Innlent

Út­boðs­gjald á inn­fluttar land­búnaðar­vörur hækkar um allt að 2.840 prósent

Heimir Már Pétursson skrifar
Fyrir jól kynntu margar matvöruverslanir lækkað verð á innfluttum kjötvörum frá Evrópusambandinu sem voru með lægra útboðsgjaldi en nú hefur tekið gildi.
Fyrir jól kynntu margar matvöruverslanir lækkað verð á innfluttum kjötvörum frá Evrópusambandinu sem voru með lægra útboðsgjaldi en nú hefur tekið gildi. Stöð 2/Arnar

Dæmi eru um að útboðsgjald vegna innflutnings á landbúnaðarafurðum innan tollakvóta Evrópusambandsins hafi tuttugu og níu faldast eftir að eldri álagning var tekin upp á ný um áramót. Framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda segir þessar hækkanir skila sér út í verðlagið bæði á innfluttum og innlendum landbúnaðarvörum.

Rétt fyrir jól samþykkti Alþingi frumvarp landbúnaðarráðherra þar sem horfið var frá nýlegum breytingum á gjaldi á innfluttar landbúnaðarvörur innan tollakvóta frá Evrópusambandinu. Nú er kvótunum úthlutað til hæstbjóðenda en ný aðferð á síðasta ári studdist við jafnvægisverð sem lækkaði álögur töluvert.

Ólafur Stephensen segir að það hafi verið meðvituð ákvörðun hjá landbúnaðarráðherra að hækka matarverð á Íslandi með breytingum á álögum á tollkvóta.Vísir/Vilhelm

Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda segir niðurstöður fyrsta útboðsins á þessu ári hafa verið kynntar í dag.

„Þær sýna náttúrlega að það gengur eftir sem við höfðum áhyggjur af. Því miður hækkar útboðsgjaldið í mörgum tilvikum gríðarlega. Til dæmis um 65 prósent á nautakjötskvóta og115 prósent á lífrænum kjúklingi. Tuttugu og níu faldast á innfluttum hráskinkum og öðru slíku.“ Eða um tvöþúsund áttahundruð og fjörutíu prósent.

Grafík/HÞ

Ólafur segir þetta leiða til hækkunar á verði innfluttrar landbúnaðarvöru.

„Í skjóli þess verður innlend vara líka dýrari. En ég er hræddur um að það hafi allan tímann verið meiningin. Það hafi verið ætlun landbúnaðarráðherrans að hækka hérna matarverð meðvitað,“ segir Ólafur.

Landbúnaðarráðherra sagði breytt fyrirkomulag í fyrra hins vegar ekki hafa tryggt lækkun vöruverðs þar sem lækkanir á verði vörunnar í Evrópu hafi ekki skilað sér til neytenda.

„Við erum bara alveg ósammála þeirri greiningu. Ég held að skýrsla Alþýðusambandsins til dæmis sem var unnin á matarverði og afleiðingum af tollasamningi við Evrópusambandið og þessari nýju útboðsaðferð hafi einmitt sýnt að þetta skilaði sér,“ segir Ólafur Stephensen.


Tengdar fréttir

Meirihluti atvinnuveganefndar bakkar í tollkvótamálinu

Meirihluti atvinnuveganefndar hefur fallið frá fyrri tillögu sinni um auknar álögur á tollkvóta á innfluttar landbúnaðarvörur frá evrópusambandsríkjunum í þrjú ár og leggur nú til að álögurnar verði auknar um eitt og hálft ár.

Utanríkisráðherra fer fram á endurskoðun tollasamninga við ESB

Utanríkisráðherra hefur formlega óskað eftir því við Evrópusambandið að tollasamningur Íslands og sambandsins um landbúnaðarvörur verði endurskoðaður. Þá hafa Bretar og Íslendingar gert með sér nýjan loftferðasamning sem tryggir flugsamgöngur milli þjóðanna til framtíðar.

Sakar þingmenn um að taka sérhagsmuni framyfir hagsmuni neytenda

Verð á innfluttum landbúnaðarvörum frá ríkjum Evrópusambandsins mun að öllum líkindum hækka töluvert í verði upp úr áramótum vegna lagabreytinga sem verið er að ganga frá á Alþingi. Fjölmörg samtök leggjast gegn breytingunni en hún er rökstudd með stuðningi við innlendan landbúnað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×