Viðskipti innlent

Flugmenn í þjálfun keyptu fimm þúsund hótelnætur

Kristján Már Unnarsson skrifar
Flugmenn æfa lendingu í einum af flughermum Icelandair.
Flugmenn æfa lendingu í einum af flughermum Icelandair. Stöð 2

Á sama tíma tíma og flugheimurinn er í djúpri lægð vegna kórónufaraldursins hefur þjálfun erlendra flugmanna í flughermum Icelandair stóraukist. Þannig sendu erlend flugfélög fimm þúsund flugmenn í þjálfun til Hafnarfjarðar í fyrra.

Þjálfunarsetur Icelandair er á Flugvöllum í útjaðri bæjarins. Það vekur athygli okkar að á síðasta ári var helmingur þeirra flugmanna sem þangað sótti þjálfun á vegum annarra flugfélaga.

„Það eru flugfélög allsstaðar að úr heiminum sem koma hérna og kaupa þjálfun hjá okkur,“ segir Haukur Reynisson, flugrekstrarstjóri Icelandair, í fréttum Stöðvar 2, en flughermarnir eru fyrir þrjár tegundir Boeing-véla; 737, 757 og 767.

Haukur Reynisson, flugrekstrarstjóri Icelandair, við Boeing 737 max-flughermi.Arnar Halldórsson

Meðan dregið hefur úr þjálfun flugmanna Icelandair streyma flugmenn erlendra flugfélaga í flughermana, frá löndum eins og Bandaríkjunum, Kanada, Spáni, Grikklandi og Bahrein.

„Þannig að það er gríðarleg fjölgun í þjálfun fyrir erlend flugfélög hérna hjá okkur,“ segir Guðmundur Örn Gunnarsson, framkvæmdastjóri TRU Flight Training Iceland, en svo nefnist dótturfélag Icelandair sem rekur flughermana.

Skýringin á fjölguninni liggur í því að þetta eru einkum flugmenn fraktflugfélaga.

„Þannig að það hefur orðið vöxtur og sprenging í því. Það spretta upp cargo-flugfélög um alla Evrópu núna til þessa að flytja vörur,“ segir Guðmundur Örn.

Guðmundur Örn Gunnarsson, framkvæmdastjóri TRU Flight Training Iceland.Arnar Halldórsson

Og þetta er ekki ókeypis. Klukkutíminn í flughermi kostar milli 400 og 500 dollara eða allt að 65 þúsund krónur.

„Þannig að við erum að fá verulegar tekjur, nokkur hundruð milljónir, utanfrá í þetta.“

Í fyrra voru þetta fimm þúsund flugmenn, raunar 2.500 sem hver kom tvisvar, og allir þurfa gistingu. Þannig áætlar Guðmundur Örn að í fyrra hafi verið keyptar um fimm þúsund hótelnætur fyrir þá flugmenn sem komu erlendis frá í þjálfun í flughermunum.

Flugrekstrarstjóri Icelandair segir það hafa reynst góða ákvörðun að kaupa eigin flugherma, eins og þann sem núna nýtist við endurþjálfun Max-flugmanna.

„Þessi flughermir er tveggja ára gamall og besta mögulega tækið sem hægt er að fá til þess að þjálfa flugmenn. Þannig að við stöndum einstaklega vel að vígi hvað það varðar,“ segir Haukur Reynisson.

Hér má sjá frétt Stöðvar 2:






Fleiri fréttir

Sjá meira


×