Viðskipti innlent

Egill tekur við af Sveini Inga hjá Verkís

Atli Ísleifsson skrifar
Egill Viðarsson.
Egill Viðarsson. Verkís

Egill Viðarsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri hjá Verkís hf. Hann tók við starfinu í upphafi mánaðar. 

Í tilkynningu frá Verkís segir að Egill taki við starfinu af Sveini Inga Ólafssyni sem hafði gegnt stöðu framkvæmdastjóra frá árinu 2008. 

„Sveinn óskaði fyrr á þessu ári eftir því að láta af störfum sem framkvæmdastjóri en mun áfram sinna öðrum störfum innan fyrirtækisins.

Egill hefur verið sviðsstjóri Samgöngu- og umhverfissviðs hjá Verkís frá árinu 2015 og árin 2013-2014 var hann viðskiptastjóri. Árin 1998 – 2013 starfaði hann hjá Almennu verkfræðistofunni hf, sem síðar varð að Verkís, og var þar meðeigandi, aðstoðarframkvæmdastjóri, starfandi framkvæmdastjóri, sviðsstjóri bygginga- og iðnaðarsviðs og sviðsstjóri markaðs- og þróunarsviðs,“ segir í tilkynningunni. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×