Íþróttanördinn í Landsbjörg viðurkennir stríðni barna sinna Rakel Sveinsdóttir skrifar 24. apríl 2021 10:01 Kristján Harðarson. Vísir/Vilhelm Nýr framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins Landsbjörg, Kristján Harðarson, viðurkennir að hann sé algjör alæta á íþróttir. Svo mikill íþróttanörd er hann reyndar, að börnin gera að honum smá grín. Kristján skipuleggur verkefnin sín í lok hverrar vinnuviku en þessa dagana er annasamt í vinnunni; Ekki síst vegna eldgossins í Fagradalsfjalli.
Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni. Hvenær vaknar þú á morgnana? „Ég vakna alltaf klukkan hálf sjö á virkum dögum.“ Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana? „Það fyrsta sem ég geri á morgnana er að fara í sturtu og síðan fæ ég mér góðan kaffibolla. Les blöðin og helstu fréttamiðla yfir kaffibolla númer tvö. Hef aldrei verið mikill morgunverðarmaður og borða yfirleitt ekkert fyrr en í hádeginu.“ Hvað er áhugamál númer #1? „Áhugamálin eru mörg en tengjast flest útiveru og hreyfingu. Er algjör alæta á íþróttir og fylgist með öllum úrslitum í helstu íþróttagreinum. Börnin eiga það til að gera grín að mér hvað þetta varðar með því að spurja um úrslit úr þriðju deild í knattspyrnu í Belgíu, ég er samt ekki það mikið íþróttanörd að ég fylgist með þeim úrslitum! Nú í Covid höfum við konan tekið upp á því að ganga mikið, bæði í nær umhverfi okkar og í Heiðmörk. Langir göngutúrar með konunni eru mjög gefandi, bæði fyrir sál og líkama.“ Það hefur ekki farið framhjá neinum að sjálfboðaliðar Landsbjargar spila stórt hlutverk nú þegar gýs við Fagradalsfjall. En Kristján segir heilmikið starf unnið hjá Landsbjörg, til dæmis rekur Landsbjörg Fslysavarnaskóla sjómanna, björgunarskóla og er öflugt í forvarnastarfi.Vísir/Vilhelm Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana? „Ég er að setja mig inn í nýtt starf sem framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar og þar er í mörg horn að líta. Félagið rekur slysavarnaskóla sjómanna, björgunarskóla, er öflugt í forvarnastarfi, kemur að almannavörnum landsins eins og sést best á starfi sjálfboðaliða okkar í kringum eldgosið. Félagið er stórt og öflugt, við erum með um sexþúsund sjálfboðaliða um allt land í fjölmörgum slysavarnadeildum, björgunarsveitum og unglingadeildum. Verkefni okkar eru um allt land, bæði á láði sem legi. Skrifstofa félagsins sem ég veiti forstöðu þjónustar einingar félagsins og hinn almenna félagsmann. Einnig starfar skrifstofa félagsins að því að tryggja fjármögnun starfseminnar. Velvilji og stuðningur almennings, fyrirtækja og hins opinbera er ómetanlegur.“ Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu? „Nota yfirleitt seinnipart föstudags til að skipuleggja næstu viku og vinn svo með gróf mánaðarplön sem innihalda þá viðburði eða verkefni sem þarf að inna af hendi innan þess mánaðar.“ Hvenær ferðu að sofa á kvöldin? „Ég fer yfirleitt að sofa um eða eftir miðnætti. Er blanda af A og B manneskju, er að drolla fram eftir á kvöldin en á mjög auðvelt með að vakna á morgnana. Vakna yfirleitt áður en klukkan hringir. Leyfi mér að sofa aðeins lengur um helgar.“
