Innlent

Opna Píeta hús á Akureyri í sumar

Eiður Þór Árnason skrifar
Búið er að tryggja fjármagn fyrir rekstur hússins á Akureyri í eitt ár. 
Búið er að tryggja fjármagn fyrir rekstur hússins á Akureyri í eitt ár.  Samsett

Píeta samtökin munu opna sitt fyrsta útibú á landsbyggðinni í sumar þegar þau opna starfsstöð á Akureyri. Birgir Örn Steinarsson, sálfræðingur hjá Píeta samtökunum og listamaður, mun sinna stöðu forstöðumanns á Akureyri.

Píeta eru forvarnarsamtök gegn sjálfsvígum og sjálfskaða og opnuðu fyrsta Píetahúsið á Íslandi árið 2018 við Baldursgötu 7 í Reykjavík. Samtökin starfa starfa eftir hugmyndafræði samnefndra samtaka á Írlandi og bjóða fólki 18 ára og eldri sem glíma við sjálfsvígshugsanir aðstoð frá fagfólki án endurgjalds.

Fram kemur í tilkynningu frá samtökunum að það hafi verið á stefnuskrá þeirra frá stofnun þeirra á Íslandi að opna Píetahús í öllum landsfjórðungum. Verður fyrsta skrefið að því tekið á Akureyri þann 1. júlí næstkomandi.

Birgir Örn, einnig þekktur sem Biggi í Maus, hefur starfað sem sálfræðingur fyrir Píeta í um þrjú ár. Hann gegndi einnig tímabundið stöðu fagstjóra samtakanna þar til Þórunn Finnsdóttir sálfræðingur tók við í febrúar á þessu ári.

Þörfin alls staðar

„Birgir er Píetamaður inn að hjarta og á eftir að vinna gott starf fyrir íbúa Norðurlands, það er ég fullviss um“ segir Kristín Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Píeta, í tilkynningu.

„Þörfin fyrir þjónustu samtakanna er alls staðar og höfum við mætt mikilli velvild og stuðningi frá Akureyrarbæ í tengslum við undirbúningsvinnuna. Því var ákveðið að opna útibú á Akureyri.“

Starsemi Píeta er rekin alfarið á styrkjum og hefur tekist hefur að tryggja rekstur Píeta á Akureyri í tólf mánuði.

Auk þess að veita fólki með sjálfsvígshugsanir aðstoð bjóða Píeta samtökin einnig þeim hafa misst ástvin eða búa með einstaklingi í sjálfsvígshættu upp á stuðning. Píetasíminn 5522218 er opinn allan sólarhringinn og benda samtökin einnig á Hjálparsíma Rauða Krossins 1717. Í neyðartilvikum skal ávalt hringja í 112.


Tengdar fréttir

Fjöldi sjálfsvíga svipaður og síðustu ár

Alls sviptu átján manns sig lífi á Íslandi á fyrri hluta ársins 2020, eða 4,9 á hverja 100 þúsund íbúa. Fjöldinn samræmist þeim sem verið hefur síðustu ár.

Styrkir Píeta-sam­tökin um sex milljónir

Heilbrigðisráðherra mun jafnframt tryggja tólf milljóna króna fjármagn fyrir stöðu verkefnastjóra sjálfsvígsforvarna hjá embætti landlæknis út næsta ár.

Opna Píeta­símann sem verður opinn allan sólar­hringinn

Píeta-samtökin opnuðu í dag fyrir nýja þjónustu, Píetasímann, sem verður opinn allan sólarhringinn og er liður í því að auka þjónustu við þá sem eru með sjálfsvígshugsanir og aðstandendur þeirra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×