Innlent

Björgunarskip Lands­bjargar kemur fót­brotinni konu til bjargar

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Göngukonan slasaðist á Hornvík á Hornströndum.
Göngukonan slasaðist á Hornvík á Hornströndum. Vísir/Vilhelm

Björgunarskip Landsbjargar er nú á leið frá Ísafirði til Hornvíkur á Hornströndum. Landsbjörg tilkynnti fyrir stuttu að göngukona hefði hrasað og sé talin fótbrotin.

Í tilkynningu frá Landsbjörg segir að fleiri björgunarmenn séu um borð í skipinu en vant er, þar sem bera þurfi konuna talsverða vegalengd úr fjalllendi að skipinu.

Reikna má með því að verkefnið muni taka þó nokkurn tíma og að skipið muni ekki koma aftur Ísafjarðar fyrr en seint í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×