Fótbolti

Aron Einar: Á ekki að vera erfitt að gíra menn í leik gegn Dan­mörku | Myndband

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Landsliðsfyrirliðinn var verulega sáttur með sigurinn á Rúmeníu. Hann segir það þó ekki eiga að vera erfitt að gíra menn upp í leik gegn Danmörku.
Landsliðsfyrirliðinn var verulega sáttur með sigurinn á Rúmeníu. Hann segir það þó ekki eiga að vera erfitt að gíra menn upp í leik gegn Danmörku. Vísir/Vilhelm

Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði íslenska landsliðsins í knattspyrnu, þakkar félagi sínu Al-Arabi fyrir að gefa sér leyfi að vera lengur hér á landi svo hann geti verið með íslenska liðinu gegn Danmörku í Þjóðadeild Evrópu annað kvöld. Hann ræddi við Vísi fyrir leikinn með Erik Hamrén, landsliðsþjálfara.

„Bara góður, eðlilega. Mér fannst við komast vel frá þessu, vorum öflugir, byrjuðum leikinn af krafti og góður andi í hópnum. Menn eru ánægðir með að klára þetta fyrsta verkefni í þessum glugga en nú er allur fókus kominn á Danmörk á morgun,“ sagði landsliðsfyrirliðinn aðspurður hvernig andinn væri í íslenska hópnum eftir magnaðan sigur á Rúmenum á fimmtudaginn.

„Mikið pælt í því og mikið hugsað út í það. Mesti fókusinn var á þessum leik [gegn Rúmenum] en það á ekki að vera erfitt að gíra menn í leik á móti Danmörku sem verður stál í stál. Við ætlum okkur sigur þar, fyrsti sigurinn vonandi á móti Danmörku. Verður erfiður leikur og við þurfum að vera klárir í þennan leik og sýna hvað við getum,“ sagði Aron Einar um hvernig það væri að fara úr jafn gríðarlega mikilvægum leik og Rúmena leikurinn var í leik gegn Dönum í Þjóðadeildinni.

„Mér líður vel. Líður vel eftir leikinn, smá þungur völlurinn en það eru flest allir leikmenn sem komu vel undan leiknum nema Kári [Árnason, sem meiddist gegn Rúmenum] en samt góðar fréttir af honum þannig mér líður vel og strákunum líður vel. Það er andi í hópnum eins og ég sagði áðan, menn eru ánægðir með sigurinn en við erum ekkert búnir. Verkefnið er ekki búið og þessir tveir leikir eru það sem við erum með í huga, sérstaklega Danmörk núna á morgun,“ sagði fyrirliðinn að endingu aðspurður út í hvernig sér liði bæði líkamlega og andlega enda nóg um að vera.

Aron Einar varð nýverið faðir í þriðja sinn og þá leikur lið hans Al-Arabi til úrslita í bikarkeppni í Katar í dag.

Klippa: Fyrirliðinn spenntur fyrir leiknum gegn Dönum

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×