Skoðun

Ríkis­bankar, bankar í einka­eigu – Ríkis­á­byrgðir?

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar

Nú ætlar ríkið að selja Íslandsbanka en ætlar þó að eiga Landsbankann áfram. Það þarf varla að taka fram að ég hef áhyggjur af því að bankinn verði seldur á kostakjörum til vildarvina og að leikreglum verði á næstu árum hnikað til þannig að allri varfærni sé kastað út um gluggann í nafni viðskiptatækifæra. En það er annað sem ég er að hugsa þessa stundina og það er einmitt að ríkið ætlar að selja einn af bönkunum en ekki báða.

Banki sem ríkið selur er kominn í einkahendur. Skuldbindingar bankans eru hans en ekki ríkisins að standa við. Svo hvað mun gerast ef og þegar næsta hörmung dynur yfir okkur Íslendinga og bankarnir standa á brauðfótum? Þegar næsta Icesave ber að garði? Mun ríkið ábyrgjast innistæður í Landsbankanum og leyfa Íslands- og Arionbanka að sjá um sig sjálfir? Eða mun vera gert vel við alla innistæðueigendur á kostnað skattgreiðenda? Ég á allaveganna erfitt að sjá fyrir mér að þáverandi forsætisráðherra muni senda út yfirlýsingu til hálfrar þjóðarinnar „Ykkur var nær, þið hefðuð átt að vera í Landsbankanum!“. Fáum við einhverja staðfestingu frá ríkisstjórninni þess eðlis að ekki verði veitt bönkum í einkaeigu nein ríkisábyrgð eða aðstoð?

Í stjórnarsáttmálanum segir „Eignarhald ríkisins á fjármálafyrirtækjum er það umfangsmesta í Evrópu og vill ríkisstjórnin leita leiða til að draga úr því. Ljóst er þó að ríkissjóður verður leiðandi fjárfestir í að minnsta kosti einni kerfislega mikilvægri fjármálastofnun“. Það þýðir að stefnan er ekki sett á að einkavæða allt kerfið aftur, Landsbankanum á að halda hjá ríkinu. En hver er þá hugsunin á bak við kerfið. Ég er ekki að tala um hugsunina að það sé flott að fá nokkra aura í kassann akkurat núna, ég er að tala um til langtíma. Af hverju að hafa bankakerfi sem er sirka þriðjung í ríkisrekstri og rest í einkarekstri? Er hugsunin að hafa einn ríkisbanka til að veita einkareknu bönkunum smá aðhald í okrinu? Er hugsunin kannski að við viljum ríkisbanka og að ríkið muni alltaf á endanum hlaupa undir bagga en það sé samt vissara að leyfa nokkrum vel völdum að græða svoldið líka? Af hverju þetta hálfkák?

Er ekki nær að ákveða hvort okkur finnist að bankastarfsemi (ekki fjárfestingabanka) sé grunnþjónusta sem við viljum að sé í öruggum höndum hjá ríkinu eða ekki? Við erum búin að prufa að einkavæða allt bankakerfið og ákváðum þegar á hólminn var komið að ríkið skildi heldur betur borga brúsann. Nú er komið að umferð tvö, samt bara að tveim þriðju leiti. Allaveganna svona fyrst um sinn.

Höfundur er Pírati og býður sig fram í prófkjöri Pírata í Reykjavík 2021.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×