Atvinnulíf

Ráðningar og auglýst störf: Ekki algjört frost í ráðningum

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Jakobína H. Árnadóttir sviðstjóri ráðninga hjá Capacent og Sverrir Briem ráðgjafi og einn eigandi Hagvangs.
Jakobína H. Árnadóttir sviðstjóri ráðninga hjá Capacent og Sverrir Briem ráðgjafi og einn eigandi Hagvangs. Vísir/Vilhelm

Fyrirtæki eru í óvissu og umsóknir um atvinnuleysisbætur hrannast upp hjá Vinnumálastofnun. Ráðgjafar Capacent og Hagvangs telja þó ekki að algjör stöðnun sé framundan í ráðningum. Hið opinbera er til dæmis í sterkri stöðu þar sem rekstraröryggi þeirra aðila er jákvætt. Í einkageiranum hefur hægt á en þar liggur styrkleikinn í sveigjanleikanum og hversu opinn markaðurinn er fyrir nýjungum.

Vísir leitaði til Jakobínu Hólmfríðar Árnadóttur sviðstjóra ráðninga hjá Capacent og Sverris Briem ráðgjafa og einn af eigendum Hagvangs og spurði um stöðuna í ráðningum um þessar mundir. 

Spurt var:

Eru fyrirtæki farin að draga að sér höndum með ráðningar, jafnvel hætt við ráðningar sem voru í bígerð?

Hið opinbera í sterkri stöðu

Jakobína segir ráðgjafa hjá Capacent ekki hafa orðið vör við að hætt sé við ráðningar sem þegar hafa verið komnar á dagskrá. Hún segir allan feril þó hafa breyst því nú sé verið að keyra vinnuna áfram með fjarviðtölum og fleira.

,,Við erum öllu vön í þeim efnum og umsækjendur flestir mjög færir tæknilega,“ segir Jakobína.

Að sögn Jakobínu finna ráðgjafar Capacent fyrir því eins og aðrir að hægt hefur á atvinnulífinu. Hins vegar sé vel hægt að halda ráðningum áfram þar sem rekstraröryggi sé gott en það á þá helst við um opinbera aðila.

,,Við teljum engu að síður vel hægt að halda dampi í ráðningum ef rekstrarumhverfi fyrirtækja er jákvætt, ekki síst hjá hinu opinbera.“

Jakobína H. Árnadóttir, sviðstjóri ráðninga hjá Capasent.Vísir/Vilhelm

Styrkleiki fólginn í sveigjanleikanum

Sverrir Briem ráðgjafi og einn eigandi Hagvangs segir hægari takt en áður í ákvarðanatökum þeirra viðskiptavina. ,,Þó erum við að klára nokkrar ráðningar enda eru mismunandi ástæður fyrir því af hverju er verið að ráða,“ segir Sverrir og bætir við ,,Hvort verið sé að bæta við fólki og ráða í nýjar stöður eða hvort verið sé að ráða í aðrar stöður þar sem hreinlega vantar fólk vegna hreyfinga.“

Að sögn Sverris gerir Hagvangur ráð fyrir að hægari gangur verði á nýráðningum á komandi vikum. Ráðgjafar Hagvangs vinni nú þétt með viðskiptavinum hvað varðar þessi mál í því ástandi sem nú er.

,,Við sjáum þó ekki fram á algera stöðnun í ráðningum,“ segir Sverrir.

Sverrir segir styrkleika á íslenskum vinnumarkaði vera hversu sveigjanlegur hann er og opinn fyrir nýjungum. Sem dæmi tekur hann hvernig fyrirtæki eru að bregðast við aðstæðum í kjölfar kórónuveirunnar og heftun smitleiða.

,,Viðskiptavinir okkar eru til dæmis strax farnir að vinna með okkur í gegnum fjarfundabúnaði svo þannig getum við leyst mörg af okkar verkefnum,“ segir Sverrir og bendir á hvernig þetta eitt og sér sýni hvernig markaðurinn býr sér til ný tækifæri.

,,Þannig erum við hreinlega strax að þróa nýja möguleika í okkar vinnuferlum sem á eftir að koma að góðum notum í framtíðinni,“ segir Sverrir.

Sverrir Briem ráðgjafi og einn eigenda Hagvangs.Vísir/Vilhelm

Á vefsíðunni Alfreð má sjá í hvaða atvinnugreinum verið er að auglýsa eftir fólki. Samtals eru þar auglýst 260 störf og ef dreifing þeirra endurspeglar eitthvað í hvaða störf helst er verið að auglýsa eftir fólki eru það ýmiss þjónustustörf sem mælast hæst eða með ríflega 27% auglýstra starfa. Næst á eftir er auglýst eftir iðnaðarmönnum, eða sem samsvarar 19% auglýstra starfa.


Tengdar fréttir

Uppsagnir framundan: „Af hverju ég?“

Fólk sem lendir í uppsögnum fer í gegnum nokkur stig tilfinninga í kjölfarið. Allt frá afneitun yfir í reiði sem beinist að yfirmanninum og sorg.

Umsóknir um bætur hrannast inn

Umsóknir um atvinnuleysisbætur hrannast upp hjá Vinnumálastofnun að sögn forstjóra. Hagfræðingur gerir ráð fyrir fjölda uppsagna um mánaðarmótin. Mælt var fyrir frumvarpi á Alþingi í dag sem ætlað er að mæta þessu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×