Viðskipti innlent

Mikið spurt um kvikmyndatökur á Íslandi

Birgir Olgeirsson skrifar

Síminn hefur vart stoppað hjá Íslandsstofu eftir að yfirmaður Netflix tilkynnti að nánast öll framleiðsla kvikmynda hefði stöðvast nema í Suður-Kóreu og á Íslandi. Beðið er eftir leyfi frá yfirvöldum til að hleypa erlendu starfsliði til landsins.

Góður árangur Íslendinga í baráttunni við Covid hefur borist víða um heim, sér í lagi til Hollywood sem sér Ísland fyrir vikið sem ákjósanlegan stað til að taka upp kvikmyndir. Þar myndi fámennið og víðernið spila stóran þátt í að tryggja vernd gegn smitum. Netflix horfir hýru auga til Íslands vegna þess að tökur á þáttaröðinni Kötlu gátu haldið áfram hjá RVK Studios.

„Það er tækifæri að okkar mati að fá þessi „crew“ til landsins til að skjóta verkefni. Ástæðan er sú að það er hægt að stýra mjög vel hvernig er komið til landsins. Þau bara beint á hótel, fara á tökustað og að skjóta,“ segir Einar Hansen Tómasson, verkefnastjóri hjá Film in Iceland.

Einar Hansen Tómasson, verkefnastjóri Film in Iceland.Vísir/Stöð 2

Íslandsstofa sér um að kynna landið fyrir kvikmyndagerðarfólki og hefur fyrirspurnum rignt inn frá Bandaríkjunum, Evrópu og Asíu.

„Sumir þeirra aðila sem eru að koma til okkar núna með hugmyndir vilja skjóta í ár. Aðrir eru að hugsa um næsta ár,“ segir Einar en erfitt sé að svara vegna þess að yfirvöld eigi eftir að segja hvort þau séu tilbúin að hleypa erlendum framleiðendum til landsins.

Lagt hefur verið til að yfirvöld hækki endurgreiðslu á kvikmyndaverkefnum tímabundið úr 25 prósentum í 35 prósent. Þá hefur gengi íslensku krónunnar einnig veikst sem gerir landið að enn fýsilegri kosti. Margfeldniáhrif yrðu margvísleg og mikil.

„Það hefur bara sýnt sig í þessum rannsóknum sem hafa komið frá Ferðamálastofu að stór hluti ferðamanna sem kemur til landsins fékk hugmyndina eftir að hafa séð Ísland í verkefnum sem voru tekin upp hér á Íslandi, hvort sem það eru kvikmyndir eða sjónvarpsefni,“ segir Einar.


Tengdar fréttir

Netflix beinir eyrum sínum að Akureyri

Bandaríska streymisveitan Netflix sendir nú verkefni í gríð og erg til Akureyrar. Sinfóníuhljómsveitin Sinfonia Nord á Akureyri, er ein af fáum, ef ekki sú eina í heiminum, sem getur sinnt kvikmyndatónlistarverkefnum þessa dagana.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×