Klopp skammaði varamennina fyrir að fagna rauða spjaldinu sem Christiansen fékk Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 21. september 2020 07:30 Jürgen Klopp var ekki sáttur með varamenn Liverpool þegar þeir glöddust yfir rauða spjaldinu sem Andreas Christiansen fékk. getty/Andrew Powell
Jürgen Klopp skammaði varamenn Liverpool þegar þeir fögnuðu rauða spjaldinu sem Andreas Christiansen, varnarmaður Chelsea, fékk í leik liðanna í ensku úrvalsdeildinni í gær. Liverpool vann leikinn, 0-2. Undir lok fyrri hálfleiks braut Christiansen á Sadio Mané sem var að sleppa í gegnum vörn Chelsea. Paul Tierney gaf Christiansen fyrst gula spjaldið en eftir að hafa skoðað atvikið á sjónvarpsskjá breytti hann dómnum og rak Danann af velli. Varamenn Liverpool sem sátu uppi í stúku á Stamford Bridge kættust mjög þegar Christiansen fékk rauða spjaldið og fögnuðu því. Það var Klopp ekki sáttur með, skammaði þá og sagði að svona gerðu menn aldrei. Mané tryggði Liverpool sigur með tveimur mörkum í upphafi seinni hálfleiks. Það fyrra kom eftir frábæra sókn Englandsmeistaranna en það síðara eftir skelfileg mistök Kepa Arrizabalaga í marki Chelsea. Liverpool hefur unnið báða leiki sína í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu. Næsti deildarleikur liðsins er gegn Arsenal á Emirates eftir viku.
Enski boltinn Mest lesið Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Marlena vann Bakgarðshlaupið: „Ég hljóp bara“ Sport Fær sér ís í heita pottinum eftir tæplega 250 kílómetra hlaup Sport Haaland kastaði boltanum í hnakkann á Gabriel eftir jöfnunarmark City Fótbolti Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Enski boltinn Keane segir Arteta að taka lyfin sín Enski boltinn Sér eftir að hafa valið Val fram yfir KR Íslenski boltinn BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Enski boltinn Clark slegin í augað í frumraun Körfubolti Marlena er sigurvegari Bakgarðshlaupsins Sport Fleiri fréttir Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Endurkoma hjá Dagnýju Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Ferguson saknar fótboltans Alisson tæpur fyrir leikinn gegn Bournemouth Segir Arsenal sífellt betra en vill engar ásakanir um sálfræðistríð Alexander-Arnold reynir að kaupa Nantes Með tvær ferðatöskur af fíkniefnum Hafi snúist hugur og vilji nú fara til Liverpool Segir að hann myndi kýla netníðingana í nefið ef þeir stæðu fyrir framan hann Arteta með vondar fréttir af meiðslum Ødegaards Óviss um að hann sé velkominn á Oasis tónleikana Ten Hag rólegur þrátt fyrir fullkomið kvöld Lið Stefáns skoraði úr sextán vítum Auðvelt á Old Trafford gegn C-deildarliðinu Sjá meira