

Brasilíumaðurinn Coutinho gæti verið á leið frá Barcelona en félagið er sagt vilja losa sig við leikmanninn til að skera niður launakostnað hjá félaginu.

Samkvæmt frétt Daily mail er ítalska liðið Lazio mjög áhugasamt um að tryggja sér þjónustu Coutinho sem fær 200.000 pund á viku í laun hjá Barcelona. Ítalska liðið vill fá hann lánaðan á komandi tímabili með möguleika á að kaupa hann á 25 milljónir punda að ári liðnu. 

Barcelona er sagt tilbúið að borga helming launa Coutinho á móti Lazio en eins og komið hefur fram í fréttum að undanförnu á félagið í miklum fjárhagsvandræðum.

Samkvæmt frétt Daily Mail er búið að úthluta treyju númer 14 hjá Barcelona til hins unga Rey Manaj sem var færður í aðallið félagsins fyrir þetta tímabil. Coutinho hefur hingað til leikið í treyju númer 14 á ferli sínum hjá Barcelona.

Hvað Coutinho sjálfur vill er óljóst. Lazio, sem verður undir stjórn Maurizio Sarri í vetur, leikur í Evrópudeildinni en Coutinho vill leika í Meistaradeildinni.  Hann var á láni hjá Bayern tímabilið 2019-20 og hefur ekki náð sér á strik með Barcelona síðan hann gekk til liðs við félagið frá Liverpool í janúar 2018.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×