Kaffispjallið Björgunarsveitir Tengdar fréttir Getur ekki lengur vaknað í rólegheitum á morgnana Hera Grímsdóttir, forseti Iðn- og tæknifræðideildar við Háskólann í Reykjavík (HR), segir nýjasta fjölskyldumeðliminn, tíu vikna Bichon tík, vera að hrófla við allri hefðbundinni morgunrútínu. Heru finnst best að skipuleggja verkefni vikunnar á mánudögum og þar sem iðn- og tæknifræðideild HR hefur stækkað svo mikið frá því að hún var stofnuð fyrir tveimur árum, eru verkefni vikunnar æði mörg. 17. apríl 2021 10:01 Öðruvísi prógram í grísavikum og vonlaus í hárgreiðslu dótturinnar Reynir Örn Þrastarson, matreiðslumaður, sölufulltrúi hjá Heildsölu Ásbjörns Ólafssonar og lottókynnir, segir oft í gríni að vinnan hans felist í að trufla aðra kokka í sinni vinnu. Því starfið kallar á heimsóknir til viðskiptavina víðs vegar um landið. Í grísavikum er prógramið nokkuð frábrugðið því þá býr dóttir hans hjá honum. Sem segir hann algerlega vonlausan hárgreiðslumann. 27. mars 2021 10:01 Byrjar daginn á að knúsa eiginkonuna Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar, segir heimilishundinn Heru ekki hafa húmor fyrir því að bíða of lengi eftir morgunmatnum. Hann byrjar daginn á því að knúsa konuna sína en þessa dagana er í mörgu að snúast því framundan er stækkun Ölgerðarinnar. 13. mars 2021 10:01 Er vel gift, elskar útivist og segir skapandi nálgun mikilvæga Þessa dagana er Birna Bragadóttir, forstöðukona Elliðaárstöðvar, að setja sig inn í nýtt starf hjá OR. Í það starf var hún nýverið valin úr hópi rúmlega 170 umsækjenda til að byggja upp þjónustu og upplifun í Elliðarárdal. Birna segir morgunverkum fara fækkandi með hækkandi aldri barna en segist vel gift og því sjái eiginmaðurinn um yngsta soninn á meðan hún stundar helsta áhugamálið: Hreyfingu og útivist. 27. febrúar 2021 10:01 ,,Að vinna á Stöð 2 á upphafsárunum var algerlega mergjað“ Það urðu allir starfsmenn á upphafsárum Stöðvar 2 að frumkvöðlum segir Jón Örn Guðbjartsson, markaðs- og samskiptastjóri Háskóla Íslands, þegar hann rifjar upp skemmtileg fyrri störf. Í þeirri upprifjun skýrir hann líka út hvers vegna hann var kallaður kommúnistinn þegar hann vann í frystihúsinu á Þingeyri. Við Valdimar son sinn ræðir hann um ofurhetjur og með Krumma hundinum sínum hlustar hann á hljóðbækur. Í vinnunni stendur yfir undirbúningur að stafrænu stuði. 20. febrúar 2021 10:00 Mest lesið Atvinnumissir: „Það var rosa skrýtið að lenda í þessu“ Atvinnulíf Bogi og Linda kaupa af Heimum fyrir milljarða Viðskipti innlent Landsbankinn rekur lestina og lækkar vexti Viðskipti innlent Sýna áhuga á eignum Skagans 3X Viðskipti innlent Bankarnir verði að lækka vexti jafnhratt og þeir hækkuðu Viðskipti innlent Arion fyrstur til að tilkynna lækkun Viðskipti innlent Skiltið skuli fjarlægt Viðskipti innlent Loks opnað fyrir umsóknir um hlutdeildarlán Viðskipti innlent Þótti baðherbergið ógeðslegt og fór frá Íslandi Neytendur Uppreisnarleiðtogi snýr heim og tekur við rekstri Hríseyjarbúðarinnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Frekar kvöldsvæfur heldur en morgunfúll“ Atvinnumissir: „Það var rosa skrýtið að lenda í þessu“ „En það hefur líka margt fallegt komið út úr þessu“ „Breytingaskeið kvenna hefur líka áhrif á karlavinnustaði“ „Það segir sig sjálft að við höfum endalausa orku“ Horfðu á hallærislegt sjónvarpsefni