Mikill munur á verði á sumarnámskeiðum hjá íþróttafélögum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 3. júní 2021 13:53 Vafalítið fara einhver leikjanámskeiðin á höfuðborgarsvæðinu í ferð í Nauthólsvík. Vísir/Vilhelm Heilmikill munur er á verði á þeim námskeiðum sem standa grunnskólabörnum til boða yfir sumartímann samkvæmt úttekt verðlagseftirlits Alþýðusambands Íslands. Tímagjald fyrir íþrótta- og leikjanámskeið á Akureyri er 133 krónur á meðan gjaldið er þrisvar til fjórum sinnum hærra í Kópavogi. Foreldrar þurfa í flestum tilfellum að skipuleggja frítíma barna í nokkrar vikur yfir sumarið svo þeir geti sinnt vinnu á meðan skólar landsins eru lokaðir og foreldrarnir ekki komnir í frí. Grunnskólar eru lokaðir í um 10 vikur og ef gert er ráð fyrir að foreldrar eigi um 5 vikna sumarfrí standa 5 vikur eftir sem þarf að finna eitthvað fyrir börnin að gera. Margir foreldrar reiða sig því á sumarnámskeið sem geta verið kostnaðarsöm þrátt fyrir að ódýrustu námskeiðin séu valin. Verðlagseftirlit ASÍ hefur tekið saman verð á hinum ýmsu sumarnámskeiðum sem standa foreldrum til boða í ár. Námskeiðin eru ólík að gerð og fyrir ólík aldursbil og mikill munur er á verði á námskeiðunum. Lægsta tímagjald fyrir sumarnámskeið í úttektinni er 133 krónur en það hæsta 2.387 krónur og þannig er 1.695% munur á hæsta og lægsta tímagjaldi á þeim námskeiðum sem úttektin nær til. Þá er töluverður verðmunur á sambærilegum íþrótta- og fjölgreinanámskeiðum sem standa til boða hjá íþróttafélögum. Sem dæmi er tímagjald á slíkum hálfs dags námskeiðum 133 krónur hjá KA, 193 krónur hjá Gróttu, 275 krónur hjá Haukum, 345 krónur hjá Stjörnunni og 478 krónur hjá HK og Breiðablik. ASÍ vekur athygli á sérstökum íþrótta- og tómstundastyrkjum sem standa tekjulægri heimilum til boða sem hægt er að nýta til að greiða fyrir sumarnámskeið. Dýrt í dans og myndlist Tímagjöld á íþrótta- og fjölgreinanámskeiðum á vegum íþróttafélaganna og sumarfrístund hjá sveitarfélögunum í lægri kantinum Lægsta tímagjaldið á námskeiði af þeim sem þessi úttekt nær til er íþrótta- og leikjaskóli á vegum KA. Tímagjald fyrir tveggja vikna námskeið sem stendur í 4,5 tíma á dag (með gæslu) er 133 krónur og kostar námskeiðið því 6 þúsund krónur. Tímagjaldið á sambærilegu námskeiði hjá HK er 487 krónur og er verðbil á slíkum námskeiðum því töluvert. Verð á námskeiðum hjá íþróttafélögunum er þó almennt í lægri kantinum af þeim námskeiðum sem standa til boða sem og verð á frístundanámskeiðum hjá sveitarfélögunum. Til samanburðar er verð á námskeiðum í ýmsum listgreinum, t.d. myndlist og dansi og tæknitengdum námskeiðum almennt í hærri kantinum. Sama má segja um verð á reiðnámskeiðum, ýmsum sundnámskeiðum og hjólanámskeiðum. Tímagjald á slíkum námskeiðum er yfirleitt á bilinu 1 þúsund-2 þúsund krónur Hæsta tímagjaldið í úttektinni er á námskeiðum hjá Myndlistarskóla Kópavogs, 2.387 krónur sem standa í 1,5 klst. í fimm daga. Næst hæsta tímagjaldið er á dansnámskeiði hjá Brynju Péturs, 2.083 krónur en það námskeið er tvisvar í viku í þrjár vikur í klukkutíma í senn. Dæmi um kostnað fyrir námskeið fyrir 8 ára barn Kostnaður við sumarnámskeið ræðst af því hvaða námskeið eru valin og hversu langan tíma börnin þurfa að vera á námskeiðum. Hér að neðan má sjá dæmi um kostnað fyrir sumarnámskeið í 5 vikur fyrir fjölskyldu á höfuðborgarsvæðinu með 8 ára barn. Sérstakir Covid styrkir til niðurgreiðslu á sumarnámskeiðum Í mörgum sveitarfélögum stendur til boða að nýta frístundastyrki upp í sumarnámskeið en slíkir styrkir hrökkva skammt