Innlent

Fjölskylda Johns Snorra þakkar hlýhug

Árni Sæberg skrifar
Þremenningarnir Juan Pablo Mohr (t.v.), Ali Sadpara (f.m.) og John Snorri Sigurjónsson (t.h.) fórust á leið upp á topp K2 í febrúar.
Þremenningarnir Juan Pablo Mohr (t.v.), Ali Sadpara (f.m.) og John Snorri Sigurjónsson (t.h.) fórust á leið upp á topp K2 í febrúar. Vísir

Fjölskylda Johns Snorra segir að ákveðinni óvissu hafi nú verið eytt um afdrif þeirra Johns Snorra Sigurjónssonar, Muhammad Ali Sadpara og Juan Pablo Mohr á fjallinu K2 þann fimmta febrúar síðastliðinn. Leitin að þeim hefur nú borið árangur þar sem líkamsleifar þeirra fundust í gær.

„Fjölskylda Johns vill þakka fyrir þann hlýhug, stuðning og umhyggju sem okkur hefur verið sýnd undanfarna mánuði og við viljum ítreka innilegar þakkir okkar til allra sem hafa tekið þátt í leitinni að þeim John Snorra, Ali og J Pablo,“ segir Lína Móey, ekkja Johns Snorra, í fréttatilkynningu sem barst í morgun.

Í tilkynningunni segir að það sé alfarið á hendi pakistanskra yfirvalda að ákveða hvort reynt verður að ná líkamsleifum þeirra niður af fjallinu, en aðstæður á K2 eru mjög erfiðar. 

Það sé mikilvægt að öryggi þeirra aðila sem tækju þátt í slíkum aðgerðum verði tryggt ef tekin verður ákvörðun um að flytja þá niður í grunnbúðir.

Samkvæmt upplýsingum frá Elia Saikaly, sem er á K2, er staðsetning Johns og Ali fyrir ofan hinn svokallaða flöskuháls á K2, á meðan staðsetning Juan er mun nærri búðum 4. Miðað við aðstæður eru sterkar vísbendingar um að þeir hafi verið á leið niður af toppi fjallsins þegar þeir létust.

Persónulegir munir, myndavélar og annar tækjabúnaður sem þeir höfðu meðferðis mun líklega varpa betra ljósi á það sem gerðist þennan afdrifaríka dag og meðal annars svara þeirri spurningu hvort þeir hafi náð toppnum á K2. Stjórn þeirrar rannsóknar verður einnig á hendi pakistanskra yfirvalda og munu allar upplýsingar um niðurstöður koma frá þeim.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×