Innlent

Um 50 tjónatilkynningar frá ellefu sveitarfélögum frá upphafi jarðskjálftahrinu

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Hulda Ragnheiður Árnadóttir framkvæmdastjóri Náttúruhamfaratryggingar Íslands.
Hulda Ragnheiður Árnadóttir framkvæmdastjóri Náttúruhamfaratryggingar Íslands. Vísir

Framkvæmdastjóri Náttúruhamfaratryggingar Íslands segir íslensk hús þola vel það stöðuga jarðskjálftaálag sem hefur verið undanfarið. Verði stórir skjálftar yfir sex geti skálftar eftir það haft áhrif á álagsþol húsa. Tæplega 50 tjónatilkynningar hafa orðið frá 24. febrúar. 

Hulda Ragnheiður Árnadóttir framkvæmdastjóri Náttúruhamfarartryggingar Íslands segir að alls hafi borist 49 tilkynningar um tjón af völdum jarðskjálfta frá því hrinan hófst á Reykjanesskaga þann 24. febrúar. 

„Af þessum 49 eru tvær sem bárust eftir stóra skjálftann í gær og eru þær báðar frá Hafnarfirði.  Mér sýnist að í gær hafi helst orðið tjón vegna þess að lausamunir féllu um koll. Það gæti verið að við eigum eftir að fá fleiri tilkynningar ef um verulegt tjón hefur verið að ræða en það er frekar ólíklegt því íslensk hús eru byggð til að þola svo mikið álag,“ segir Hulda. 

Hulda segir að frá 24. febrúar hafi nokkrar tilkynningar um tjón borist á hverjum degi. 

„Allar tilkynningarnar sem ég hef séð eru vegna minniháttar tjóna og fara ekki yfir eigináhættu nema í einstökum tilfellum. Fólk fær ekki greitt úr tryggingum nema tjón sé metið  hærra en tvöhundruðþúsund krónur á lausamunum og innbúi og fjögurhundruð þúsund krónur á húseignum. Tryggingin er hugsuð sem hamfaratrygging þannig að hún kemur inn þegar fólk verður fyrir stjórtjóni, “ segir Hulda. 

Aðspurð hvað íslensk hús þoli stöðugt álag af völdum jarðskjálfta lengi svarar Hulda.

„Íslensk hús eru byggð til að þola mikið álag og ef ekki verður tjón á burðavirki húsa þá þola þau jarðskjálftana vel. En ef atburður er það stór að burðavirki skemmist þá erum við að tala um allt annað.  Ef það kæmu til að mynda nokkrir skjálftar yfir sex að stærð og það yrðu skemmdir á burðavirki þá hefur hver skjálfti eftir það áhrif á álagsþol húsa, en þá er um allt aðra sviðsmynd að ræða en hefur verið undanfarið,“ segir Hulda.

Allar  hús­eignir og lausa­munir á Íslandi sem eru bruna­tryggðir hjá tyggingafélögum, eru tryggðar hjá Náttúruhamfaratrygginum Íslands. Hulda segir mikilvægt að fólk fari yfir hvort vátryggingaupphæð samsvari verðmæti innbús. 

„Ég hef heyrt að fólk sé að duglegt að afla sér upplýsinga hjá tryggingfélögunum að þeirra tryggingar séu í lagi. Ef tryggingarnar hafa ekki verið í lagi hefur fólk verið að hækka þær á innbúum sem er mjög jákvætt í þessu ástandi,“ segir Hulda. 

Hér að neðan má sjá lista yfir þau ellefu sveitarfélögum þar sem hefur verið tilkynnt um tjón hjá Náttúruhamfaratryggingum Íslands frá því jarðskjálftahrinann hófst á Reykjanesi þann 24. febrúar.

101 Reykjavík

102 Reykjavík

104 Reykjavík

105 Reykjavík

107 Reykjavík

108 Reykjavík

109 Reykjavík

111 Reykjavík

112 reykjavík

116 Reykjavík

190 Vogar

191 Vogar

200 Kópavogur

210 Garðabær

220 Hafnarfjörður

221 Hafnarfjörður

225 Garðabær

230 Reykjanesbær

235 Suðurnesjabær

240 Grindavíkurbær

260 Reykjanesbær

300 Akraneskaupstaður

800 Árborg


Tengdar fréttir

Vörur hrundu úr hillum þegar jarð­skjálftinn reið yfir

Vörur hrundu úr hillum verslunar Nettó í Grindavík þegar heldur kröftugur skjálfti, sem var 5,4 að stærð, reið yfir klukkan 14:15 í dag. Skjálftinn átti upptök sín um fimm kílómetra suðvestur af Fagradalsfjalli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×