„Alltaf hægt að sjá tækifæri og fleira gott í stöðunni“ Rakel Sveinsdóttir skrifar 31. janúar 2025 07:01 Þóra Rut Jónsdóttir, forstöðumaður sjálfbærni og umbóta hjá Advania á Íslandi, telur risastór viðskiptatækifæri felast í þeim breytingum sem sjálfbærnivegferð fyrirtækja felur í sér. Hugarfarið þurfi þó að vera rétt; jákvætt frekar en að líta á hlutina sem íþyngjandi eða kostnaðarsama. Vísir/Vilhelm „Það sem mér finnst áhugaverðast þegar ég horfi til baka eru tækifærin sem liggja í þessu. Advania er til dæmis að kynna nýja lausn sem gerir fyrirtækjum kleift að halda utan um umhverfisáhrif með því að nýta gögn úr rafrænum reikningum. Lausnin auðveldar ferlið og þá nýtist það eins og mælitæki á árangurinn,“ segir Þóra Rut Jónsdóttir, forstöðumaður sjálfbærni og umbóta hjá Advania á Íslandi.
Sem þó viðurkennir að hafa alveg orðið vör við ákveðna neikvæðni í garð sjálfbærnimálanna undanfarið; eða þreytu. „Umræðan einkennist svolítið af því hvað þessi mál eru íþyngjandi fyrir fyrirtæki og mikill kostnaður. Að mínu mati liggja þó mikil viðskiptatækifæri í þeim breytingum sem við erum að fara í gegnum núna,“ segir Þóra og bætir við: „Ég tel að ef við myndum opna augun meira fyrir málaflokknum með jákvæðu hugarfari kæmi í ljós að þessi viðskiptatækifæri eru hreinlega risastór.“ Í tilefni Janúarráðstefnu Festu, fjallar Atvinnulífið um sjálfbærnimálin í gær og í dag. Málaflokkur sem stækkar og stækkar Janúarráðstefna Festu hefst klukkan 12.30 í Hörpu í dag, en frá árinu 2017 hefur þessi ráðstefna verið stærsti viðburður atvinnulífsins um sjálfbærni. Dagskrá ráðstefnunnar má sjá hér. Þóra er viðskiptafræðingur að mennt, með meistaragráðu í viðskiptaþróun og nýsköpun frá Copenhagen Business School, með áherslu á sjálfbærni. Þóra er ein þeirra sem heldur erindi í dag, en hún hefur starfað í sjálfbærnimálunum hjá Advania síðastliðin fimm ár. Sem í þessum málaflokki telst ágætis starfsaldur. „Umræðan var meira um samfélagslega ábyrgð fyrir nokkrum árum síðan, síðan tók sjálfbærnin meira við,“ segir Þóra þegar hún rifjar upp fyrstu misserin í sínu starfi. „Þá vorum við meira að vinna í málum eins og merkingar á salernum, jafnréttismálunum styrkjamálum fyrir góðgerðasamtök, flokkuninni hér innanhús, einstaka veffundum og fleira sem telst samfélagslega ábyrgt fyrir rekstur að gera,“ segir Þóra og bætir við: „Sem við auðvitað vinnum að enn. Jafnréttismálin eru til dæmis alltaf ofarlega og enn vantar fleiri konur í tækni.“ Heilt yfir, er málaflokkurinn þó orðinn mun stærri og víðfeðmari en áður. „Það bætist eitthvað við á hverju ári. Kröfurnar eru orðnar meiri en áður. Ekki aðeins frá viðskiptavinum heldur líka eigendum fyrirtækja. Lagalegar skyldur eru orðnar meiri en áður og gagnasöfnunin fyrir sjálfbærniskýrslurnar hefur orðið stærri og meiri.