Innlent

Myndi vilja leggja sig hjá kúnum í Nátthaga og láta hrauna yfir sig

Kristján Már Unnarsson skrifar
Guðbergur Bergsson rithöfundur smalaði kúm í Nátthaga á æskuárum í Ísólfsskála. Núna sér hann hraunið fara yfir átthagana.
Guðbergur Bergsson rithöfundur smalaði kúm í Nátthaga á æskuárum í Ísólfsskála. Núna sér hann hraunið fara yfir átthagana. Egill Aðalsteinsson

Guðbergur Bergsson rithöfundur heimsótti æskuslóðir sínar á Ísólfsskála í dag þar sem fornleifafræðingar frá Minjastofnun vinna í kappi við hraunrennslið að kanna fornminjar. Sjálfur skoðaði Guðbergur nýja hraunið í Nátthaga þar sem hann var kúasmali á yngri árum.

Jörðin Ísólfsskáli stendur við Suðurstrandarveg austan Grindavíkur.Egill Aðalsteinsson

Jörðinni Ísólfsskála er núna ógnað af hraunrennsli en þar er Guðbergur fæddur. Á heimreiðinni hitti hann tvo frændur sína, þá Val Helgason og Ársæl Ármannsson, sem fögnuðu honum með faðmlagi, eins og sjá mátti í fréttum Stöðvar 2.

„Ég fæddist hér. Síðasti maðurinn sem fæðist hér, næstum fyrir níutíu árum,“ segir Guðbergur en hann er heiðursborgari Grindavíkur.

Guðbergur með frændum sínum, þeim Ársæli Ármannssyni og Vali Helgasyni, á heimreiðinni að Ísólfsskála. Guðni Þorbjörnsson ljósmyndar hópinn.Egill Aðalsteinsson

Að Ísólfsskála mættu einnig fjórir fornleifafræðingar frá Minjastofnun Íslands, að vinna í kappi við tímann.

„Já, því miður. Það er svona hætta á því að hraunið komi hingað niður eftir, nema þeir finni einhverja aðra leið fyrir það. Þannig að við erum svona að reyna að vera með fyrirbyggjandi aðgerðir,“ segir Agnes Stefánsdóttir, deildarstjóri og fornleifafræðingur hjá Minjastofnun.

Agnes Stefánsdóttir er fornleifafræðingur hjá Minjastofnun Íslands.Egill Aðalsteinsson

Hún segir jörðina geyma fjölda merkra minja. Þær merkustu séu kannski þær sem tengjast sögu útræðis, eins og fiskbyrgin í hrauninu austan við bæinn, en þar séu einnig hlaðnir garðar.

„Það er alveg ótrúlegt magn af hleðslum þarna á svæði sem er rosalega erfitt að fara yfir,“ segir Agnes.

Guðbergur hafði mestan áhuga á að fara inn í Nátthaga að sjá nýja hraunið en þangað fór hann oft á æskuárum að sækja kýrnar.

„Ég á minningar með kúnum. Því að þær komu hingað og áttu hér ból. Þær týndust oft og þá vissi maður nokkurn veginn að þær myndu fara upp í Nátthaga,“ rifjar Guðbergur upp.

Guðbergur horfir á hraunið skríða niður í Nátthaga í dag.Egill Aðalsteinsson

Í dag sá hann rauðglóandi hraunárnar steypast niður í Nátthaga.

-Þetta hlýtur að vera skrítin tilfinning?

„Ég vildi bara að kýrnar væru hérna og leggðu sig hjá hrauninu. Þá myndi ég leggja mig hjá kúnum og hrauninu. Og láta hrauna yfir mig,“ svarar Guðbergur, sposkur á svip.

Hér má sjá frétt Stöðvar 2:

Landeigendur Hrauns við Grindavík hafa einnig mátt sjá á eftir fyrrum nytjalandi undir hraun, eins og fjallað var um í þessari frétt fyrir tveimur mánuðum:


Tengdar fréttir

Landeigandi segir jarðeldana hafa komið upp í haugi Ísólfs

Einn af landeigendum Geldingadala segir eldgosið hafa komið upp á haugi Ísólfs landnámsmanns og því sé alveg eins gott að kenna eldstöðina við Ísólf. Verið er að bæta göngu- og akstursleiðir að svæðinu en veðurspá helgarinnar er hins vegar afleit.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×