Innlent

Mynd sýnir hvernig skriðurnar umlykja húsin á Seyðisfirði

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Að minnsta kosti þrjár skriður féllu á byggðina í gær. Myndin sýnir farveg þeirra.
Að minnsta kosti þrjár skriður féllu á byggðina í gær. Myndin sýnir farveg þeirra. Daníel Örn Gíslason

Skriðurnar sem féllu á Seyðisfirði í gær eru hugsanlega með þeim stærstu sem fallið hafa á svæðinu. Loftmynd sýnir hvernig skriðurnar umlykja hús í bænum.

Óvissustig vegna skriðuhættu er í gildi á Austurlandi og hættustig á Seyðisfirði. Stór skriða féll síðdegis í gær úr Botnabrún utan við Nautaklauf á Seyðisfirði og olli tjóni. Nokkur hús voru rýmd undir Botnabrún í innri hluta bæjarins. Þar eru rýmingar enn í gildi, en fólk hefur fengið að fara í húsin sín undir eftirliti til þess að sækja nauðsynjar.

Samkvæmt tilkynningu frá lögreglu er gert ráð fyrir að rýming verði áfram í gildi fram á morgundaginn að minnsta kosti.

Daníel Örn Gíslason hjá björgunarfélaginu Ísólfi tók loftmynd af byggðinni í morgun. Á myndinni, sem sjá má efst í fréttinni og birt er á vef Veðurstofunnar í dag, sést hvernig skriðurnar sem féllu í gær umlykja húsin.

Haft er eftir Magna Hreini Jónssyni, sérfræðingi á ofanflóðavakt á Veðurstofunni, að þekkt sé að aurskriður falli á umræddum stöðum á Seyðisfirði í gær. Hugsanlega séu skriðurnar í gær þó með þeim stærstu sem fallið hafa á svæðinu.

Sérfræðingar Veðurstofunnar hafa ekki mælt skriðurnar sem féllu en það verður gert um leið og aðstæður leyfa. Á Austfjörðum hefur verið mikil rigning síðustu vikuna og neðri hluti hlíða orðinn vatnsmettaður víða. Á Eskifirði hefur t.d. flætt vatn inn í kjallara í mörgum húsum vegna hárrar grunnvatnsstöðu.

Þar hafa einnig fallið smáskriður ofan í árfarvegi síðasta sólarhringinn. Á Seyðisfirði voru skruðningar í fjallinu fram á nótt. Það hægðist um eftir kl. 2 í nótt og gert er ráð fyrir því að það verði minni úrkoma í dag en verið hefur síðustu daga. Aftur á móti er spáð aukinni úrkomuákefð á nýjan leik í kvöld og verður talsverð rigning á morgun.


Tengdar fréttir

Von á enn meiri rigningu á Aust­fjörðum í kvöld

Áfram má reikna með norðaustanátt í dag en að vind lægi þó aðeins. Spáð er lítilsháttar úrkomu norðan- og austanlands, rigningu eða slyddu við ströndna en snjókomu í innsveitum. Í kvöld má svo aftur búast við talsverðri rigningu á Austfjörðum.

Enn falla aurskriður á Seyðisfirði

Ný aurskriða féll á Seyðisfirði skömmu fyrir níu í kvöld. Hún féll á sömu slóðum og aurskriðurnar fyrr í kvöld og fór hún neðarlega. Kristján Ólafur Guðnason, yfirlögregluþjónn á Austurlandi, segir skriðuna hafa fallið að efstu húsum svæðisins en það þurfi að skoða það betur í fyrramálið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×