“ En talandi um sjálfbærniskýrslurnar; Eru þær ekki gott dæmi um hvernig mikil vinna fer í skýrslugerð sem fólk eðlilega veltir síðan fyrir sér hvort séu að breyta einhverju? „Já ég hef oft hugsað þetta sjálf. Hvort það sé virkilega einhver sem les þetta,“ segir Þóra og hlær. En þessu fylgir samt margt jákvætt. Vinnan á bakvið þetta hefur vissulega aukist mikið en hún er líka orðin faglegri en áður. Evrópusambandið er síðan alltaf meira og meira að færa okkur inn í sama mótið, sem þýðir að upplýsingar um sjálfbærni fyrirtækja eru að verða meira samanburðarhæfar; ólíkt því sem áður var þegar allir voru að gera hlutina bara einhvern veginn.“ Allt sé þetta þó að endurspegla hvernig sjálfbærnin sé hluti af vegferð. Þar sem enn er verið að ákveða og móta reglurnar. „Á þessu ári munu til dæmis fjárhagslegu upplýsingarnar okkar og sjálfbærniskýrslan sameinast í eina skýrslu. Það er visst skref. Í framtíðinni er síðan óráðið hvernig þetta verður nákvæmlega. Hver veit nema að eftir fimm ár þurfi fyrirtæki bara að fylla út einfalt form af skýrslu eða markaðsdeildin að útbúa eitthvað fræðslumyndband?“ Sjálfbærniskýrslurnar eru dæmi um verkefni sem hefur orðið stærra og viðameira, en á næsta ári verður fjárhagsleg skýrsla og sjálfbærniskýrsla Advania sameinaðar. Þóra segir allt vera enn í mótun, eitt það góða sé þó að með innleiðingu breytinga ESB séu upplýsingar fyrirtækja nú orðnar samanburðarhæfar.Vísir/Vilhelm Spennandi samstarf Megináhersla ráðstefnunnar í ár er virðiskeðjan. Því tengt, ætlar Þóra að segja frá samtökum sem Advania eru meðlimir í og heita Responsible Business Alliance (RBA). Samtökin voru stofnuð árið 2004 og þá af raftækjaframleiðendum. Í dag teljast meðlimir hins vegar um 600 talsins, mörg hver í upplýsingatæknigeiranum en eins hafa aðrir bæst við. Til dæmis leikfangaframleiðendur. Að sögn Þóru, voru flestir stærstu birgjar Advania þegar í samtökunum. Og útskýringin er þessi: „Sem upplýsingatæknifyrirtæki tengist vinnan okkar í virðiskeðjunni mikið þeim viðskiptasamböndum sem við eigum við aðila sem við seljum lausnir frá. Birgjarnir okkar eru oft stór fyrirtæki og þau eru einfaldlega svo stór að þetta eru ekki aðilar sem maður kallar auðveldlega eftir viðbótarupplýsingum um hvernig fyrirtækin ætli sér að vinna að þessum ferlunum eða hinum.“ Sem þó skiptir verulega miklu máli, því það er komin meiri krafa á fyrirtæki að þekkja hvernig þeirra birgjar eru að standa sig í ýmsum málaflokkum. Sem dæmi er hætta á að mannréttindi og aðbúnaður starfsfólks séu ekki virt í ákveðnum framleiðslulöndum. Að þessu sögðu, segir Þóra að síðustu árin hafi þó margt breyst. Augljóst er að margir af stóru birgjunum eru farnir að leggja mikið í sjálfbærnimálin og að þeim starfa víðast hvar fjölmennur hópur fólks og mikið af upplýsingum eru nú aðgengilegar. „En ef við viljum fara eitthvað á dýptina, auðveldar það okkur að vera aðili að RBA því þannig fáum við einfaldlega meiri upplýsingar. Í gegnum RBA framkvæmum við áhættumat á okkar stærstu birgjum.