Börsungar mörðu botnliðið á útivelli

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Sigurmarkinu fagnað.
Sigurmarkinu fagnað. vísir/Getty

Barcelona byrjar nýtt ár á sigri í spænsku úrvalsdeildinni en ekki var mikill glæsibragur yfir spilamennsku liðsins.

Börsungar heimsóttu Huesca sem vermir neðsta sæti spænsku úrvalsdeildarinnar um þessar mundir og hefur aðeins unnið einn leik á tímabilinu.

Eina mark leiksins kom eftir hálftíma leik. Það gerði hollenski miðjumaðurinn Frenkie De Jong eftir sendingu frá Lionel Messi.

Barcelona er í 5.sæti deildarinnar, tíu stigum á eftir toppliði Atletico Madrid sem hefur leikið einum leik færra en Börsungar.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira