Innlent

Lækka laun bæjarfull­trúa og tak­marka opnunar­tíma í sundi til að borga kennurum

Kjartan Kjartansson skrifar
Með hagræðingaraðgerðunum í Kópavogi verður aðeins önnur af tveimur sundlaugum sveitarfélagsins opin á rauðum dögum í stað beggja áður.
Með hagræðingaraðgerðunum í Kópavogi verður aðeins önnur af tveimur sundlaugum sveitarfélagsins opin á rauðum dögum í stað beggja áður. Vísir/Vilhelm

Meirihlutinn í bæjarstjórn Kópavogs samþykkti 670 milljóna króna hagræðingaraðgerðir til þess að mæta launahækkunum kennara í gærkvöldi. Laun kjörinna fulltrúa verða meðal annars lækkuð, opnunartími í sundlaugar verður skertur og sumarstörfum fækkar.

Flest sveitarfélög á landinu skoða nú hvernig þau eigi að standa undir launahækkunum sem samið var um við leikskóla- og grunnskólakennara í vetur sem voru umfram þær sem þau gerðu upphaflega ráð fyrir.  Fjárhagsgatið í Kópavogi nam 670 milljónum króna. 

Meirihluti Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins samþykkti hagræðingaraðgerðir á bæjarstjórnarfundi í gærkvöldi. Fundargerð hefur enn ekki verið birt á vefsíðu bæjarins en Andri Steinn Hilmarsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, skrifar á Facebook-síðu sína að á meðal aðgerða sé lækkun launa kjörinna fulltrúa, launafrysting æðstu stjórnenda bæjarins og skipulagsbreytingar í stjórnsýslunni. Þá verða sjálfvirkar endurráðningar stöðvaðar nema með rökstuddum undanþágum.

Fulltrúar minnihlutans höfðu gagnrýnt að ekki stæði til að lækka laun Ásdísar Kristjánsdóttur, bæjarstjóra, nema að hluta. Hún fær bæði laun sem kjörinn bæjarfulltrúi og sem bæjarstjóri. Andri Steinn segir að laun Ásdísar sem kjörinn fulltrúi lækki og að kjör hennar sem framkvæmdastjóri sveitarfélagsins verði fyrst fram í júlí 2026 líkt og annarra lykilstjórnenda. Það feli í sér raunlækkun launa yfir tímabilið.

Ein sundlaug af tveimur opin á rauðum dögum

Bærinn ætlar einnig að selja eða leigja út Geðræktarhúsið, sem er gamla Hressingarhælið, og draga úr aðkeyptri þjónustu. Launaáætlun leikskóla hefur verið uppfærð vegna minni yfirvinnu í samræmi við breyttar áherslur Kópavogsmódelsins svonefnda. Módelið felur í sér að sex tíma leikskóladvöl er gjaldfrjáls í bænum en foreldrar hafa þurft að greiða meira en áður fyrir lengri dvöl.

Hluti hagræðingarinnar felst einnig í auknum tekjum, meðal annars vegna hærra útsvars kennara og hækkandi framlags úr jöfnunarsjóði sveitarfélaga.

Andri Steinn segir að bæjarbúar verði lítið varir við flestar breytingarnar. Undantekning á því sé meðal annars að aðeins önnur tveggja sundlauga sveitarfélagsins verði opin á rauðum dögum í stað beggja áður, sumastörfum fækki líttilega og gjaldskrár sumarsnámskeiða hækki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×