“ Þá sé enn einn ávinningurinn fyrir Advania; þjónustan sjálf. „RBA er með aðsetur víða og þá sérstaklega á þeim stöðum þar sem mikið af fyrirtækjum í upplýsingatæknigeiranum eru að láta framleiða fyrir sig. Ef að niðurstöður úr áhættumati benda til þess að einhver birgi sé ekki að standa sig nægilega vel, getum við beðið RBA að framkvæma úttekt fyrir okkar hönd.“ segir Þóra og bætir við: „Það er mikill styrkur enda ættum við erfitt með að framkvæma slíka úttekt sjálf“ Á Janúarráðstefnu Festu í dag mun Þóra meðal annars segja frá því í hverju það felst fyrir Advania að vera gengin í samtökin Responsible Business Alliance (RBA). Þóra hvetur fólk til að vera duglegt að leita ráða og aðstoðar hjá öðrum, hér heima sem erlendis. Ekki sé þörf á því að neinn sé að reyna að finna hjólið upp á nýtt.Vísir/Vilhelm Að kveikja á fleiri ljósaperum Þóra segir margt spennandi í gangi í heimi upplýsingatækninnar sem augljóslega endurspeglar breyttar áherslur. „Það eru til dæmis margir að hugsa um hringrásarhagkerfið,“ segir Þóra og nefnir dæmi: Framleiðendur eru að vinna í því að lengja líftíma á tölvum og búnaði. Og síðan eru aðilar eins og við, sem erum að leggja meiri áherslu á viðhalds- og viðgerðarþjónustu. Eða að hjálpa viðskiptavinum að viðhalda tölvum og búnaði til að halda öllu í notkun lengur.“ Heilt yfir, séu málin þó enn í farvegi. „Ég tel okkur enn vera á ákveðnu fræðslustigi. Sem þýðir að öll þekkingarmiðlun er af hinu góða. Það er til dæmis ákveðið aðgengi að þekkingu fyrir okkur að gerast aðili að samtökum eins og RBA.“ Aðspurð um góðu ráðin segir Þóra. „Ég myndi segja að við ættum að vera óhræddari við að hafa samband við aðra og leita hjálpar enda lykilatriði að við hjálpumst að. Þetta gildir bæði um að tengslanetið okkar hér heima og erlendis, því það er engin ástæða fyrir neinn að reyna að finna hjólið upp á nýtt,“ segir Þóra og undirstrikar mál sitt með skemmtilegu ensku orðatiltæki: Think global, act local. „Við eigum alltaf að velta því fyrir okkur hvernig aðrir eru að gera hlutina. Og hvað af því sem þeir gera, gæti nýst okkur.“ Þóra segir málaflokkinn oft taka á. Þegar umræðan er neikvæð eins og hún hefur verið undanfarið, er auðvelt að taka hlutina inn á sig. Þannig að já, það þarf vissa seiglu til að geta staðið í þessu. En ef við einblínum meira á þetta jákvæða, eins og í öllu öðru, þá er alltaf hægt að sjá tækifæri og fleira gott í stöðunni.“ Sem dæmi segir Þóra. „Það er til dæmis oft verið að tala um hvað málaflokkurinn kallar á mikinn kostnað. En það þarf ekki endilega að vera svo. Því oft er hægt að finna aðrar leiðir til að koma hlutunum áfram án þess að stofna til mikils kostnaðar.“ Margt jákvætt hafi líka þegar sýnt sig. „Fyrst þegar fólk heyrir orðið sjálfbærni fyrirtækja hugsa margir strax eingöngu um umhverfismálin en ég tel að sjálfbærni snúist í raun um allt sem fyrirtæki gerir í rekstri, nema fjármálin sjálf. Því sjálfbærnin snýst mikið um mannauðsmálin, góða stjórnarhætti, hringrásina og fleira. Og því meira sem við fræðum um þetta, því meiri líkur eru á að það kvikni á fleiri ljósaperum.“
