Atvinnulíf

Fimm bækur á lestrarlista Bill Gates í sumar

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Bill Gates mælir með fimm bókum til að lesa í sumar.
Bill Gates mælir með fimm bókum til að lesa í sumar. Vísir/Getty

Eflaust teljast hjónaskilnaðarfréttir Bill Gates til mun vinsælli frétta en bókaáhugi Gates. Gates birtir þó reglulega bókalista á bloggsíðunni sinni, með bókum sem hann mælir sérstaklega með. 

Eins og núna, fyrir sumarið 2021.

Síðastliðinn mánudag birti Gates lista yfir fimm bækur sem hann mælir með fyrir þetta sumar. 

Þessar bækur eru:

1. Bók fyrir þá sem hafa áhuga á stjórnun

Þessi bók heitir Lights Out: Pride, Delusion, and the Fall of General Electric eftir Thomas Gryta og Ted Mann.

Gates segist lengi hafa velt því fyrir sér hvernig fyrirtæki sem ná miklum árangri og verða mjög stór, geta samt endað í þroti. 

Að mati Gates gaf sagan um General Electric honum loksins svör og skýringar við þessum vangaveltum sínum.

2. Vangaveltur um umhverfið og framtíðina

Hér mælir Gates með bók eftir höfund sem hann heldur mikið upp á, Elizabeth Kolbert. Bókin heitir Under a White Sky: The Nature of the Future og fjallar um það hvernig maðurinn er með stanslaus og óæskileg inngrip í náttúruna.

Gates viðurkennir að áhuginn hans á umhverfismálum fer vaxandi, sem aftur þýðir að æ fleiri bækur um málefnið rata á bókalistana hans.

3. Ævisaga

Gates segist alltaf hafa haft áhuga á forsetum Bandaríkjanna og mælir með ævisögu Barack Obama, fyrrverandi Bandaríkjaforseta: A Promised Land.

Gates heillaðist sérstaklega af einlægni og hreinskilni Obama þegar hann segir frá forsetatíð sinni.

4. Óvenjuleg bók

Ein óvenjulegasta bókin sem Bill hefur lesið í mörg ár heitir The Overstory, eftir Richard Powers. Hún kemst þó á bókalistann fyrir sumarið en í þessari sögu er rakin saga níu einstaklinga og sambandi þeirra við tré.

Já, tré.

Gates segir bókina öfgakennda leið til að benda á mikilvægi þess að vernda skóga. Honum fannst þó saga einstaklinganna níu sem þarna er skrifað um, vera áhugaverð.

5. Um ónæmiskerfið, skrifað fyrir tíma Covid

Loks mælir Gates með bókinni An Elegant Defense: The Extraordinary New Science of the Immune System: A Tal ein Four Lives, eftir Matt Richtel.

Bókin fjallar um ónæmiskerfi líkamans og að mati Gates, skýrir hún vel út hvað þarf til að stöðva heimsfaraldur eins og Covid. Bókin var þó skrifuð áður en heimsfaraldurinn brast á.

Nánar má lesa um bókalista Gates og umsagnir hans HÉR.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×