Nöfn þekktra Íslendinga á lista yfir þá sem mótmæla hörðum sóttvarnaaðgerðum Sylvía Hall skrifar 8. október 2020 18:09 Dr. Martin Kulldorff, Dr. Sunetra Gupta og Dr. Jay Bhattacharya standa að baki yfirlýsingunni. Nöfn þekktra Íslendinga eru að finna á lista yfir þá sem styðja tillögur þeirra. Samsett
Íslenskir læknar, áhrifafólk í atvinnulífinu og stjórnmálamenn eru á meðal þeirra sem hafa skrifað undir Great Barrington yfirlýsinguna (e. The Great Barrington Declaration) þar sem lönd heimsins eru hvött til þess að hverfa frá hörðum sóttvarnaaðgerðum og stefna frekar að því að vernda viðkvæma hópa á meðan frelsi annarra til athafna er að mestu óskert. Telja þau hertar sóttvarnaaðgerðir hafa alvarlegar afleiðingar í för með sér og neikvæð áhrif á andlega heilsu fólks. Yfirlýsingin er sett fram af þeim Martin Kulldorff, prófessor í læknavísindum við Harvard-háskóla í Bandaríkjunum, Sunetra Gupta, farsóttarfræðingi með sérþekkingu á ónæmi og bóluefnaþróun og prófessor við Oxford-háskóla og Jay Bhattacharya, farsóttafræðingi, heilsuhagfræðingi og prófessor við Stanford-háskóla. „Komandi bæði frá hægri og vinstri, og frá öllum hornum heimsins, höfum við öll unnið að því að vernda fólk. Núverandi sóttvarnaaðgerðir eru að hafa hræðileg áhrif á lýðheilsu, bæði til skemmri og lengri tíma litið,“ skrifa sérfræðingarnir í yfirlýsingu sinni. Þau benda á að færri börn eru nú bólusett, færri krabbameinsskimanir eiga sér stað og andleg heilsa versni hratt. Þetta muni hafa þær afleiðingar í för með sér að dánartíðni hækki á komandi árum. Verkalýðsfólk og yngra fólk sé að taka versta skellinn. „Að meina nemendum að fara í skólann er alvarlegt óréttlæti.“ „Allar þjóðir munu ná hjarðónæmi“ Fram kemur í yfirlýsingunni að þekking á sjúkdómnum Covid-19 verði sífellt meiri og það sé vitað að dánartíðni hjá eldra fólki og fólki í áhættuhópum sé mun meiri en hjá yngra fólki. Þau telja að ef hjarðónæmi náist meðal þjóða heimsins minnki smithættan heilt yfir, líka hjá fólki í áhættuhópum. „Við vitum að allar þjóðir munu á endanum ná hjarðónæmi - þ.e. tímapunkti þar sem fjöldi nýrra smita er stöðugur - og bóluefni getur þar hjálpað til en er ekki nauðsynlegt,“ segir í yfirlýsingunni. Að þeirra mati ætti því frekar að stefna að því að ná dánartíðni niður og takmarka samfélagslegan skaða þar til hjarðónæmi næst. „Mannúðlegasta nálgunin […] er að leyfa þeim sem eiga minnst í hættu á að látast af völdum sjúkdómsins að lifa lífi sínu á sem eðlilegastan hátt til að byggja upp ónæmi gegn vírusnum í gegnum náttúrulegar smitleiðir, á meðan við verndum þá sem eru í áhættuhópum.“ Hjarðónæmi var á meðal þess sem rætt var á upplýsingafundi almannavarna í dag. Þar sagði Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir þjóðir heimsins vera langt frá því að ná hjarðónæmi. Honum þætti það jafnframt ótrúlegt að læknar héldu því fram að best sé að láta veiruna yfir sig ganga. Læknar, stjórnmálamenn og fólk úr atvinnulífinu Samkvæmt tölum á vef yfirlýsingarinnar hafa yfir 125 þúsund einstaklingar skrifað undir listann sem almennir borgarar. Um níu þúsund læknar hafa skrifað undir og hátt í fimm þúsund vísindamenn á sviði læknisfræði og lýðheilsu, að því er fram kemur í tölfræði vefsins. Þar má einnig finna Íslendinga sem hafa látið sig málið varða og skrifað undir ef marka má undirskriftalistann sem sjá má hér. Augnlæknir, lýtalæknir og tannlæknir eru á meðal þeirra Íslendinga sem hafa skrifað undir. Þá má sjá þekkt nöfn úr atvinnulífinu, en á listanum eru nöfn Björgólfs Thors Björgólfssonar fjárfestis, Heiðars Guðjónssonar forstjóra Sýnar, Önnu Hrefnu Ingimundardóttur hagfræðings og forstöðumanns efnahagssviðs Samtaka atvinnulífsins, Þorsteins Víglundssonar forstjóra Hornsteins ehf. sem og Védísar Hervarar Árnadóttur miðlunarstjóra hjá SA. Þá má einnig sjá nafn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Miðflokksins, en í samtali við Ríkisútvarpið segist hann ekki hafa skrifað undir listann sjálfur. Hann hafi ekki einu sinni vitað af tilvist listans. Bæði Heiðar Guðjónsson og Anna Hrefna Ingimundardóttir staðfesta við fréttastofu að þau hafi skrifað undir listann. Þá hefur Þorsteinn Víglundsson