Innlent

Lygilegur land­flótti söng­elskra sveita­manna endaði í sjálf­skipaðri sótt­kví

Eiður Þór Árnason skrifar
Karlakórinn Hreimur á góðri stundu.
Karlakórinn Hreimur á góðri stundu. Aðsend

Kórferð norðlensks karlakórs til Póllands breyttist skyndilega í kapphlaup við tímann þegar hópurinn þurfti að flýja landið vegna viðbragða stjórnvalda við kórónuveirufaraldrinum.

Mikið gekk á en ferðalöngunum tókst naumlega að koma sér yfir til Þýskalands og síðan heim til Íslands fyrr en áætlað var. Skipuleggjandi segir að fólk eigi að fara varlega í að dæma þá sem veikjist eða fari í sóttkví.

Karlakórinn Hreimur sem er starfræktur í Þingeyjarsýslu á Norðurlandi fór til Póllands þann 10. mars síðastliðinn og var fyrirhugað að keppa þar á kórmóti og koma fram á tónleikum. Plönin voru þó fljót að breytast þegar kórónuveiran alræmda fór að minna á sig.

Allt úr skorðum á nokkrum sólarhringum

Patrycja Maria Reimus átti stóran þátt í því að skipuleggja ferðina og fór fyrr út ásamt kærastanum Hrannari Guðmundssyni, sem er meðlimur í kórnum, barni og tengdamóður til að heimsækja skyldmenni sín. Þegar þau komu til Póllands voru þar engin staðfest kórónuveirusmit að sögn Patrycju sem ræddi ferðina við Vísi.

Tveimur dögum fyrir brottför var helmingur kórsins hættur við að fara í ferðina og í kjölfarið var horfið frá því að taka þátt í kórmótinu.

Restin fór þó út en stuttu eftir komuna til Póllands var öllum fyrirhuguðum tónleikunum aflýst þegar sex smit voru staðfest í landinu.

Þá voru góð ráð dýr og gripið til þess ráðs að breyta ferðinni í skemmtiferð. Kórfélagarnir og makar þeirra heimsóttu meðal annars heimabæ Patrycju og fóru í ýmsar skoðanaferðir.

Patrycja Maria Reimus með kærastanum Hrannari Guðmundssyni ásamt Emmu litlu sem var með í för.Aðsend

Landinu lokað með sólarhrings fyrirvara

Ekki var lengi lognmolla yfir hópnum þar sem á föstudeginum 13. mars, þremur dögum eftir komu þeirra til landsins, gripu pólsk stjórnvöld til stórra aðgerða vegna veirunnar.

„Við vorum lokuð inni á hóteli, veitingastaðir lokaðir og ekki máttum við borða saman í sal hótelsins. Allt í einu átti að loka landinu og fengum við einungis 24 tíma fyrirvara, ekkert flug fékkst fyrir okkur frá Póllandi beint og ekkert flugfélag tilbúið að koma upp flugi.“

Þá hófst skyndilegur landflótti þessa 43 manna hóps enda nokkuð í flugið þeirra heim þann 17. mars. Fljótlega var því flugi aflýst og Patrycja kom sér í samband við íslenska utanríkisráðuneytið, sendiráð Íslands í Berlín, ræðismann Íslands í Póllandi og pólska sendiráðið á Íslandi.

Alls staðar fékk hún þau skilaboð að það eina í stöðunni væri að flýja yfir til Þýskalands og fljúga áfram heim. Brösuglega gekk að bóka nýtt flug þar sem erfitt reyndist að komast að í söluveri Icelandair vegna anna.

Fyrir tilstuðlan vinkonu Patrycju sem starfar hjá félaginu tókst henni þó loks að komast í samband við skrifstofu. Við tók langt símtal þar sem hún las inn upplýsingar allra 43 ferðalanganna og kortaupplýsingar.

Þurftu að finna bílstjóra sem var til í að fara í sóttkví

Næsta mál var að finna bílstjóra sem var tilbúinn að keyra hópinn í tíu tíma yfir til Þýskalands á flugvöll í Berlín. Það gekk erfiðlega í ljósi aðstæðna en hver sá sem myndi taka verkefnið að sér þyrfti í kjölfarið að fara í sóttkví.

Rútubílstjórinn sem hafði keyrt þau fram að þessu bauðst að endingu sjálfur til þess að koma hópnum yfir landamærin.

Hópurinn reyndi að njóta lífsins þrátt fyrir hamaganginn.Aðsend

Þurftu ekki að fara í sóttkví

Sama dag og þau komu til Þýskalands fréttu þau svo að landið væri komið á lista sóttvarnarlæknis yfir hááhættusvæði. Allir sem kæmu þaðan til Íslands þyrftu nú að fara í tveggja vikna sóttkví.

Ferðalangarnir ákváðu að taka þeim fregnum með mesta æðruleysi.

„Þannig að við ákváðum bara fyrir fram að við myndum öll fara saman í sóttkví og styðja hvert annað. Þetta væri enginn heimsendir. Við erum flest bændur hérna, getum alveg gert það og farið í göngutúra og svona.“

Það kom því hópnum á óvart þegar þeim var tilkynnt af Embætti landlæknis og almannavörnum við heimkomuna á sunnudag að þau þyrftu ekki að fara í sóttkví í ljósi þess að þau voru innan við sólarhring í Þýskalandi.

Sögusagnir um það að þau hafi komið sér undan sóttkví

Patrycja segir að þau hafi samt ákveðið að halda sig til hlés, fara saman norður og eiga samneyti við sem fæsta utan hópsins. Flestir ákváðu þrátt fyrir tilmæli landlæknis að fara í sóttkví af tillitsemi við aðra og er Patrycja og fjölskylda þar á meðal.

Henni fannst því miður þegar sögusagnir fóru af stað um það að hópurinn hafi reynt að koma sér undan sóttkví og tekist það með því að hringja öll sem eitt í heilbrigðisyfirvöld og „væla nógu mikið.“

Slíkt gæti þó ekki verið fjarri sannleikanum.

„Mér finnst bara leiðinlegt að fólk er ekkert búið að kynna sér þetta heldur, hvernig það er að vera í sóttkví. Þú mátt vera á rúntinum, þú mátt alveg lifa lífinu, þú mátt vera með fjölskyldunni.“

Svo skilaboðin eru kannski líka að fólk eigi að fara varlega í að dæma fólk sem sé í sóttkví eða finnst að eigi að vera í sóttkví?

„Já, ég hef líka hitt fólk sem er búið að læknast af þessari kórónuveiru og fólk vill ekki hitta þau. Þótt við séum í sóttkví þá þýðir það ekki að eftir tvær vikur þá megi fólk ekki hitta okkur.“

Hún segir hópinn þó fyrst og fremst reyna að standa saman og gleðjast yfir því að vera kominn heim.


Tengdar fréttir

Segir erfitt að koma sér yfir landamæri Póllands

Pólsk stjórnvöld hafa stoppað flug til og frá landinu og almenningssamgöngur í borgum og bæjum eru að leggjast af að mestu leyti. Landamærum Póllands verður lokað á morgun




Fleiri fréttir

Sjá meira


×