Uglurnar í 3. sætið

Anton Ingi Leifsson skrifar
Leikmenn Sheffield fagna.
Leikmenn Sheffield fagna. vísir/getty

Sheffield Wednesday skaust upp í þriðja sæti ensku B-deildarinnar eftir 1-0 sigur á Bristol City í eina leik dagsins í ensku B-deildinni.

Fyrsta og eina mark leiksins kom úr vítaspyrnu sex mínútum fyrir leikslok. Barry Bannan steig þá á punktinn og skoraði. Lokatölur 1-0.







Sheffield er eins og áður segir nú í þriðja sæti deildarinnar en liðið er með 39 stig. Leeds er í öðru sætinu með 47 stig en WBA á toppnum með 50.

Bristol er í áttunda sætinu með 35 stig.



Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira