Sánchez komið að átta mörkum eftir Covid Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 17. júlí 2020 13:13 Alexis Sánchez fagnar marki sínu fyrir Inter gegn Spal í ítölsku úrvalsdeildinni í gær. getty/Alessandro Sabattini
Þótt það hafi litið þannig út hjá Manchester United er Alexis Sánchez ekki búinn að gleyma því hvernig á að spila fótbolta. Sílemaðurinn skoraði eitt mark og lagði upp annað þegar Inter vann stórsigur á Spal, 0-4, í ítölsku úrvalsdeildinni í gær. Sánchez hefur leikið sérstaklega vel eftir að keppni hófst aftur eftir kórónuveirufaraldurinn og komið með beinum hætti að átta mörkum í ítölsku deildinni. Hann hefur skorað tvö mörk og gefið sex stoðsendingar. Sánchez lagði upp eitt marka Inter í 3-3 jafntefli við Sassuolo, skoraði eitt mark og lagði upp tvö í 6-0 sigri á Brescia, gaf tvær stoðsendingar í 3-1 sigri á Torino og kom svo að tveimur mörkum gegn Spal í gær eins og áður sagði. Eftir eitt og hálft vonbrigðatímabil hjá United fékk Inter Sánchez í fyrra. Sílemaðurinn byrjaði ágætlega hjá ítalska liðinu en meiddist síðan og var lengi frá. En eftir kórónuveirufaraldurinn hefur sýnt að hann er ekki dauður úr öllum æðum. Sánchez hefur leikið sautján leiki í ítölsku deildinni á tímabilinu, þar af sjö í byrjunarliði, skorað þrjú mörk og gefið sjö stoðsendingar. Antonio Candreva, Cristiano Biraghi og Roberto Gagliardini voru einnig á skotskónum fyrir Inter gegn Spal í gær. Með sigrinum komst liðið upp í 2. sæti ítölsku deildarinnar. Fimm umferðum er ólokið. Mörkin úr leik Spal og Inter má sjá hér fyrir neðan. Klippa: Sánchez öflugur í stórsigri Inter
Ítalski boltinn Mest lesið Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Enski boltinn Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Íslenski boltinn McGregor fundinn sekur og þarf að borga tugi milljóna í skaðabætur Sport Létt gönguferð í skóginum hjá Arsenal Enski boltinn Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Íslenski boltinn Stelpurnar okkar rændar jöfnunarmarki? Handbolti Cecilía búin að loka og læsa marki Inter Fótbolti Einfalt hjá Chelsea sem sækir að toppnum Enski boltinn „Bjóst bara við því að við værum að fara vinna árið eftir“ Körfubolti Albert kemur til greina sem sá besti á Ítalíu Fótbolti Fleiri fréttir Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Diljá Ýr á skotskónum og OH Leuven á toppinn Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Celta sótti jafntefli gegn tíu Börsungum Haraldur Árni áfram með Grindavík Sveindís funheit inn af bekknum og setti tvö Bodø/Glimt með langþráðan sigur Úlfarnir skelltu Fulham og enn bíður Villa eftir sigri Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Gamla konan áfram taplaus Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Cecilía búin að loka og læsa marki Inter Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Jóhann lagði upp langþráð mark Ævintýri Róberts og félaga heldur áfram Ingibjörg og Hafrún nálgast Emilíu Létt gönguferð í skóginum hjá Arsenal Einfalt hjá Chelsea sem sækir að toppnum Fjórtán ára á æfingum með Arsenal Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Fær konuna til að eiga við draugana og ætlar ekki að pissa í hornin Albert kemur til greina sem sá besti á Ítalíu Amorim fullur sjálfstrausts á fyrsta blaðamannafundinum Meistararnir og Skytturnar missa út lykilmenn Valgeir til Breiðabliks Eyþór yfirgefur KR Annað áfall fyrir Hörð sem fór til sama læknis og Rodri Ísland mætir Kósovó í sérstöku umspili Írarnir hans Heimis mæta Búlgörum Lewandowski fékk ekki að fara til Man. Utd Sjá meira