Viðskipti innlent

Telur ólíklegt að útboð Icelandair höfði til nýrra fjárfesta

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Frá hlutahafafundi Icelandair á föstudag, þar sem var einróma samþykkt að ráðast í hlutafjárútboð.
Frá hlutahafafundi Icelandair á föstudag, þar sem var einróma samþykkt að ráðast í hlutafjárútboð. Vísir/vilhelm

Ólíklegt verður að teljast að Icelandair Group takist að sannfæra nýja fjárfesta um að leggja félaginu til fjármuni í núverandi árferði, að mati fyrrverandi forstjóra. Hluthafar félagsins þurfi því að líkindum að bera hitann og þungann af væntanlegu hlutafjárútboði, þar sem Icelandair Group hyggst safna allt að 29 milljörðum króna. 

Aðspurður um hvort fólk sé vongott um að flugfélaginu takist ætlunarverk sitt í hlutfjárútboðinu, sem fer fram í miðjum heimsfaraldri með meðfylgjandi ferðatakmörkunum, hlær Jón Karl Ólafsson, fyrrverandi forstjóri Icelandair. „Þetta er góð spurning.“

Hann telur að árangur í hlutafjárútboðinu muni líklega ráðast af því hvort núverandi hluthafar vilji „bjarga“ eign þeirra í félaginu með því að láta Icelandir fá meira fjármagn. „Ég efast um að það séu margir nýir þarna úti en það á svo sem eftir að koma í ljós,“ segir Jón Karl.

Hann segist að sama skapi ekki hafa mikla trú á því að Icelandair geti sótt fjármagn frá erlendum fjárfestum. „Menn hafa líka verið að velta fyrir sér hvort það væri hægt að fara eitthvað erlendis og ég held að það sé alveg gríðarlega ólíklegt í stöðunni, að það séu einhverjir erlendir fjárfestar að horfa hingað,“ segir Jón Karl.

Önnur lönd séu að glíma við sömu stöðu, fyrirtæki séu almennt í miklum vanda og þurfi fjármagn. „Þar eru menn í óðaönn að reyna að leysa þetta með sama hætti og við hér.“

Þannig að þetta eru aðallega bara núverandi hluthafar að koma með meira fé?

„Ég myndi halda að að sé líklegast, maður sér ekki beint hvar ættu að vera nýir hluthafar þarna úti sem eiga mikið fjármagn sem þeir eru tilbúnir að henda, eða láta í félagið. Ég held ekki, því miður,“ segir Jón Karl.

Spjall hans við Harmageddon má heyra í heild hér að ofan.


Tengdar fréttir

Icelandair stefnir á að hefja flug 15. júní

„Við stefnum á að komast á flug upp úr 15. júní og ná sem fyrst að komast í daglega tíðni til okkar helstu áfangastaða til að byrja með og svo auðvitað fylgjumst við eins og allir aðrir með tilkynningum frá okkar nágrannalöndum um hvenær þau opna,“ segir Birna Ósk Einarsdóttir, framkvæmdastjóri sölu- og þjónustusviðs Icelandair.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×