Slæmt tap Real

Anton Ingi Leifsson skrifar
Kroos svekktur.
Kroos svekktur. David S. Bustamante/Getty

Real Madrid er nánast úr leik í baráttunni um spænska meistaratitilinn eftir 2-1 tap liðsins gegn Levante á heimavelli í kvöld.

Real var fyrir leikinn sjö stigum á eftir grönnunum í Atletico Madrid sem á einnig tvo leiki til góða og ekki skánaði ástandið eftir leik dagsins.

Það byrjaði ekki vel fyrir Real á heimavelli því Eder Militao fékk rautt spjald strax á níundu mínútu. Fjórum mínútum síðar komust þeir þó yfir með marki Marcos Asensio.

Jose Luis Morales kom þeim yfir á 32. mínútu og þeir fengu gullið tækifæri á 64. mínútu til að komast yfir en Roger klúðraði þá vítaspyrnu.

Hann bætti þó upp fyrir það því hann tryggði Levante sigurinn með marki tólf mínútum fyrir leikslok. Lokatölur 2-1.

Real er í öðru sætinu með 40 stig en Levante er í níunda sætinu með 26 stig.


Spænski boltinn, La Liga, er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. La Liga er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira