Stjórnarandstaðan segir slegið á útrétta hönd hennar Heimir Már Pétursson skrifar 31. mars 2020 11:50 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, og Þorsteinn Víglundsson, varaformaður Viðreisnar, eru í framlínunni hjá stjórnarandstöðunni. Vísir/Vilhelm
Helmingur allra framkvæmda sem ráðist verður í það sem eftir lifir árs vegna aðgerða stjórnvalda verða í samgöngum og viðhaldi og endurbótum fasteigna hins opinbera. Stjórnarandstaðan gagnrýnir að ekki hafi verið fallist á neitt af því sem hún lagði til við afgreiðslu mála í gærkvöldi. Fimm stjórnarfrumvörp varðandi aðgerðir og viðbrögð stjórnvalda við mikilli niðursveiflu í efnahags- og atvinnulífi urðu að lögum í gærkvöldi og þingsályktunartillaga um viðbótarframkvæmdir ríkisins á þeim níu mánuðum sem eftir eru af árinu var sömuleiðis samþykkt. Fé til framkvæmdanna var hækkað úr 15 milljörðum í tæpa 18 milljarða í meðförum þingsins en allar sameiginlegar breytingartillögur stjórnarandstöðunnar sem hefðu tvöfaldað framlögin voru felldar. Hér má sjá þær breytingar sem meirihluti fjárlaganefndar gerði á framlögum til einstakra framkvæmda í aðgerðum ríkisstjórnarinnar.Vísir/Grafík Mestu munar um framlög til samgöngumannvirkja upp á 6,5 milljarða og viðhald og endurbætur fasteigna upp á 2,5 milljarða, en samanlagt fá þessir liður 50 prósent af öllu viðbótar framkvæmdafé á árinu. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir þingflokksformaður Vinstri Grænna segir að ríkisstjórnin muni fylgjast með þróun mála og bæta í framlög til framkvæmda ef þurfa þyki.Vísir/Vilhelm Bjakey Olsen Gunnarsdóttir þingflokksformaður Vinstri grænna fór með rulluna við atkvæðagreiðslur á Alþingi í gærkvöldi sem hefur verið rauði þráðurinn í málflutningi stjórnarflokkanna við afgreiðslu þessarra mála. „Samgöngumálin fá stóran hlut hér enda um að ræða verkefni sem eru tilbúin og eru um land allt. Gríðarleg innspýting í hagkerfið sem er nauðsynleg en um leið mikilvægt að taka þetta í skrefum og vera viss um að við séumað setja fjármuni þar sem þeir komast fljótt og örugglega í vinnu. Segi það enn og aftur; við erum ekki að ljúka neinu heldur komum til með að fylgjast með því hvernig staðan þróast á næstu vikum og grípum inní ef þurfa þykir,“ sagði Bjarkey Olsen. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins mælti fyrir hönd allra stjórnarandstöðuflokkanna þegar hann sagði ríkisstjórnina ekki vera að gera nóg til að mæta samdrætti í efnhags- og atvinnulífi.vísir/vilhelm Stjórnarandstaðan varaði ríkisstjórnina við því að gera of lítið nú strax og reyndi að höfða til hennar með vísan í það sem fjármálaráðherra hefur margoft ítrekað; að skynsamlegt sé að gera meira en minna. Enda séu horfur á mun meiri samdrætti í framkvæmdum einkaaðila en ríkisstjórnin geri ráð fyrir. „Það þarf að grípa inn í nú strax með miklu miera afgerandi hætti en raun ber vitni. Stjórnarandstaðan lagði fram lista af tillögum, ekki óskalista hvers flokks um sig, heldur tillögur sem voru þess eðlis að það væri hægt að ráðast í þær strax. Þær væru til þess fallnar að bæta við tillögur ríkisstjórnarinnar á augljósan hátt. Með aðgerðum sem er brýn þörf á,“ sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins og mætli þar fyrir hönd allra stjórnarandstöðuflokkanna. Fimm frumvörp urðu að lögum og Alþingi samþykkti þingsályktunartillögu í gærkvöldi um viðbótarframlög til framkvæmda á þessu ári upp á tæpa 18 milljarða króna.Vísir/Frikki Oddný G. Harðardóttir þingflokksformaður Samfylkingarinnar minnti á að atvinnuleysi væri nú þegar komið í fimm prósent og 14 prósent á Suðurnesjum. Þá vildu stjórnarandstöðuflokkarnir, sem samþykktu allar tillögur stjórnarflokkanna, bæta fjármunum í atvinnuskapandi verkefni í græna hagkerfinu og til rannsókna, nýsköpunar og skapandi greina. Þar væri fjöldi verkefna sem væri hægt að fara í strax og myndu fremur en vegaframkvæmdir og viðhald bygginga skapa störf fyrir konur. En samkvæmt dekkri sviðsmynd Seðlabankans frá því á miðvikudag í síðustu viku verður atvinnuleysi allt að 7 prósent á þessu ári og hafa margir málsmetandi aðilar fullyrt að sú sviðsmynd sé allt of hógvær. Enda búist við fjöldauppsögnum í dag til viðbótar við þær sem þegar hefur verið tilkynnt um.
Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Alþingi Vinnumarkaður Tengdar fréttir Mikilvæg uppbygging í þágu heimilislausra Margir hafa réttilega lýst yfir áhyggjum af stöðu heimilislausra á þessum viðsjárverðu tímum. Þeir sem eiga hvergi heima geta ekki fylgt fyrirmælum um að halda sig heima og tilheyra auk þess mörg áhættuhópum sem setja þau í viðkvæma stöðu. 31. mars 2020 11:30 Aðgerðapakki ríkisstjórnarinnar vegna kórónuveirunnar samþykktur Alþingi samþykkti í kvöld aðgerðapakka ríkisstjórnarinnar vegna kórónuveirufaraldsins. Aðgerðirnar sem samþykktar voru hljóða upp á tæplega 26 milljarða króna. 30. mars 2020 22:05 Mest lesið Mexíkó og Kanada svara tollum Trump með sínum eigin Erlent Segir ljóst að Sigurjón skorti hæfi Innlent Kennarar með viðbótarkröfur og fundi frestað Innlent Ók á móti umferð á flótta frá lögreglunni Innlent Hviður yfir 40 metra á sekúndu á morgun Veður Pálína 84 ára stendur vaktina alla daga á Landvegamótum Innlent Klakastykki stórskemmdi bíl Innlent Hagræðingartillögur, styrkir til flokkanna og Grænland á Sprengisandi Innlent Allir farþegarnir látnir Erlent Íslendingar fá leiðbeiningar um viðbrögð við stríði Innlent Fleiri fréttir Hvað þýðir tollastríð Trumps fyrir Ísland? Hagræðingartillögur, styrkir til flokkanna og Grænland á Sprengisandi Ók á móti umferð á flótta frá lögreglunni Segir ljóst að Sigurjón skorti hæfi Ógnaði fólki með barefli í bænum Pálína 84 ára stendur vaktina alla daga á Landvegamótum Kennarar með viðbótarkröfur og fundi frestað Klakastykki stórskemmdi bíl Áfram óvissustig á Austfjörðum en aflétt á Vesturlandi Ærandi þögn í Karphúsinu, fangaskipti og biðlistar sem lengjast Íslendingar fá leiðbeiningar um viðbrögð við stríði Viðræður á viðkvæmu stigi og fjölmiðlafólki hent út Loðnuleitin skilaði enn lægri mælingu og engar veiðar ráðlagðar Annasamt hjá björgunarsveitum vegna ofsaveðurs Landsvirkjun leitar að gistingu á Suðurlandi Óskandi að hægt væri að ljúka deilunni í dag Nokkur krapaflóð fallið yfir vegi og óvissustig vegna flóðahættu Baráttukonur minnast Ólafar Töru Bæjarskrifstofur og heimili rýmd „Búið að vera mjög mikið að gera síðasta sólarhringinn“ Vatnsleki, fjúkandi þakplötur og ófærir ökumenn Óttast að Evrópuför ríkisstjórnarinnar endi sem bjölluat Stórir pollar leika bílstjóra grátt Hellisheiði opin á ný Vonskuveður framundan Gunnar Bragi starfsmaður Miðflokksins Um hundrað manns dvelja í Grindavík Snjóflóð féllu hjá Ólafsvík Sveitarfélögin samþykkja innanhússtillögu ríkissáttasemjara „Borgin átti að vita þetta fyrir löngu, löngu síðan“ Sjá meira
Mikilvæg uppbygging í þágu heimilislausra Margir hafa réttilega lýst yfir áhyggjum af stöðu heimilislausra á þessum viðsjárverðu tímum. Þeir sem eiga hvergi heima geta ekki fylgt fyrirmælum um að halda sig heima og tilheyra auk þess mörg áhættuhópum sem setja þau í viðkvæma stöðu. 31. mars 2020 11:30
Aðgerðapakki ríkisstjórnarinnar vegna kórónuveirunnar samþykktur Alþingi samþykkti í kvöld aðgerðapakka ríkisstjórnarinnar vegna kórónuveirufaraldsins. Aðgerðirnar sem samþykktar voru hljóða upp á tæplega 26 milljarða króna. 30. mars 2020 22:05