Innlent

Sendi­ferða­bíll keyrði í veg fyrir mótor­hjól

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Lögreglustöðin á Akureyri
Lögreglustöðin á Akureyri Vísir/Vilhelm

Um hádegið var tilkynnt um umferðarslys við Þórustaði í Eyjafjarðarsveit þar sem sendibifreið og mótorhjól lentu saman. Ökumaður mótorhjólsins var sagður hafa kastast af hjólinu talsverða vegalengd eftir að sendibifreiðinni hafði verið ekið í veg fyrir hjólið.

Einn maður var í sendibifreiðinni og kenndi hann ekki til eymsla eftir áreksturinn. Ökumaður mótorhjólsins var fluttur með sjúkrabifreið á sjúkrahúsið á Akureyri. Hinn slasaði var með meðvitund þegar hann var fluttur á sjúkrahúsið en ekki er vitað um líðan hans að svo stöddu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×