Fékk morðhótanir eftir mistökin gegn Króatíu Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 26. maí 2020 15:00 Willy Caballero í öngum sínum eftir mistökin sem gáfu Króatíu mark gegn Argentínu á HM 2018. getty/Elsa
Willy Caballero segist hafa fengið morðhótanir eftir mistökin sem hann gerði í leik Argentínu og Króatíu á HM 2018 í Rússlandi. Ante Rebic kom Króötum á bragðið á 53. mínútu eftir slæm mistök Caballeros. Luka Modric og Ivan Rakitic bættu svo við mörkum og Króatía vann 0-3 sigur. Caballero átti ekki sjö dagana sæla eftir leikinn. „Ég fékk mjög öfgafull skilaboð, þar á meðal morðhótanir. Það fékk mig til að hugsa mikið um fjölskylduna og framtíðina,“ sagði Caballero. Hann lék fyrstu tvo leiki Argentínu á HM í Rússlandi, gegn Íslandi og Króatíu, en var tekinn úr byrjunarliðinu fyrir leikinn gegn Nígeríu í lokaumferð riðlakeppninnar. Franco Armani tók stöðu Caballeros. Argentínumenn tryggðu sér sæti í sextán liða úrslitum með 2-1 sigri á Nígeríumönnum. Lengra komust þeir þó ekki því Frakkar unnu þá 4-3 í sextán liða úrslitunum. Caballero segist hafa skilið þá ákvörðun Jorges Sampaoli að taka hann úr liðinu eftir mistökin gegn Króatíu. „Ég hefði viljað fá eitt tækifæri í viðbót til að bæta fyrir mistökin en ég virði ákvörðun Jorges,“ sagði Caballero sem hefur ekki leikið fyrir argentínska landsliðið síðan í leiknum gegn Króatíu.
HM 2018 í Rússlandi Mest lesið Keppinautur Antons í stóru lyfjahneyksli sem komið er á borð FBI Sport Ældi tvisvar þegar kærastan mætti í fyrsta sinn á leik Sport Pabbinn telur að bænirnar hafi komið til bjargar Fótbolti ÍR og Grindavík sendu skýr skilaboð Íslenski boltinn Hetja Tyrkja í bann fyrir úlfafagnið Fótbolti Stelpurnar hans Þóris völtuðu yfir ólympíumeistarana Handbolti Andrea og Arnar langfyrst á Akureyri Sport Óskar Hrafn ráðinn yfirmaður knattspyrnumála hjá KR Fótbolti Bannar eiginkonurnar ef þeir vinna leikinn Fótbolti Dýrmætur sigur Þórs en toppliðið skoraði ekki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Pabbinn telur að bænirnar hafi komið til bjargar ÍR og Grindavík sendu skýr skilaboð Hetja Tyrkja í bann fyrir úlfafagnið Dýrmætur sigur Þórs en toppliðið skoraði ekki Segir Rodri bestan í heimi eftir langar kennslustundir Liðsfélagar Helga skjóta hann í hausinn: „Ég þarf að ræða við þá eða drulla mér í burtu bara“ „Eru örugglega að leita sér að einhverju fersku“ Disney stjórinn að kaupa fótboltafélag með eiginkonunni Hlín tilnefnd sem sú besta í júní Segja að Southgate gæti skipt um leikkerfi Verður áfram hjá Manchester United Sjáðu sextán ára stelpu koma meisturunum til bjargar Bannar eiginkonurnar ef þeir vinna leikinn Foden finnur til með Southgate Telur sig geta platað Klopp til að taka við Bandaríkjunum Uppgjörið, viðtöl og myndir: Víkingur - Stjarnan 1-1 (5-4) | Víkingar í úrslit enn á ný Enskir dómarar á stórleikjum föstudagsins „Þurfum bara að dekka í svona leikatriðum“ Uppgjörið: Valur - Þróttur 1-0 | Dramatískur sigur Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Þór/KA - FH 0-1 | Ída Marín tryggði sigur gestanna Evrópumeistarinn Bronze á leið til Chelsea Ratcliffe lætur 250 starfsmenn Man United fara Palhinha á leið til Bayern á metfé Arsenal með augastað á Calafiori Segir að varnarmenn geri í buxurnar þegar Gakpo fer á ferðina Marta fer til Parísar en hættir landsliðsstörfum eftir sjöttu Ólympíuleikana Víkingar geta náð því sem enginn hefur gert í sextíu ár Rangnick drepleiddist yfir öðrum leikjum á EM: „Ég átti erfitt með að halda mér vakandi“ Gefur aðeins grænt ljós á viðræður við Manchester United Sjáðu markið sem skilaði Stjörnunni fyrsta sigrinum í fimm leikjum Sjá meira