Tækni Sjálfbærni Vinnustaðamenning Stjórnun Tengdar fréttir „Að fyrirtæki líti inn á við áður en kolefnisjöfnun er keypt“ „Mín ráðlegging væri alltaf sú að fyrirtæki reyni að draga úr öllu því sem það getur gert sjálft áður en það fer að kaupa kolefnisjöfnun til að jafna út bókhaldið. Að fyrirtæki líti inn á við áður en kolefnisjöfnun er keypt,“ segir Stefanía María Kristinsdóttir, sérfræðingur á framleiðslusviði hjá Nóa Síríus. 30. janúar 2025 07:02 „Stelpupabbarnir eru ósjálfrátt betur á verði“ „Ég hef meira og minna verið að vinna með karlmönnum frá því að ég kom á vinnumarkaðinn, flestir töluvert eldri en ég,“ segir Elísabet Ósk Stefánsdóttir formaður Vertonet. 28. nóvember 2024 07:02 Dýrara að gera ekkert: „Erum öll að pissa í sömu laugina“ „Það þarf ákveðna ástríðu til að halda þessu verkefni gangandi. Og snertifletirnir eru margir. Í stuttu máli má segja að við erum öll að pissa í sömu laugina en verðum bara að hætta því,“ segir Ingunn Agnes Kro, stjórnarformaður RARIK og stjórnarkona í ýmsum öðrum stjórnum, svo sem Freyju, Sjóvá og Votlendissjóðs. 1. nóvember 2024 07:02 „Fullt af íslenskum fyrirtækjum í miklum vandræðum með þetta“ „Ég lærði textíl í Myndlistaskóla Reykjavíkur því ég hef alltaf verið mjög hrifin af handverki og hönnun,“ segir Ragnheiður Stefánsdóttir, ein af forsprökkurum Flöff, nýsköpunarfyrirtæki sem ætlar að þæfa nýjan textíl úr ónýtum textílúrgangi. 27. janúar 2025 07:03 „Reglugerðin tekur gildi hvort sem menn hafa þetta hugrekki eða ekki“ „Þróunin er mjög hröð og það eru nokkrir verktakar sem eru til fyrirmyndar, segir Jónína Þóra Einarsdóttir, leiðtogi í sjálfbærni, öryggi og gæðum hjá Steypustöðinni. Sem á dögunum hlaut hvatningaverðlaun CreditInfo fyrir framúrskarandi árangur á sviði umhverfismála árið 2024. 8. nóvember 2024 07:03 Mest lesið „Alltaf hægt að sjá tækifæri og fleira gott í stöðunni“ Atvinnulíf 37,5 milljarðar í hagnað og nítján í arð Viðskipti innlent Um fimmtíu verið sektuð fyrir að greiða ekki rétt fargjald Neytendur Valdimar Sveinsson hlaut Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands Viðskipti innlent Heildarfjöldi farþega 4,7 milljónir í fyrra Viðskipti innlent Fólk muni eiga meira eftir í buddunni um mánaðamótin Neytendur „Að fyrirtæki líti inn á við áður en kolefnisjöfnun er keypt“ Atvinnulíf Spá 50 punkta lækkun stýrivaxta Viðskipti innlent Fékk milljón til baka vegna bílaleigubíls sem varð fyrir eldingu Neytendur Gervigreind fyrir klink veldur Bandaríkjamönnum hausverk Viðskipti erlent Fleiri fréttir „Alltaf hægt að sjá tækifæri og fleira gott í stöðunni“ „Að fyrirtæki líti inn á við áður en kolefnisjöfnun er keypt“ Það sem fáir fíla: Að þú setjir þig á of háan hest „Fullt af íslenskum fyrirtækjum í miklum vandræðum með þetta“ Forstjórinn sem saumar þjóðbúninginn öll mánudagskvöld Andlega uppsögnin: „Þetta er ekki sonur minn sko…“ „Eins og stundum vanti hvatann hjá stofnunum til þess að vilja hagræða“ „Svarið er einfaldlega: Svona höfum við alltaf gert þetta“ „Oft velt því fyrir mér: Hvenær munu þessar sögusagnir hætta?