Sveitapiltur úr Tungunum stýrir gullnámu á slóðum Eiríks rauða Það var fyrir tíu árum sem hópur Íslendinga undir forystu ungs jarðfræðings stofnaði félag um kaup á gullnámu á Grænlandi. Núna er gullkvörn risin á svæðinu og gullvinnslan hafin og náðist merkur áfangi nýlega þegar fyrstu gullstangirnar voru steyptar. Lífið 23.1.2025 16:45
Segir Grænlendinga yndislega, harðduglega og útsjónarsama Eldur Ólafsson, sem stýrir gullleit á Grænlandi, segir fyrirtækið vilja fá Grænlendinga í sem flest störf. Þeir séu harðduglegir og útsjónarsamir, með gott hjarta og yndislegt sé að starfa með þeim. Innlent 22.1.2025 22:45
Tvískráningar félaga: Umgjörð og uppgjör viðskipta Áhugi innlendra fjárfesta á tvískráðum félögum í Kauphöllinni hefur aukist jafnt og þétt frá skráningu hér á landi. Innlendir hluthafar skipta nú þúsundum án þess að efnt hafi verið til sérstaks hlutafjárútboðs og áhugavert verður að fylgjast með framgangi þessara félaga á íslenska markaðnum. Umræðan 22.1.2025 12:52
„Oft velt því fyrir mér: Hvenær munu þessar sögusagnir hætta?“ „Þú verður mjög háður flugbransanum og það er mjög erfitt að aftengja sig honum. Rétt eins og gildir reyndar um fjölmiðla,“ segir Nadine Guðrún Yaghi, forstöðumaður samskipta og markaðssviðs Play. Atvinnulíf 20. janúar 2025 07:02
„Sérstakt gleðiefni og gleður mitt hjarta“ Það kemur fyllilega til greina að endurskoða innkaupareglur ríkisins á flugmiðum segir Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra. Ríkið hefur verið sakað um óeðlilega viðskiptahætti en ráðherra segir mikilvægt að finna hagstæðustu lausnina fyrir ríkið, hvort sem það varðar kostnað vegna vinnuferða eða annarra innkaupa hins opinbera. Daði kveðst himinlifandi með áhuga almennings á skilvirkni í ríkisrekstri. Innlent 19. janúar 2025 14:49
Spá meiri arðsemi Arion en minni vaxtatekjur taki niður afkomu Íslandsbanka Útlit er fyrir afkomubata á milli ára á fjórða ársfjórðungi 2024 hjá Arion, drifið áfram af sterkum grunnrekstri, enda þótt ólíklegt sé að það muni duga til að bankinn nái þrettán prósenta arðsemismarkmiði sínu fyrir árið í heild, ef marka má spár greinenda. Þrátt fyrir væntingar um talsvert minni niðurfærslu á eignum þá er reiknað með því að afkoma Íslandsbanka dragist saman, einkum vegna samdráttar í hreinum vaxtatekjum. Innherji 18. janúar 2025 13:34
Sagði nei við sölu Íslandsbanka en treystir ráðherra fullkomlega nú Inga Sæland, formaður Flokks fólksins segist treysta fjármála- og efnahagsráðherra fullkomlega til að ganga frá sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka. Flokkurinn hefur til þessa lýst harðri andstöðu gegn sölu bankans en formaðurinn segist nú vona að farsæl lausn finnist sem allir geti sætt sig við. Innlent 18. janúar 2025 12:24
Eftirlitið gefur lítið fyrir yfirlýsingu Styrkáss Samkeppniseftirlitið segir skýringar Styrkáss á því að hætt var við kaup félagins á Krafti ekki í samræmi við þær skýringar sem félagið gáfu eftirlitinu. Félögin hafi óskað trúnaðar um þær skýringar. Viðskipti innlent 17. janúar 2025 14:33
Svigrúm fyrir keppinauta „sem ástunda ekki jafnósvífna verðlagningu“ Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda segir upplýsingar sem Matthías Matthíasson hjá MM Logic greindi þróun olíuverðs og gjaldskrá stóru skipafélaganna gefa viðskiptamönnum félaganna tilefni til þess að kalla eftir skýringum á þróun á verði og gjaldskrá. Viðskipti innlent 16. janúar 2025 18:13
Útlit fyrir óbreyttan verðbólgutakt í aðdraganda næstu vaxtaákvörðunar Fæstir hagfræðingar eiga von á því að verðbólgan muni hjaðna milli mánaða þegar mælingin fyrir janúar verður birt eftir tvær vikur, nokkrum dögum áður en peningastefnunefnd kemur saman, en miðað við meðalspá sex greinenda er útlit fyrir að tólf mánaða takturinn haldist óbreyttur annan mánuðinn í röð. Gangi bráðabirgðaspár eftir ætti verðbólgan hins vegar að taka nokkra dýfu í framhaldinu og vera komin undir fjögurra prósenta vikmörk verðbólgumarkmiðs Seðlabankans strax í marsmánuði. Innherji 16. janúar 2025 17:45
Flugfélag bregst við vegna kómískrar frásagnar Katrínar Leik- og söngkonan Katrína Halldóra Sigurðardóttir vakti mikla athygli í vikunni þegar hún lýsti ferð fjölskyldu sinnar til Tenerife hér um árið með afar kómískum hætti, þar sem karíókíbarir og svefnlausar nætur lituðu ferðina. Hún sagði upplifunina efni í gott leikrit. Lífið 16. janúar 2025 17:25
Hagnaðurinn dregst saman Hagnaður Ölgerðarinnar eftir skatta nam 1.160 milljónum króna á þriðja ársfjórðungi síðasta árs. Það gerir 22 prósent lækkun hagnaðar milli ára. Viðskipti innlent 16. janúar 2025 16:25
