Lenti flugvélinni án nefhjólsins Kristín Ólafsdóttir skrifar 13. maí 2019 08:16 Flugvélin við lendingu í gær. Skjáskot/Youtube
Flugmaður mjanmarska flugfélagsins Myanmar National Airlines þótti vinna þrekvirki þegar hann lenti farþegaflugvél félagsins án nefhjólsins á flugvelli í Mandalay í gær. Enginn slasaðist við lendinguna en 82 farþegar og sjö áhafnarmeðlimir voru um borð í vélinni sem er af gerðinni Embraer-190. Nokkurrar ringulreiðar gætti meðal farþega þegar flugvélin lenti, ef marka má myndband sem deilt var á samfélagsmiðlum í gær, en þeir komust allir heilu og höldnu úr vélinni.Haft er eftir stjórnanda hjá flugráðuneyti Mjanmar að flugmaðurinn hafi ítrekað reynt að virkja lendingarbúnaðinn á fremri hluta vélarinnar, fyrst sjálfvirkt og svo handvirkt, án árangurs. Flugvélin hafi hringsólað við flugvöllinn áður en ákveðið var að lenda án framhjólanna. Atvikið er nú rannsakað en um er að ræða aðra bilunina í flugi í Mjanmar á einni viku. Fjórum dögum áður hafnaði flugvél flugfélagsins Biman Bangladesh Airlines utan flugbrautar við lendingu á Yangon-flugvellinum í miklu óveðri. Ellefu farþegar slösuðust í slysinu.
Fréttir af flugi Mjanmar Mest lesið Kári og Sveinn til liðs við Arnar Þór Innlent Starfsfólkið slegið eftir brunann Innlent Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í Fellsmúla Innlent Rafmagnsleysi á stórum hluta landsins Innlent Ljúfsár hinsta heimsókn í Blóðbankann Innlent Dæmi um að leikarar fái 1300 á tímann Innlent Fylgi Sjálfstæðisflokksins aldrei mælst minna Innlent Sló út við reglubundið viðhald Innlent Ekki sniðugt að hafa öll eggin í sömu öskjunni Innlent Vance með yfirhöndina í kurteisum kappræðum Erlent Fleiri fréttir Þrír ungir Svíar handteknir vegna sprenginganna í Kaupmannahöfn Watson skal áfram sæta gæsluvarðhaldi Bann gegn betli á teikniborði Svía Bera hefndaraðgerðir undir Bandaríkin Sprengingar við ísraelska sendiráðið í Kaupmannahöfn Tuttugu skólabörn létust í eldsvoða í rútu í Taílandi Vance með yfirhöndina í kurteisum kappræðum Engar fregnir af mannfalli í Ísrael Netanyahu heitir hefndum Bein útsending: Walz og Vance hittast í fyrsta sinn Minnst sex látnir í skotárás í Tel Avív Fjöldi skotflauga lenti í Ísrael Segja eldflaugaárás frá Íran væntanlega Enn ein reikistjarnan í „bakgarði“ sólkerfisins Hækka fjárútlát til varnarmála um þriðjung Reyna að tengja Pelicot við fleiri nauðganir og morð Síðasta kolaorkuveri Bretlands lokað Ungt fólk býr lengst heima í Króatíu en styst í Finnlandi Hundrað ára eftir tæp tvö ár á banalegunni Trump lét sér ekki segjast og endurtók lygina Árásir Ísraelsmanna í Líbanon héldu áfram í nótt Rutte tekur við af Stoltenberg Ísraelsher ræðst inn í Líbanon Saka rússneskan flugmann um „ófagmannlega“ hegðun „Fordæmalausar“ hörmungar eftir Helenu Sérsveitarmenn gera áhlaup á Líbanon í undirbúningi innrásar Fyrsti sigur hægriöfgaflokks frá seinna stríði Mun boða til kosninga um leið og hann tekur við Rangt af Netflix að halda því fram að Baby Reindeer væri „sönn saga“ Þrjátíu fórust í einni sýslu í Norður-Karólínu Sjá meira