talað fyrir því að efnahagslegar afleiðingar aðgerðanna verði metnar og óttaðist hann langvarandi efnahagslegar afleiðingar. Þá hafa fjölmargir fræðimenn á sviði læknisfræði og heilbrigðismála einnig skrifað undir líkt og sjá má á heimasíðunni. Hér að neðan má sjá myndbönd sem gefin voru út samhliða yfirlýsingunni. Athugasemd ritstjórnar 23:20: Eftir að íslenskir fjölmiðlar greindu frá listanum virðast enn fleiri undirskriftir hafa bæst í hópinn. Sumar hverjar frá aðilum sem telja má ljóst að hafi alls ekki skrifað undir. Þannig mátti um tíma sjá nafn Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis á listanum, sem og nafn Kára Stefánssonar, forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar, sem hefur talað fyrir hertum aðgerðum innanlands. Þau nöfn hafa þó verið fjarlægð.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Heilbrigðismál Tengdar fréttir Daglegt líf í Bandaríkjunum verði fyrst „eðlilegt“ um mitt næsta ár „Ef við erum að tala um að komast aftur í þann hversdagsleika sem var fyrir Covid, þá verður það ekki fyrr en það er eitthvað liðið á 2021.“ 12. september 2020 23:00 WHO býst ekki við bóluefni fyrr en á næsta ári 4. september 2020 15:04 „Pestin verður ekki kveðin í kútinn fyrr en í lok næsta árs“ Það er óréttlætanlegt að bíða í tvo sólarhringa frá því ákvörðun um hertar sóttvarnaraðgerðir er tekin og þar til þær taka gildi að mati Kára Stefánssonar, forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar. 4. október 2020 19:15 Mest lesið Fíkniefnanotkun talin meginorsök banaslyss í Lækjargötu Innlent Gert að loka annarri flugbraut Reykjavíkurflugvallar Innlent Óvænt skilaboð leiddu til ferðar með syni Trumps Erlent Mönnun tryggð út febrúar en staðan óboðleg Innlent Útsýnið úr útsýnisíbúðinni verður að engu Innlent Nauðgaði andlega fatlaðri konu ítrekað og lét son hennar horfa á Innlent Fimm fluttir á sjúkrahús eftir rútuslysið Innlent Ekkert verður af kaupunum á Krafti Innlent Grunuð um að setja milljónir af opinberu fé inn á veðmálasíður Innlent „Ef ég fæ þig ekki fær þig enginn því sver ég eið“ Innlent Fleiri fréttir Húsköttur á Seltjarnarnesi með fuglaflensu Árið í fyrra það heitasta frá upphafi mælinga 85 ára og situr við alla daga og tálgar fugla úr íslensku birki Gert að loka annarri flugbraut Reykjavíkurflugvallar Breytingar á Reykjavíkurflugvelli og asahláka Nauðgaði andlega fatlaðri konu ítrekað og lét son hennar horfa á Mönnun tryggð út febrúar en staðan óboðleg Ekkert verður af kaupunum á Krafti „Ef ég fæ þig ekki fær þig enginn því sver ég eið“ Taka við rekstri Sæborgar á Skagaströnd Endurvekja Á allra vörum til að byggja nýtt Kvennaathvarf Fjölga leikskólaplássum um allt að 300 í Reykjavík Framlengir stuðningskerfi um ár en ræðst í endurskoðun Gular viðvaranir vegna hvassviðris og rigningar Fíkniefnanotkun talin meginorsök banaslyss í Lækjargötu Leikskólarýmum fjölgað og brýnt að skýra áfengislöggjöfina Stækka leikskólann Múlaborg við Ármúla Fimm fluttir á sjúkrahús eftir rútuslysið Hættir sem formaður Hagsmunasamtaka heimilanna Nauðsynlegt að slá ekki kynslóðaskiptum í Sjálfstæðisflokknum á frest Framsóknarmenn í Reykjavík vilja flýta flokksþingi Laxalús í sjókvíum smitist greiðlega í villta laxa Náðu að loka á mann sem sveiflaði hníf inn um hurð Útsýnið úr útsýnisíbúðinni verður að engu Framkvæmdir við stóran áfanga Borgarlínu á næsta leiti „Kæmi slíkt upp í Reykjavík yrði gengið fljótt til verks“ Hótel Hestheimar í bók National Georgraphic Grunuð um að setja milljónir af opinberu fé inn á veðmálasíður Hörmungar í Los Angeles og myrkur í Smyrilshlíð Nýr leikskóli rís í Elliðaárdal Sjá meira
Daglegt líf í Bandaríkjunum verði fyrst „eðlilegt“ um mitt næsta ár „Ef við erum að tala um að komast aftur í þann hversdagsleika sem var fyrir Covid, þá verður það ekki fyrr en það er eitthvað liðið á 2021.“ 12. september 2020 23:00
„Pestin verður ekki kveðin í kútinn fyrr en í lok næsta árs“ Það er óréttlætanlegt að bíða í tvo sólarhringa frá því ákvörðun um hertar sóttvarnaraðgerðir er tekin og þar til þær taka gildi að mati Kára Stefánssonar, forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar. 4. október 2020 19:15