og úðuðu í sig bragðaref Að hætta að vera vandræðaleg í nýrri vinnu „Myndi alveg segja að hjartað í mér hafi verið í buxunum“ „Fjárfestar eru bara venjulegt fólk“ Gervigreind og tíska: Hafa nú þegar fengið 100 milljónir í styrki „Við eigum margar rómantískar stundir í vinnunni“ Langaði svakalega mikið í sleik við George Clooney Atvinnumissir: „Ég kunni nú ekki við að spyrja Jón beint“ Nýtt trend: Engir yfirmenn á vinnustaðnum Fótboltastelpan um starfsframann: „Að sækja sér tækifærin sjálfur“ „Fyrir mann sem er skrifblindur og lesblindur er þetta ekkert auðvelt“ „Ég verð auðveldlega meyr en segi engum frá því“ Draumar rætast: „Konur þurfa ekki alltaf að vera á skrilljón“ Draumar rætast: „Lengi skammaðist ég mín ...“ Biskupinn á hlaupum með Bubba Morthens og Sísí með Grýlunum Tvöfalt líf Ara: „Í fyrra túraði ég í sex vikur“ Klara á Kanarí: „Fólk kom með ferðatöskur af saltfiski og seldi“ Sjá meira
Getur ekki lengur vaknað í rólegheitum á morgnana Hera Grímsdóttir, forseti Iðn- og tæknifræðideildar við Háskólann í Reykjavík (HR), segir nýjasta fjölskyldumeðliminn, tíu vikna Bichon tík, vera að hrófla við allri hefðbundinni morgunrútínu. Heru finnst best að skipuleggja verkefni vikunnar á mánudögum og þar sem iðn- og tæknifræðideild HR hefur stækkað svo mikið frá því að hún var stofnuð fyrir tveimur árum, eru verkefni vikunnar æði mörg. 17. apríl 2021 10:01
Öðruvísi prógram í grísavikum og vonlaus í hárgreiðslu dótturinnar Reynir Örn Þrastarson, matreiðslumaður, sölufulltrúi hjá Heildsölu Ásbjörns Ólafssonar og lottókynnir, segir oft í gríni að vinnan hans felist í að trufla aðra kokka í sinni vinnu. Því starfið kallar á heimsóknir til viðskiptavina víðs vegar um landið. Í grísavikum er prógramið nokkuð frábrugðið því þá býr dóttir hans hjá honum. Sem segir hann algerlega vonlausan hárgreiðslumann. 27. mars 2021 10:01
Byrjar daginn á að knúsa eiginkonuna Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar, segir heimilishundinn Heru ekki hafa húmor fyrir því að bíða of lengi eftir morgunmatnum. Hann byrjar daginn á því að knúsa konuna sína en þessa dagana er í mörgu að snúast því framundan er stækkun Ölgerðarinnar. 13. mars 2021 10:01
Er vel gift, elskar útivist og segir skapandi nálgun mikilvæga Þessa dagana er Birna Bragadóttir, forstöðukona Elliðaárstöðvar, að setja sig inn í nýtt starf hjá OR. Í það starf var hún nýverið valin úr hópi rúmlega 170 umsækjenda til að byggja upp þjónustu og upplifun í Elliðarárdal. Birna segir morgunverkum fara fækkandi með hækkandi aldri barna en segist vel gift og því sjái eiginmaðurinn um yngsta soninn á meðan hún stundar helsta áhugamálið: Hreyfingu og útivist. 27. febrúar 2021 10:01
,,Að vinna á Stöð 2 á upphafsárunum var algerlega mergjað“ Það urðu allir starfsmenn á upphafsárum Stöðvar 2 að frumkvöðlum segir Jón Örn Guðbjartsson, markaðs- og samskiptastjóri Háskóla Íslands, þegar hann rifjar upp skemmtileg fyrri störf. Í þeirri upprifjun skýrir hann líka út hvers vegna hann var kallaður kommúnistinn þegar hann vann í frystihúsinu á Þingeyri. Við Valdimar son sinn ræðir hann um ofurhetjur og með Krumma hundinum sínum hlustar hann á hljóðbækur. Í vinnunni stendur yfir undirbúningur að stafrænu stuði. 20. febrúar 2021 10:00