ef þeir eiga bæði að nýtast í tómstundir yfir veturinn og standa straum af kostnaði við sumarnámskeið. Vakin er athygli á því að í ár standa til boða sérstakir íþrótta- og tómstundastyrkir vegna Covid fyrir börn sem búa á tekjulægri heimilum en hægt að nota styrkinn upp í greiðslu fyrir sumarnámskeið. Styrkurinn er fyrir börn fædd á árunum 2005-2014 og búa á heimili þar sem heildartekjur heimilisins voru að meðaltali lægri en 740 þúsund krónur á mánuði á tímabilinu mars–júlí 2020. Opið er fyrir umsóknir um styrkinn til 31. júlí 2021. Hér er hægt að lesa um styrkinn og sækja um. Um úttektina Skoðuð voru verð á námskeiðum íþróttafélaga, á vegum íþrótta- og tómstundarráða, sveitarfélaga, skátafélaga og frjálsra félagasamtaka. Námskeiðunum í könnuninni er skipt eftir fjölda námskeiðsdaga og klukkustunda á dag. Víða er boðin gæsla á morgnana áður en námskeiðin hefjast, í hádeginu og eftir að dagskrá námskeiðanna lýkur á daginn. Ef slík gæsla er í boði er hún tekin með í fjölda tíma sem námskeið stendur yfir. Misjafnt er hvort greiða þurfi aukalega fyrir þessa gæslu eða hvort hún er innifalin í námskeiðsgjaldinu. Sama er að segja um hádegisverð og hressingu, matur er sjaldnast innifalinn í námskeiðsgjaldinu, en oft er hægt að kaupa heitan mat gegn vægu gjaldi. Það gjald sem gefið er upp í könnuninni er ávallt miðað við eitt stakt námskeið þannig að ekki er tekið tillit til afsláttarverðs t.d. iðkendaafsláttar eða systkinaafsláttar. Auk þess ber að athuga að hér er aðeins um verðsamanburð en ekki mat á gæðum eða þjónustu. Úrvalið af sumarnámskeiðum fyrir börn og unglinga er mjög mikið og þessi könnun nær aðeins yfir hluta þeirra. Börn og uppeldi Mest lesið Þrotabú Wok on vill tugmilljóna endurgreiðslu frá Kristjáni Viðskipti innlent Horfðu á hallærislegt sjónvarpsefni og úðuðu í sig bragðaref Atvinnulíf Salzburg úr sögunni hjá Play Viðskipti innlent Samherji hvetur Odd Eystein til frekari verka Viðskipti innlent „Myndi alveg segja að hjartað í mér hafi verið í buxunum“ Atvinnulíf Að hætta að vera vandræðaleg í nýrri vinnu Atvinnulíf Enginn þarf að vera giftur lánunum sínum út lánstímann Samstarf Frá RÚV til Coca-Cola Viðskipti innlent Ellefu milljarða lán til að byggja upp veitukerfi og verjast loftslagsvá Viðskipti innlent Gengu langt í að vinna að lausn þótt bíllinn væri ekki í ábyrgð Neytendur Fleiri fréttir Gengu langt í að vinna að lausn þótt bíllinn væri ekki í ábyrgð Hafa rúmir opnunartímar áhrif á verðlag? Stöðva þurfi rányrkju bílastæðaeigenda Segir engar breytingar hafa verið gerðar á uppskrift SS pylsna Útlit fyrir frekari verðhækkanir á kaffimarkaði Þrjár verslanir í Múlunum sektaðar eftir rassíu Neytendastofu Þetta kostar skyndibiti á Íslandi Fær bætur vegna brúnu blettanna í mottunni Með ólíkindum og merki um taumlausa græðgi Arion banki hækkar vexti hressilega Greiðslubyrði gæti farið hríðlækkandi á næsta ári Ellefu fyrirtæki til skoðunar vegna bílastæðagjalda Skinkan langódýrust í Prís Fasteignasali gaf rangar upplýsingar og situr uppi með reikninginn Kílómetragjaldið verst fyrir þá tekjulægri Óttast að fólk kaupi eitruð barnaföt fyrir jólin Blekking við neytendur eða leið til að halda „þægilegri verðpunkti“? Óttast að raforkuverð fjórfaldist án inngrips Réttur og öryggi leigjenda aukast á sunnudaginn Mótmæla samráðsummælum Breka og segja þau „haldlaus“ Verslanir hafi haft með sér „þögult samkomulag“ um verð Prís hrærir í pottinum: „Ekkert of langt gengið að kalla þetta verðstríð“ Verðlag á matvöru lækkar í fyrsta sinn frá því í mars Kaupum meira og meira þrátt fyrir mikla verðbólgu Reiknar með því að Bónus sjái Prís sem áskorun Lágvöruverðsverslunin Prís opnar í dag Temu kaupin getu hæglega orðið að fíkn Verðstríð að hefjast á matvörumarkaði Sleppur við sektir eftir auglýsingu um hundrað prósent lán Orðrómur um Appelsín ósannur Sjá meira
