Alderweireld tryggði Tottenham sigur í Lundúnaslagnum Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 12. júlí 2020 17:25 Leikmenn Tottenham fagna sigurmarki Alderweireld í dag. Julian Finney/Getty Images
Tottenham Hotspur hafði betur gegn Arsenal í baráttunni um Norður-Lundúnir í dag. Lokatölur 2-1 þökk sé sigurmarki Toby Alderweireld þegar lítið var eftir af leiknum. Að venju voru fleiri spjöld en mörk þegar þessi lið mætast en alls fóru átta gul spjöld á loft í dag. Alexandre Lacazette kom gestunum í Arsenal yfir á 16. mínútu leiksins með þrumuskoti en forystan entist aðeins í þrjár mínútur. Þá jafnaði Heung-Min Son metin fyrir Tottenham og fleiri yrðu mörkin ekki í fyrri hálfleik. Þegar tíu mínútur voru til leiksloka fengu heimamenn hornspyrnu. Son tók hana og sendi fyrir markið þar sem Alderweireld stangaði knöttinn í netið og staðan orðin 2-1. Var þetta fyrst mark Belgans á heimavelli síðan árið 2016. Toby Alderweireld has scored his 1st home goal since v Monaco in Sept 2016 - had gone 71 apps without a goal at any of Spurs 3 home stadiums since pic.twitter.com/rXzFKavotM— Sky Sports Statto (@SkySportsStatto) July 12, 2020 Arsenal tókst ekki að jafna metin og lærisveinar José Mourinho fögnuðu góðum sigri, lokatölur 2-1. Tottenham kemst þar með upp fyrir Arsenal í töflunni en liðið er nú með 52 stig í 8. sæti á meðan Arsenal er sæti neðar með 50 stig. Sigurinn lyftir Tottenham yfir Arsenal í töflunni en liðin sitja í 8. og 9. sæti deildarinnar með 52 og 50 stig.
Enski boltinn Fótbolti Tengdar fréttir Aston Villa heldur í vonina eftir sigur Aston Villa sigraði sinn fyrsta leik frá því janúar í ensku úrvalsdeildinni þegar liðið fékk Crystal Palace í heimsókn í dag. 12. júlí 2020 15:15 Úlfarnir aftur á sigurbraut er þeir rúlluðu yfir Gylfa og félaga Wolves vann Gylfa Sigurðsson og félaga í Everton nokkuð örugglega í dag, með þremur mörkum gegn engu. 12. júlí 2020 12:50
Aston Villa heldur í vonina eftir sigur Aston Villa sigraði sinn fyrsta leik frá því janúar í ensku úrvalsdeildinni þegar liðið fékk Crystal Palace í heimsókn í dag. 12. júlí 2020 15:15
Úlfarnir aftur á sigurbraut er þeir rúlluðu yfir Gylfa og félaga Wolves vann Gylfa Sigurðsson og félaga í Everton nokkuð örugglega í dag, með þremur mörkum gegn engu. 12. júlí 2020 12:50