Vilja innleiða svefnstjórnun á vinnustaði Rakel Sveinsdóttir skrifar 8. apríl 2020 09:00 Vísir/Vilhelm
Fleiri tala nú fyrir því að æskilegt sé að innleiða svefnstjórnun á vinnustaði. Þetta á bæði við um vísindamenn og stjórnendur. Sem dæmi má nefna sögðust 70% stjórnenda sem tóku þátt í könnun á vegum McKinsey að þeir vildu innleiða svefnstjórnun á vinnustaði með sambærilegum hætti og tímastjórnun, aukna samskiptahæfni og fleira sem margir þekkja. En hvers vegna ættu stjórnendur að skipta sér af svefnvenjum starfsfólks? Jú, fyrir því liggja margvísleg rök og þá ekki síst niðurstöður úr rannsóknum. Sem dæmi má nefna að í Bandaríkjunum hefur það verið reiknað út að atvinnulífið tapar 135 milljörðum dollara árlega fyrir það eitt að ónógur svefn hefur bein áhrif á afköst og frammistöðu fólks í vinnu. Þá er góður svefn lykilatriði til að viðhalda góðri líkamlegri og andlegri heilsu. Dæmi um rannsókn Vísindamenn við Oregon Healthy Workforce kynntu rannsóknarniðurstöður í febrúar 2019 og hafa síðan þá mælt með því að vinnustaðir skoði innleiðingu svefnstjórnunar. Rannsóknin beindist reyndar ekki að svefnstjórnuninni sem slíkri heldur því hvort stjórnendur gætu haft áhrif á svefn og gæði svefns hjá starfsfólki sínu. Rannsóknin fór þannig fram að 796 starfsmönnum var skipt niður í 56 hópa. Allir báru á sér sérstök úr sem mældi svefn og svefnstig. Í helmingi þessara hópa, ræddu stjórnendur og starfsfólk markvisst um aðgerðir til að bæta úr svefnvenjum og svefngæðum. Í þeim hópum skilaði fólk inn upplýsingum um hversu lengi það svaf á nóttu, hversu úthvílt fólki fannst það vera þegar það vaknaði og fleira. Stjórnendur þessara hópa fengu samhliða þjálfun í ýmsu til stuðnings betra jafnvægis á milli einkalífs og vinnu, til stuðnings andlegri líðan starfsmanna sinna og fleira. Niðurstöðurnar sýndu að sá helmingur sem fór í aðgerðir til að bæta svefnvenjur, náði umtalsverðum árangri í bættum svefni og svefngæðum starfsmanna sinna. Þá vakti það sérstaka athygli að hjá starfsfólki þessara hópa hélt svefn og svefngæði áfram að aukast í 18 mánuði eftir að rannsóknin fór af stað. Dæmi um aðgerðir Markvissar leiðbeiningar um innleiðingu á svefnstjórnun fyrir vinnustaði eru enn sem komið er ekki á hverju strái. Ekki nema þá helst fyrir vinnustaði sem byggja á vaktavinnu. Meðal ráða sem McKinsey hefur þó bent á eru aðgerðir sem fyrirtæki hafa farið í til að tryggja starfsfólki meiri hvíld á milli vinnustunda. Sem dæmi um aðgerðir má nefna: Sum fyrirtæki hafa bannað vinnutölvupósta á milli kl.18 á daginn og til kl.07 á morgnana Sum fyrirtæki eru með þá stefnu að langir vinnudagar eru illa séðir Fyrirtæki sem McKinsey þekkir til greiðir starfsmönnum sínum 7.500 dollara í bónus ef það hlýðir tveimur reglum: a) að fara í frí og b) að vinna ekki í fríinu sínu Lúr-herbergi, þ.e. aðstaða fyrir starfsfólk að leggja sig í nokkrar mínútur Þá bendir McKinsey á að fyrirtæki gefi starfsfólki meiri tíma til hvíldar þegar ferðast er. Þar sé æskilegt að fólk sé úthvílt áður en það fer í vinnuferðir, til dæmis í flug snemma morguns eða um nótt. Eins þurfi að gera ráð fyrir hvíldartíma áður en fundarhrina hefst eða önnur vinna í ferð. Ráðgjafar McKinsey benda fyrirtækjum einnig á að forðast það að það sé alltaf sama fólkið sem ætlast er til að hægt sé að ná í ef eitthvað kemur uppá. Æskilegra sé að þessu sé skipt á aðila.
Stjórnun Vinnustaðurinn Vinnustaðamenning Mannauðsmál Mest lesið Selja fyrsta bjórinn ekki fyrr en í ágúst Viðskipti innlent Stærsti Hiab krani í heimi á sumarsýningu Veltis Samstarf Í áfalli yfir dýrari dekkjum og Hlöllabát Neytendur 96 sagt upp í hópuppsögnum í júní Viðskipti innlent Helmingaði kostnaðinn við matarinnkaup Neytendur Tekur við fjármálunum hjá Securitas Viðskipti innlent Karen Ýr ráðin gæðastjóri Viðskipti innlent Biðin eftir vaxtalækkun gæti lengst enn frekar Viðskipti innlent Ómar fær fyrir ferðina Neytendur Betra en ekki að viðurkenna mistökin Atvinnulíf Fleiri fréttir Betra en ekki að viðurkenna mistökin Sjálfbærniskólinn: Mörg fyrirtæki að gera geggjað góða hluti án þess að átta sig á því Sjálfbærniskólinn opnar: Reglugerðin mun líka hafa áhrif á lítil og meðalstór fyrirtæki Hafa þróað kerfi til að auka á gagnsæi viðskipta með kolefniseiningar „Hef ítrekað verið ásakaður af eiginkonunni að vera morgunfúll“ Óöryggi, feimni og jafnvel einmanaleiki í nýju sumarvinnunni Hámarkstími fullorðinna í símanum og góð ráð „Krakkar sem gistu hjá okkur vissu ekki hvað var að gerast!“ Níu manns sagt upp hjá Veitum Leiðtogakulnun: Þegar yfirmaðurinn er alveg búinn á því Að sækja um starf eftir uppsögn Hefur óeðlilega þörf fyrir að strauja allt frá skyrtum í barnasamfellur Að standa upp til að gera eitthvað og muna síðan ekkert hvað það var „Orðið var við aukna umræðu um að vinnan eigi ekki að valda álagi“ Ekkert einkamál: Áhrif vinnustaða á geðheilsu jafn stór og makans „Þú varst aumingi ef þú fórst á hausinn en glæpamaður ef þú græddir“ „Katrín Olga, þetta er eingöngu hálftími af þínu lífi“ Sjá meira