Mun óska eftir nýrri þjóðarkvæðagreiðslu um sjálfstæði Atli Ísleifsson skrifar 21. maí 2021 14:49 Pere Aragonés var í dag kjörinn forseti héraðsstjórnar Katalóníu. EPA/ALBERTO ESTEVEZ Pere Aragonés var í dag kjörinn forseti héraðsstjórnar Katalóníu af héraðsþinginu.
Hinn 38 ára Aragonés styðjur sjálfstæði Katalóníu frá Spáni en hefur verið lýst sem hófsamari en nokkrir forverar hans í embætti. Hann hefur verið starfandi forseti héraðsstjórnar frá í september síðastliðinn. Eftir að Aragonés tók við embættinu fyrr í dag hét hann aðskilnaðarsinnum því að hann myndi krefjast þess að fram fari ný þjóðaratkvæðagreiðsla um sjálfstæði héraðsins. Spánarstjórn hefur áður lagst harkalega gegn öllum slíkum hugmyndum. Aragonés tjáði katalónska þinginu að hann myndi leiða félagslegar og efnahagslegar umbætur í héraðinu og halda sjálfstæðisbaráttunni áfram. Sömuleiðis þurfi enn að kjást við áhrif kórónuveirufaraldursins. Bauð fram krafta sína Carles Puigdemont, fyrrverandi forseti héraðsstjórnar Katalóníu sem er nú í sjálfskipaðri útlegð í Belgíu, óskaði Aragonés til hamingju með stöðuna á Twitter fyrr í dag og sagðist jafnframt til þjónustu reiðubúinn. „Lengi lifi frjáls Katalónía,“ sagði Puigdemont. Puigdemont flúði til Belgíu skömmu eftir að hafa lýst yfir sjálfstæði Katalóníu árið 2017 í kjölfar þjóðaratkvæðagreiðslu sem spænskir dómstólar lýstu sem ólöglegri. Skipun Aragonés í embætti forseta héraðsstjórnar kemur í kjölfar um þriggja mánaða stjórnarmyndunarviðræðna vinstriflokks hans, ERC, og annarra flokka sem styðja sjálfstæði Katalóníu. Euronews segir frá því að skoðanakannanir bendi til að um helmingur Katalóna styðji sjálfstæði héraðsins, en hinn helmingurinn vilji að héraðið verði áfram hluti af Spáni.
Sjálfstæðisbarátta Katalóníu Spánn Mest lesið Sagður hafa nauðgað fatlaðri konu og látið son hennar horfa á Innlent Albert ákærður fyrir kynferðisbrot Innlent Tveir góðkunningjar flúðu lögregluna á hlaupahjóli Innlent Fatasöfnunargámar Rauða krossins fjarlægðir á næstu dögum Innlent Fimm grímuklæddir brutu upp útidyrahurð Innlent Lenti með höfuðið á malbikinu þegar maður tók fram úr bílalest Innlent Enn slasast tugir í ókyrrð Erlent „Enn fólk að birtast sem hafði ekki hugmynd um þetta“ Innlent „Hefðbundið eftirlit er ekki viðhaft að ástæðulausu“ Innlent Mögulega komnir úr landi en ekki ástæða til að lýsa eftir þeim Innlent Fleiri fréttir 87 talin af vegna troðnings Einn látinn og þúsundir án vatns og rafmagns Enn slasast tugir í ókyrrð Orbán hyggst óvænt heimsækja Úkraínu Í höndum Macron að koma í veg fyrir stórsigur Le Pen Hæstiréttur segir Trump njóta friðhelgi að hluta Einn helsti rithöfundur Albaníu er allur Strangrúaðir mótmæltu herskyldu Varað við fellibylnum Beryl sem er á leið yfir Karíbahafið Kínversk geimflaug hrapaði til jarðar Flestir á því að Biden valdi ekki starfinu Sögulegur dagur fyrir frönsku þjóðina að baki „Ástæða til að hafa áhyggjur“ Franska þjóðfylkingin leiðir samkvæmt útgönguspám Vöknuðu á floti og stigu út með drulluna upp að hnjám „Fólk er einfaldlega hrætt“ Leitin að Slater blásin af Frakkar ganga að kjörborðinu Útlitið svart hjá Macron fyrir kosningar á morgun Bandarískum kjósendum líst illa á stöðuna í forsetaslagnum Ungur maður tekinn af lífi fyrir að hlusta á K-pop í Norður-Kóreu Efna til allsherjarleitar að Slater Mossack og Fonseca heitinn sýknaðir Segir Biden „algjörlega vanhæfan“ „Ég veit að ég er ekki ungur maður“ „Fíaskó næturinnar“ gæti kallað á nýjan frambjóðanda Ævilangt fangelsi fyrir morðið og nauðganirnar Biden augljóslega þyngdur af ellibelgnum Sakfelldur fyrir að myrða Emilie Meng Þakið á flugvelli í Nýju Delí hrundi vegna mikillar rigningar Sjá meira