De Bruyne ekki með gegn Íslandi Anton Ingi Leifsson skrifar 12. október 2020 20:02 Bruyne í leiknum gegn Íslandi í september. AP Photo/Francisco Seco
Íslendingar geta andað léttar því Kevin De Bruyne, miðjumaðurinn magnaði, verður ekki með Belgum á miðvikudagskvöldið er þeir mæta á Laugardalsvöll. Ísland og Belgía mætast í A-deild Þjóðadeildarinnar en City-miðjumaðurinn hefur ekki náð sér af meiðslum sem fóru að plaga hann í leiknum gegn Englandi. UPDATE: @DeBruyneKev returned to his club. He couldn t be fit enough to play against Iceland.— Belgian Red Devils (@BelRedDevils) October 12, 2020 Hann hefur því snúið aftur til Manchester City en framundan um helgina er stórleikur hjá City gegn Arsenal á heimavelli. England er á toppi riðilsins með sjö stig, Belgar eru með sex stig, Danir fjögur en Íslendingar eru á botninum án stiga og með mínus átta í markatölu. Fyrri leikur Belgíu og Íslands endaði með 5-1 sigri Belga en stór skörð eru höggvin í bæði lið á miðvikudagskvöldið. Ísland verður t.a.m. án Gylfa Sigurðssonar, Alfreðs Finnbogason og Jóhanns Bergs Guðmundssonar og Belgarnir án De Bruyne og Vertonghen til að mynda. Leikur Íslands og Belgíu verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og hefst klukkan 18.45. Upphitun hefst klukkan 17.45.
Þjóðadeild UEFA Mest lesið Konurnar aftur fleiri og sex fædd eftir 2000: Topp tíu listinn í ár Sport Rashford á lausu yfir jólin Fótbolti Óvænt úrslit á HM í pílu í kvöld Sport Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark Fótbolti Charlie Woods fór holu í höggi í fyrsta sinn Golf Salah sló þrjú met í dag Fótbolti Wagner með slitið krossband og úr leik út tímabilið Körfubolti Dagskráin í dag: Það er pílan Sport Logi frá FH til Króatíu Fótbolti Cullen stormaði út af blaðamannafundi Sport Fleiri fréttir Mætir á leik í fyrsta sinn eftir að hjartað stoppaði Logi frá FH til Króatíu Rashford á lausu yfir jólin Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark „Við vorum taugaóstyrkir“ Salah sló þrjú met í dag Semur við félagið sem bæði mamma og pabbi spiluðu fyrir Everton hjálpaði sér og nágrönnunum í Liverpool Útsalah á mörkum í Lundúnum Martröð hjá Manchester United í leikhúsi draumanna Drottning Lengjudeildarinnar ætlar að vera með Fram í Bestu Öruggt hjá Real Madrid gegn Sevilla Liverpool liðið ferðast mest yfir jólin Fjórar knattspyrnukonur handteknar Jackson komst upp fyrir Eið Smára Heiður að vera keypt á metfé frá Val: „Stórt og gott skref“ Sara Björk á skotskónum í Sádi-Arabíu Skallaði þjálfara andstæðinganna eftir leik Endar Rashford í Sádí-Arabíu? Saka yfirgaf Selhurst Park á hækjum Bellingham tryggði Sunderland sigurinn Atletico rændi sigrinum í blálokin Juric tekinn við Southampton Arsenal valtaði yfir Crystal Palace Isak með þrennu í stórsigri Newcastle Haaland: Ég hef ekki verið nógu góður Gumma komin heim eftir átta ára fjarveru Guardiola: Við erum í vandræðum með að skora Lengi getur vont versnað hjá Man. City Hólmbert og félagar náðu ekki að vinna fallslaginn Sjá meira