Skoðun

Mælt fyrir miklum kjara­bótum ör­yrkja og aldraðra

Inga Sæland skrifar

Í dag mæli ég fyrir frumvarpi á Alþingi um breytingar á lögum um almannatryggingar og ýmsum öðrum lögum sem miða að því að stórbæta stöðu örorku- og ellilífeyrisþega. Breytingarnar eru í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar sem mynduð var fyrir 100 dögum.

Mikilvægasta breytingin er að lagt er til að lífeyrisgreiðslur almannatrygginga fylgi þróun launavísitölu í stað þess að taka mið af almennri launaþróun.

Með því að festa í lög að greiðslur almannatrygginga hækki í samræmi við þróun launavísitölu er stefnt að því að lífeyrisgreiðslur fylgi betur almennri kjaraþróun á vinnumarkaði. Þannig er tryggt að lífeyrisþegar dragist ekki aftur úr í kaupmætti. Áfram verður stuðst við hækkanir vegna vísitölu neysluverðs ef sú vísitala hækkar meira en launavísitala

Bætir kjör mikils meirihluta fólks

Ef litið er til meðaltals hækkana almannatrygginga og launavísitölu frá árinu 2016 til ársins 2024 er hækkun launavísitölu að lágmarki um eitt komma eitt prósent umfram hækkun almannatrygginga. En þegar horft er til að hækkun verði aldrei minni en á verðlagi er meðaltalshækkun launavísitölu umfram fjárhæðir almannatrygginga eitt komma sex prósent.

Verði frum­varpið að lögum gagnast þetta öllum sem fá greiðslur frá almannatryggingum og tryggir þeim að jafnaði meiri hækkanir en kjarasamningar kveða á um. Þannig mun breytt fyrirkomulag hægt og bitandi vinna upp uppsafnaða kjaragliðnun almannatrygginga. Þessi breyting mun skila mikilvægri kjarabót til allra lífeyrisþega almannatrygginga. Um síðustu mánaðamót voru þetta um sextíu og fimm þúsund manns.

Öryrkjar halda réttindum við eftirlaunaaldur

Önnur mikilvæg breyting er að aldursviðbót þeirra örorkulífeyrisþega sem hafa uppfyllt skilyrði fyrir henni falli ekki niður á tímamótum þegar örorku­lífeyrisþegi nær ellilífeyrisaldri heldur fylgi ellilífeyrinum. Það þýðir að þau sem eiga engin eða mjög takmörkuð atvinnutengd réttindi til ellilífeyris vegna þess að þau voru ung metin til örorku munu áfram njóta stuðnings með viðbótargreiðslu, nái frumvarpið fram að ganga.

Um er að ræða ívilnandi ákvæði sem bætir fjárhagslega stöðu þeirra sem uppfylla skilyrði fyrir því að fá greidda aldursviðbót í því nýja greiðslukerfi örorkulífeyris sem tekur gildi 1. september á þessu ári.

Fylgst með framgangi nauðsynlegrar þjónustu

Til viðbótar eru lagðar til tvær aðrar breytingar. Lagt er til að Tryggingastofnun haldi skrá á landsvísu með upplýsingum frá þjónustuaðilum um framvindu meðferðar og endurhæfingar einstaklinga. Skránni er ætlað að tryggja nauðsynlega yfirsýn yfir þjónustu og stuðla að samfellu í þjónustu og greiðslum.

Með öðrum orðum þá er breytingunni ætlað að tryggja að haldið sé utan um þessar mikilvægu upplýsingar til að þær get nýst til að stuðla að því að einstaklingar fái rétta endurhæfingarþjónustu, á réttum stað og á réttum tíma. Persónuauðkenni í skránni verða dulkóðuð til að tryggja friðhelgi einkalífs.

Enn fremur felur frumvarpið í sér að stjórn Tryggingastofnunar verði lögð niður. Tryggingastofnun hefur haft sérstaka stjórn frá árinu 2004. Skipun síðustu stjórnar rann út í nóvember sl., eða við lok síðasta kjörtímabils. Sú staða hefur ekki haft áhrif á starfsemi stofnunarinnar enda er yfirstjórnarhlutverk ráðherra skýrt samkvæmt lögum og því ekki ástæða til að hafa sérstaka stjórn með óljóst hlutverk yfir stofnunni. Þess vegna er lagt til að fella ákvæði um stjórnina brott úr lögunum.

Höfundur er félags- og húsnæðismálaráðherra og formaður Flokks fólksins.




Skoðun

Sjá meira


×