Sport

Dagskráin í dag: Stórleikur í Kópavogi ásamt tveimur leikjum á Ítalíu

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Það er stórleikur - með stóru S-i - á Kópavogsvelli í kvöld þegar tvö bestu lið landsins mætast.
Það er stórleikur - með stóru S-i - á Kópavogsvelli í kvöld þegar tvö bestu lið landsins mætast. Vísir/Daniel Thor

Það er nóg um að vera á Stöð 2 Sport og hliðarrásum í dag. Það er sannkallaður stórleikur í Pepsi Max deild kvenna í fótbolta

Klukkan 19:00 hefst bein ústending frá Kópavogsvelli þar sem Íslandsmeistarar Vals í fótbolta eru í heimsókn. Báðar viðureignir þessara liða á síðustu leiktíð lauk með jafntefli en hvorugt lið tapaði leik. 

Breiðablik er með fullt hús stiga en þar sem liðið þurfti að fara í sóttkví hefur það leikið tveimur leikjum minna en Valur sem trónir á toppi deildarinnar. Sem stendur munar fjórum stigum á liðunum og vinni gestirnir verður munurinn því orðinn sjö stig. Það gæti þó reynst þrautin þyngri þar sem Blikar hafa ekki enn fengið sig á mark á leiktíðinni.

Stöð 2 Sport 2

Það er einnig nóg um fótbolta á Stöð 2 Sport 2. Við sýnum ensku bikarmörkin en þar má sjá mörkin sem komu Arsenal og Chelsea í úrslit FA-bikarsins. 

Þá er leikur Atalanta og Bologna í beinni útsendingu. Andri Fannar Baldursson hefur fengið nokkur tækifæri með Bologna undanfarið og hver veit nema hann fái enn fleiri mínútur gegn stórskemmtilegu liði Atalanta.

Leikur Sassuolo og AC Milan er svo á dagskrá síðar um kvöldið en síðarnefnda liðið er jafnt Napoli að stigum í baráttunni um sæti í Evrópudeildinni á næstu leiktíð. 

Hér má sjá það sem er framundan í beinni hjá Stöð 2 Sport.

Hér má svo sjá dagskrá Stöðvar 2 Sport í dag sem og aðra daga vikunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×