Neytendur

Svara Melabúðinni: „Verðtökufólki hefur sannar­lega verið vísað á dyr“

Árni Sæberg skrifar
Benjamín Julian, verkefnastjóri verðlagseftirlits ASÍ.
Benjamín Julian, verkefnastjóri verðlagseftirlits ASÍ. Vísir/Einar

Verðlagseftirlit ASÍ segir verðlagseftirlitsmönnum sannarlega hafa verið vísað á dyr í Melabúðinni, þrátt fyrir fullyrðinga verslunarstjóra verslunarinnar um annað. Eftirlitið leggi ekki mat á gæði en það sé réttur fólks að vita hversu dýru verði gæðin eru keypt.

Þetta segir í svari verðlagseftirlitsins við yfirlýsingu verslunarstjóra Melabúðarinnar. Í gær var greint frá því að Melabúðin hefði hafnað þáttöku í verðlagseftirlitinu. Áður en sú afstaða hefði orðið ljós hefði verðtaka verið framkvæmd, síðast í janúar síðastliðnum, en samkvæmt þeirri athugun hafi Melabúðin verið 43 prósentum dýrari en Bónus að meðaltali, þegar tæplega 700 vörur voru skoðaðar.

Hefðu ekki tekið þátt í eftirlitinu áður

Dýrleif Birna Sveinsdóttir, verslunarstjóri Melabúðarinnar, svaraði ASÍ fyrir hönd verslunarinnar með yfirlýsingu þar sem sagði meðal annars að Melabúðin væri sérverslun með sælkeravörur og hefði í gegnum tíðina ekki verið hluti af verðlagseftirliti ASÍ, enda væri rekstur einnar hverfisverslunar í Vesturbæ Reykjavíkur allt annars eðlis en stórra verslanakeðja.

Þá sagði að samanburður á verði án tillits til gæða, þjónustu og vöruvals drægi upp skakka mynd og tæki ekki tillit til sérstöðu sérverslana eins og Melabúðarinnar í samkeppni við stórar verslanakeðjur.

Svara verslunarstjóranum fullum hálsi

Í yfirlýsingu verðlagseftirlitsins segir að vegna yfirlýsingar Melabúðarinnar um verðkannanir í gær telji verðlagseftirlit ASÍ rétt að koma nokkrum atriðum á framfæri.

„Verðtökufólki hefur sannarlega verið vísað á dyr í Melabúðinni áður, þótt öðru sé nú haldið fram.“

Í þeim verðsamanburði sem birtur var í gær hafi aðeins verið borið saman verð á sömu vörum, það er að segja vörum sem bera nákvæmlega sama vörumerki. Til dæmis Póló kex frá Frón sem hafi kostað 729 krónur í Melabúðinni en 298 krónur í Bónus.

Mikill meirihluti líka í öðrum verslunum

Þá segir að af tæplega þrjú þúsund strikamerkjum sem skönnuð voru í Melabúðinni hafi mátt finna yfir 2.400, eða rúmlega áttatíu prósent, í öðrum verslunum sem verðlagseftirlitið kanni reglulega. Þar af hafi sjö hundruð verið til í Bónus, eitt þúsund í Krónunni og tæplega fjórtán hundruð í Hagkaupum. 

„Verðlagseftirlit ASÍ leggur ekki mat á gæði, aðeins verð. Neytendum sjálfum er treyst að leggja mat á hvort gæðin séu verðsins virði, en það er réttur fólks að vita hversu dýru verði gæðin eru keypt.“

Óeðlilegt að farið sé með verðlag sem leyndarmál

Verðlagseftirlit ASÍ mæli ekki einungis verðmun milli verslana, heldur skoði það einnig verðsögu vara bæði hjá birgjum og verslunum. Þetta þýði að verð séu skoðuð í mun fleiri verslunum en reglulegar kannanir gefi til kynna.

„Það er afstaða Verðlagseftirlitsins að ef verslun getur staðið við sitt verð á kassanum, þá á hún að geta staðið við það opinberlega. Ekki er lagður dómur á réttmæti verðlagningar Melabúðarinnar. Hins vegar er óeðlilegt að farið sé með hana sem leyndarmál.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×