Um úttektina Skoðuð voru verð á námskeiðum íþróttafélaga, á vegum íþrótta- og tómstundarráða, sveitarfélaga, skátafélaga og frjálsra félagasamtaka. Námskeiðunum í könnuninni er skipt eftir fjölda námskeiðsdaga og klukkustunda á dag. Víða er boðin gæsla á morgnana áður en námskeiðin hefjast, í hádeginu og eftir að dagskrá námskeiðanna lýkur á daginn. Ef slík gæsla er í boði er hún tekin með í fjölda tíma sem námskeið stendur yfir. Misjafnt er hvort greiða þurfi aukalega fyrir þessa gæslu eða hvort hún er innifalin í námskeiðsgjaldinu. Sama er að segja um hádegisverð og hressingu, matur er sjaldnast innifalinn í námskeiðsgjaldinu, en oft er hægt að kaupa heitan mat gegn vægu gjaldi. Það gjald sem gefið er upp í könnuninni er ávallt miðað við eitt stakt námskeið þannig að ekki er tekið tillit til afsláttarverðs t.d. iðkendaafsláttar eða systkinaafsláttar. Auk þess ber að athuga að hér er aðeins um verðsamanburð en ekki mat á gæðum eða þjónustu. Úrvalið af sumarnámskeiðum fyrir börn og unglinga er mjög mikið og þessi könnun nær aðeins yfir hluta þeirra.
Börn og uppeldi Mest lesið Þrotabú Wok on vill tugmilljóna endurgreiðslu frá Kristjáni Viðskipti innlent Horfðu á hallærislegt sjónvarpsefni og úðuðu í sig bragðaref Atvinnulíf Salzburg úr sögunni hjá Play Viðskipti innlent Samherji hvetur Odd Eystein til frekari verka Viðskipti innlent „Myndi alveg segja að hjartað í mér hafi verið í buxunum“ Atvinnulíf Að hætta að vera vandræðaleg í nýrri vinnu Atvinnulíf Enginn þarf að vera giftur lánunum sínum út lánstímann Samstarf Frá RÚV til Coca-Cola Viðskipti innlent Ellefu milljarða lán til að byggja upp veitukerfi og verjast loftslagsvá Viðskipti innlent Gengu langt í að vinna að lausn þótt bíllinn væri ekki í ábyrgð Neytendur Fleiri fréttir Gengu langt í að vinna að lausn þótt bíllinn væri ekki í ábyrgð Hafa rúmir opnunartímar áhrif á verðlag? Stöðva þurfi rányrkju bílastæðaeigenda Segir engar breytingar hafa verið gerðar á uppskrift SS pylsna Útlit fyrir frekari verðhækkanir á kaffimarkaði Þrjár verslanir í Múlunum sektaðar eftir rassíu Neytendastofu Þetta kostar skyndibiti á Íslandi Fær bætur vegna brúnu blettanna í mottunni Með ólíkindum og merki um taumlausa græðgi Arion banki hækkar vexti hressilega Greiðslubyrði gæti farið hríðlækkandi á næsta ári Ellefu fyrirtæki til skoðunar vegna bílastæðagjalda Skinkan langódýrust í Prís Fasteignasali gaf rangar upplýsingar og situr uppi með reikninginn Kílómetragjaldið verst fyrir þá tekjulægri Óttast að fólk kaupi eitruð barnaföt fyrir jólin Blekking við neytendur eða leið til að halda „þægilegri verðpunkti“? Óttast að raforkuverð fjórfaldist án inngrips Réttur og öryggi leigjenda aukast á sunnudaginn Mótmæla samráðsummælum Breka og segja þau „haldlaus“ Verslanir hafi haft með sér „þögult samkomulag“ um verð Prís hrærir í pottinum: „Ekkert of langt gengið að kalla þetta verðstríð“ Verðlag á matvöru lækkar í fyrsta sinn frá því í mars Kaupum meira og meira þrátt fyrir mikla verðbólgu Reiknar með því að Bónus sjái Prís sem áskorun Lágvöruverðsverslunin Prís opnar í dag Temu kaupin getu hæglega orðið að fíkn Verðstríð að hefjast á matvörumarkaði Sleppur við sektir eftir auglýsingu um hundrað prósent lán Orðrómur um Appelsín ósannur Sjá meira