Innlent

Fáar breytingar á stjórn Ríkisútvarpsins

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Höfuðstöðvar Ríkisútvarpsins við Efstaleiti.
Höfuðstöðvar Ríkisútvarpsins við Efstaleiti. Vísir/vilhelm

Alþingi hefur tilnefnt þá níu einstaklinga sem skipa munu þorra stjórnar Ríkisútvarpsins. Auk þeirra voru tilnefndir níu varamenn á þingfundi nú síðdegis. Þau tilnefndu sátu flest þegar í stjórn Ríkisútvarpsins en Jóhanna Hreiðarsdóttir og Björn Gunnar Ólafsson koma þar ný inn, verði tilnefningarnar samþykktar á aðalfundi í apríl. Þau höfðu bæði verið varamenn áður. Kári Jónasson, fyrrverandi stjórnarformaður, og Birna Þórarinsdóttir kveðja stjórnina.

Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, las upp tilnefningarnar í þingsal rétt fyrir klukkan fjögur. Þær voru framreiddar á tveimur listum, sem Steingrímur flokkaði sem A og B. Tilnefningarnar voru sem fyrr segir samþykktar því ekki voru fleiri einstaklingar tilnefndir en þeir níu sem Alþingi ber að útnefna.

Listann yfir þau sem samþykkt voru má lesa hér að neðan.

Listi A Aðalmenn:

Ragnheiður Ríkharðsdóttir

Jón Ólafsson

Brynjólfur Stefánsson

Elísabet Indra Ragnarsdóttir

Jóhanna Hreiðarsdóttir

Varamenn:

Jón Jónsson

Bragi Guðmundsson

Sjöfn Þórðardóttir

Marta Guðrún Jóhannesdóttir

Jónas Skúlason

Listi B Aðalmenn:

Mörður Árnason

Guðlaugur G. Sverrisson

Lára Hanna Einarsdóttir

Björn Gunnar Ólafsson

Varamenn:

Margrét Tryggvadóttir

Sigríður Valdís Bergvinsdóttir

Mörður Áslaugarson

Kolfinna Tómasdóttir

Auk þeirra tilnefna starfsmannasamtök Ríkisútvarpinu einnig einn mann og annan til vara í stjórnina. Stjórnin kemur sér svo saman um formann og varaformann á fyrsta fundi sínum.

Reynt hefur á stjórn Ríkisútvarpsins í hinum ýmsu málum, ekki hvað síst þegar kom að ráðningu útvarpsstjóra. Stjórnin sætti gagnrýni fyrir að birta ekki lista yfir umsækjendur auk þess sem kærunefnd jafnréttismála er með tvær kærur til meðferðar vegna ráðningarinnar.

Stjórn Ríkisútvarpsins greindi síðar frá ráðningarferlinu og rökstuðningi fyrir ráðningu Stefáns í starfið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×