Fótbolti

Suarez hetja Atletico Madrid í dramatískum sigri

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Luis Suarez í leiknum í dag.
Luis Suarez í leiknum í dag. vísir/Getty

Atletico Madrid komst í hann krappann en vann dramatískan sigur á Deportivo Alaves í spænsku úrvalsdeildinni í dag.

Marcos Llorente kom gestunum yfir seint í fyrri hálfleik þegar hann skoraði eftir sendingu frá Luis Suarez. 

Eftir klukkutíma leik vænkaðist hagur gestanna enn frekar þegar Victor Laguardia, leikmaður Alaves, fékk að líta rauða spjaldið.

Manni fleiri tókst Atletico þó ekki að halda forystunni því Felipe dúndraði boltanum í eigið net á 84.mínútu og staðan orðin jöfn.

Luis Suarez tók þá til sinna ráða skoraði eftir góðan undirbúning Joao Felix á 89.mínútu það sem reyndist sigurmark leiksins. Lokatölur 1-2 og tróna lærisveinar Diego Simeone á toppi deildarinnar þrátt fyrir að eiga tvo leiki til góða á næstu lið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×