Skoða að leita réttar síns vegna „óeðlilegra viðskiptahátta“ ríkisins Forsvarsmenn flugfélagsins Play hafa til alvarlegrar skoðunar að leita réttar síns vegna viðskiptahátta ríkisins, sem stjórnarformaður félagsins segir óeðlilega. Hann telur einsýnt að ríkisstjórnin taki sparnaðartillögur félagsins til greina. Viðskipti innlent 16. janúar 2025 14:03
Undirrituðu samstarfssamning við Southwest Airlines Icelandair og bandaríska flugfélagið Southwest Airlines undirrituðu í gær samstarfssamning og verður Icelandair þar með fyrsta samstarfsflugfélag Southwest. Viðskipti innlent 16. janúar 2025 09:31
Lækkun verðbólguvæntinga aukið líkur á öðru „stóru skrefi“ hjá Seðlabankanum Útlit er fyrir að hlé verði á hjöðnun verðbólgunnar í janúar og árstakturinn haldist óbreyttur í 4,8 prósent, að mati aðalhagfræðings Kviku banka, sem skýrist einkum af ýmsum einskiptishækkunum um áramótin en verðbólgan muni síðan lækka myndarlega næstu mánuði á eftir. Nýleg lækkun verðbólguvæntinga heimila og fyrirtækja ætti samt að vega sem „þung lóð á vogarskálar júmbólækkunar“ upp á 50 punkta þegar peningastefnunefndin kemur næst saman í upphafi febrúarmánaðar. Innherji 14. janúar 2025 17:50
Samkaup verðmetið á yfir níu milljarða í hlutafjáraukningu verslunarkeðjunnar Samkaup freistar þess núna að sækja sér aukið fjármagn frá núverandi hluthöfum en miðað við áskriftargengið í yfirstandandi hlutafjáraukningu, sem á að klárast í vikunni, er hlutafjárvirði verslunarsamsteypunnar talið vera ríflega níu milljarðar króna. Félagið skilaði talsverðu tapi á síðasta ári sem einkenndist af krefjandi rekstraraðstæðum en mikil samlegðaráhrif eru áætluð með boðuðum samruna Samkaupa og Heimkaupa. Innherji 14. janúar 2025 12:19
Til skoðunar að selja almenningi bankann Fjármálaráðherra segir koma til greina að eftirstandandi hlutur ríkisins verði seldur í almennu hlutafjárútboði. Mikilvægast sé að söluferlið verði gagnsætt og hafið yfir allan vafa. Viðskipti innlent 14. janúar 2025 12:14
Hlutur ríkisins í Íslandsbanka seldur á árinu Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, greindi frá því í Silfrinu á RÚV í gærkvöldi að 42,5 prósenta hlutur ríkisins í Íslandsbanka yrði seldur á árinu. Viðskipti innlent 14. janúar 2025 06:24
„Algjört dauðafæri fyrir Íslendinga“ að horfa til Grænlands Forstjóri Amaroq segir viðskiptatengsl Íslands og Grænlands sífellt mikilvægari Ísland sé í dauðafæri til að koma sér upp góðum tengslum við staðinn. Væri hann utanríkisráðherra myndi hann einblína á tengsl Íslands við eyjuna. Viðskipti innlent 13. janúar 2025 21:44
Fá rammasamning ekki virkjaðan og sjúklingar þurfa að greiða úr eigin vasa Forstjóri flugfélagsins Play furðar sig á því að Sjúkratryggingar Íslands hafi ekki virkjað rammasamning við félagið, þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir þess efnis. Sjúklingar sem vilja heldur fljúga með Play þurfa að leggja út fyrir sínum miðum, sem þarf ekki að gera ef flogið er með Icelandair. Viðskipti innlent 13. janúar 2025 16:34
Oculis rauf 3000 króna múrinn og gott betur Hlutabréfaverð augnlyfjafélagsins Oculis hækkaði langmest allra félaga í Kauphöllinni í dag, um 13,79 prósent. Veltan með bréf í félaginu var sömuleiðis sú langmesta í dag, 2,2 milljarðar króna. Það sem af er ári hefur verðið hækkað um 34 prósent og frá skráningu á markað hérlendis í apríl síðastliðnum hefur það hækkað um 95 prósent. Viðskipti innlent 13. janúar 2025 15:41
Fékk yfir þrjú hundruð milljóna bónus þegar samruni JBT og Marel kláraðist Árni Sigurðsson, sem er núna tekinn við sem aðstoðarforstjóri JBT-Marel, fékk í sinn hlut sérstaka bónusgreiðslu upp á samanlagt meira en þrjú hundruð milljónir króna þegar risasamruni félaganna formlega kláraðist í byrjun þessa árs. Til viðbótar fær Árni einnig umtalsverðan árangurstengdan kaupauka vegna ársins 2024 og samkvæmt nýjum ráðningarsamningi innihalda launakjör hans hjá sameinuðu fyrirtæki margvíslegar hvatatengdar greiðslur, meðal annars umfangsmikla kauprétti og annars konar bónusgreiðslur. Innherji 13. janúar 2025 13:14
Lilja og Steinar nýir forstöðumenn hjá Íslandsbanka Íslandsbanki hefur ráðið Lilju Kristjánsdóttur í stöðu forstöðumanns viðskiptaeftirlits og Steinar Arason í stöðu forstöðumanns regluvörslu hjá bankanum. Viðskipti innlent 13. janúar 2025 13:10
Þóra kveður Stöð 2 Þóra Björg Clausen hefur sagt upp störfum sem dagskrárstjóri Stöðvar 2. Hún hefur starfað hjá Sýn í tíu ár og segir ákvörðunina ekki auðvelda. Viðskipti innlent 13. janúar 2025 11:49