“ Sögurnar í fyrra: Því lífið er svo miklu meira en bara vinnan „Ætla ekki að ljúga því að ég sé einhver ofurhress morguntýpa“ „Þú vinnur eftir hentugleika á þeim staðsetningum sem henta“ „Helst eldri stjórnendur sem vilja fá fólkið til baka“ „Oft velur maður frekar það sem maður er góður í“ Verkefnin í fyrra: Stelpupabbar, forðunarhegðun, mismunun og áherslan á jákvæðnina „Hef einstaklega gaman af þessari stanslausu niðurlægingu“ Sjálfstætt starfandi fjölgar: Fljótlegt, einfalt og oft ódýrara Sjálfstætt starfandi fjölgar: „Hvað gerist þegar forstjórinn veikist?“ Mannauðsmál: „Enn of mikil tilhneiging til að taka ekki á málum“ „Þá hugsuðu menn: Fínt, fáum konurnar í þessi störf“ „Ásta mín, ef þú segir nei við þessu tilboði þá rek ég þig“ Kaffispjallið '24: Þar sem jafnvel dýpstu leyndarmálin eru afhjúpuð... Að kúpla okkur frá vinnu um jólin Grýlan sem segir vekjaranum að grjóthalda kjafti Einföld leið til að nýta hugmyndavinnu oftar „Ég spyr: Er í lagi að grípa í rass og þukla á brjóstum?“ Sterkasti fasteignasali landsins: Að verða pabbi breytti öllu „Tek góða bæn, þakka fyrir daginn og sofna á núll einni“ Hittust á stefnumótaappi og blása nú lífi í týndar sögur Skemmtilegir úlpustrákar: Vinir sem urðu viðskipta-vinir Sjá meira
„Að fyrirtæki líti inn á við áður en kolefnisjöfnun er keypt“ „Mín ráðlegging væri alltaf sú að fyrirtæki reyni að draga úr öllu því sem það getur gert sjálft áður en það fer að kaupa kolefnisjöfnun til að jafna út bókhaldið. Að fyrirtæki líti inn á við áður en kolefnisjöfnun er keypt,“ segir Stefanía María Kristinsdóttir, sérfræðingur á framleiðslusviði hjá Nóa Síríus. 30. janúar 2025 07:02
„Stelpupabbarnir eru ósjálfrátt betur á verði“ „Ég hef meira og minna verið að vinna með karlmönnum frá því að ég kom á vinnumarkaðinn, flestir töluvert eldri en ég,“ segir Elísabet Ósk Stefánsdóttir formaður Vertonet. 28. nóvember 2024 07:02
Dýrara að gera ekkert: „Erum öll að pissa í sömu laugina“ „Það þarf ákveðna ástríðu til að halda þessu verkefni gangandi. Og snertifletirnir eru margir. Í stuttu máli má segja að við erum öll að pissa í sömu laugina en verðum bara að hætta því,“ segir Ingunn Agnes Kro, stjórnarformaður RARIK og stjórnarkona í ýmsum öðrum stjórnum, svo sem Freyju, Sjóvá og Votlendissjóðs. 1. nóvember 2024 07:02
„Fullt af íslenskum fyrirtækjum í miklum vandræðum með þetta“ „Ég lærði textíl í Myndlistaskóla Reykjavíkur því ég hef alltaf verið mjög hrifin af handverki og hönnun,“ segir Ragnheiður Stefánsdóttir, ein af forsprökkurum Flöff, nýsköpunarfyrirtæki sem ætlar að þæfa nýjan textíl úr ónýtum textílúrgangi. 27. janúar 2025 07:03
„Reglugerðin tekur gildi hvort sem menn hafa þetta hugrekki eða ekki“ „Þróunin er mjög hröð og það eru nokkrir verktakar sem eru til fyrirmyndar, segir Jónína Þóra Einarsdóttir, leiðtogi í sjálfbærni, öryggi og gæðum hjá Steypustöðinni. Sem á dögunum hlaut hvatningaverðlaun CreditInfo fyrir framúrskarandi árangur á sviði umhverfismála árið 2024. 8. nóvember 2024 07:03