Skoðun

Veðja á hvern?

Jóhann Páll Jóhannsson skrifar

„Okkar stefna snýst um að veðja á einstaklinginn,“ segir í auglýsingu Sjálfstæðisflokksins sem blasir við okkur á samfélagsmiðlum þessa dagana. En hvaða einstaklingur er það sem Sjálfstæðisflokkurinn veðjar á?

Er það örorkulífeyrisþeginn sem reiðir sig á grunnbætur langt undir lágmarkslaunum og er refsað með himinháum jaðarsköttum í formi tekjutengdra skerðinga þegar hann stígur inn á vinnumarkaðinn? Er það lágtekjufólkið hvers skattbyrði hefur iðulega þyngst þegar flokkurinn fer með lyklavöldin í fjármálaráðuneytinu? Eða veðjar Sjálfstæðisflokkurinn á námsmanninn sem þarf að vinna talsvert meira samhliða námi heldur en námsmenn á hinum Norðurlöndunum vegna lágra framfærslulána og lágs frítekjumarks en er neitað um atvinnuleysistryggingar?

Veðjar Sjálfstæðisflokkurinn á fólkið sem hefur misst vinnuna í kórónukreppunni? Formaður flokksins hefur talað fyrir því að atvinnuleysisbótum sé haldið hæfilega lágum svo fólk hafi „nauðsynlegan hvata“ til að vinna. Afleiðingarnar af þeirri stefnu sjáum við í nýlegri skýrslu Vörðu, rannsóknarstofnunar vinnumarkaðarins, þar sem fram kemur að helmingur atvinnulausra eigi erfitt með að ná endum saman og meirihlutinn hafi þurft að neita sér um heilbrigðisþjónustu undanfarna mánuði.

Sjálfstæðisflokkurinn veðjar ekki á þetta fólk. Hann veðjar á þá sem þéna best og eiga mest. Forstjórann á ofurlaununum sem getur prísað sig sælan að hvergi á Norðurlöndunum greiðir hátekjufólk jafn lága skatta og á Íslandi. Eiganda stórútgerðarinnar sem greiðir sér hundraðföld árslaun fiskvinnslustarfsmannsins í arð en borgar miklu lægra skatthlutfall af tekjunum sínum en hann.

Forréttindaklíkurnar á Íslandi veðja á Sjálfstæðisflokkinn. Að flokkurinn verði áfram við völd og haldi áfram að verja hagsmuni þeirra með kjafti og klóm.

Við hin skulum veðja* hvert á annað og samfélagið allt, hjálpast að við að reisa Ísland upp úr kreppunni og vinna markvisst gegn ójafnaðaráhrifum hennar, efla sameiginlegu kerfin okkar jafnvel þótt það kalli á að þyngri byrðar verði lagðar á þá ríkustu og tekjuhæstu, vinna gegn viðvarandi undirmönnun í almannaþjónustu, styðja og valdefla þá sem missa vinnuna og skapa fjölbreytt atvinnutækifæri um allt land. Um þessi grundvallaratriði snúast kosningarnar í haust.

* Reyndar leggur óþef af þessu veðmálsmyndmáli. Sá sem „veðjar“ á einhvern væntir þess að hann standi uppi sem sigurvegari í keppni, vinni eða valti yfir einhverja aðra – og þar liggur kannski einmitt grunnstefið í hugmyndafræðinni sem er svo mikilvægt að við höfnum. Við erum miklu sterkari saman.

Höfundur er þingframbjóðandi Samfylkingarinnar.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×