Menning

Fyrsti bókmenntatextinn í borgarlandslagið

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Vilborg fékk blóm úr hendi borgarstjórans.
Vilborg fékk blóm úr hendi borgarstjórans. Fréttablaðið/Ernir
Falleg athöfn átti sér stað á nýju torgi við gömlu steinbryggjuna á horni Pósthússtrætis og Tryggvagötu í gær. Þá afhjúpaði Dagur B. Eggertsson borgarstjóri ljóðlínur eftir Vilborgu Dagbjartsdóttur skáld, letraðar í stein, að henni viðstaddri og mörgum fleirum. Línurnar eru úr ljóðinu Vetur.

Þegar slokknaði á morgunstjörnunni

varð máninn kyrr.

Sólin veifaði

skýjaslæðu

til hans

yfir fjallið

sem gleymdi að taka ofan

nátthúfuna

Dagur mælti falleg orð til Vilborgar og gat þess að hann væri afar ánægður með að fyrsti bókmenntatextinn sem greyptur væri í borgarlandslagið væri eftir hana, enda næði hún að fanga náttúru borgarinnar á einstakan hátt. Giskaði líka á að margir gamlir nemendur hennar úr Austurbæjarskóla ættu eftir að gera sér ferð á torgið. Skáldin Sunna Dís Másdóttir og Gerður Kristný lýstu upp stundina með ljóðalestri.

Á Steinbryggju geta vegfarendur sest á skáldabekk, skannað rafrænan kóða með snjallsíma og hlustað á Vilborgu sjálfa fara með ljóðið Vetur.


Tengdar fréttir

Geðheilsa er líka heilsa

Klúbburinn Geysir, sem aukið hefur lífsgæði og réttindi margra sem glíma við geðsjúkdóma, á sér 20 ára sögu. Upp á það er haldið á Hard Rock í dag með pomp og prakt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.