Treystu sér ekki til að halda áfram viðræðum vegna fjárhagsstöðu WOW Samúel Karl Ólason, Sighvatur Jónsson og Vésteinn Örn Pétursson skrifa 24. mars 2019 17:35 Viðræðum félaganna er lokið. Vísir/Vilhelm
Viðræðum Icelandair og WOW air, er sneru að sameiningu eða kaupum fyrrnefnda félagsins á því seinna, er lokið. Samkvæmt frétt Kjarnans um málið funda forsvarsmenn félaganna nú með stjórnvöldum þar sem farið er yfir stöðu mála og næstu skref. Upplýsingafulltrúi ríkisstjórnarinnar kvaðst þó ekki geta veitt upplýsingar um málið þegar fréttastofa leitaði eftir því. Hér má lesa stutta tilkynningu Icelandair:„Icelandair Group hefur ákveðið að ekki muni verða af hugsanlegri aðkomu félagsins að rekstri flugfélagsins WOW air sem tilkynnt var um hinn 20. mars sl. Þar með hefur viðræðum á milli aðila verið slitið.“ Hvorki hefur náðst í Skúla Mogensen, forstjóra og eina eiganda WOW, né Svanhvíti Friðriksdóttur, upplýsingafulltrúa félagsins, vegna málsins.Viðræðurnar strönduðu á fjárhagsstöðu WOW Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segir að rekstur og fjárhagsstaða WOW air væri með þeim hætti að forsvarmenn Icelandair treystu sér ekki til að halda áfram með málið. „Eftir mikla vinnu og skoðun undanfarna daga, þá er niðurstaða okkar sú að rekstur og fjárhagsstaða WOW air er með þeim hætti að við treystum okkur ekki til þess að halda áfram með málið og ákváðum að slíta viðræðunum,“ segir Bogi.Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair.Vísir/ArnarBogi segir að þegar viðræður á milli félaganna hófust fyrst síðasta haust hafi ákveðnar forsendur verið á borðinu og skuldastaðan með ákveðnum hætti. Nú hafi komið fram upplýsingar um að skilmálar skuldabréfa og annarra skulda WOW air gætu verið breyttar frá því síðasta haust. Því hafi verið ákveðið að skoða málið aftur á síðustu vikum. Hann segir starfsmenn Icelandair telja að hægt verði að leysa þann vanda sem skapast hefur með kyrrsetningu Boeing 737 MAX flugvélanna með öðrum hætti en að notast við flugvélar sem WOW air er með á leigu. „Það er spurning hvenær MAX-in kemur í rekstur. Ef það verður frekari töf á því getum við leigt aðrar vélar tímabundið. Við erum að skoða ýmsar lausnir hvað það varðar.“Sama hvað gerist, segir Bogi framtíðina bjarta Bogi segir að stjórnvöld hafi verið upplýst um gang mála í viðræðunum. Aðspurður um hvað gerist nú segir hann: „Við þurfum að einbeita okkur að okkar rekstri og styrkja hann.“ Hann segist vonast til þess að rekstur WOW air gangi áfram. „Það er ekki gott fyrir íslenskt þjóðfélag ef stórt félag fer. WOW air er mikilvægt fyrir íslenska ferðaþjónustu en það er ekki í okkar höndum hvað gerist þar.“ Varðandi það hvort Icelandair geti fyllt upp í það tómarúm sem við brotthvarf WOW air af flugmarkaði bendir Bogi á að í sumar verði 26 flugfélög að fljúga til Íslands. Um 15 flugfélög fljúgi allan ársins hring og tíu flugfélög fljúgi til Íslands í dag. „Við getum bætt í ef á þarf að halda og við sjáum tækifæri til þess, og önnur flugfélög líka. Þannig að sama hvað gerist úr þessu, þá er framtíð íslenskrar ferðaþjónustu björt og langtímahorfurnar mjög góðar.“Hvarf WOW af flugmarkaði gæti haft víðtækar afleiðingar Nýleg skýrsla um áhrif brottfalls WOW af flugmarkaði, sem félagið lét ráðgjafafyrirtækið Reykjavík Economics vinna, leiðir líkur að því að hverfi félagið af markaði gæti það leitt til samdráttar á landsframleiðslu um allt að 2,7 prósent. Þúsundir myndu missa vinnuna og gengi krónunnar gæti veikst í kjölfarið. Síðasta fimmtudag var tilkynnt um viðræðuslit milli WOW og bandaríska fjárfestingasjóðsins Indigo Partners um mögulega fjárfestingu sjóðsins í félaginu. Á sama tíma var tilkynnt að Icelandair Group og WOW hefðu hafið viðræður sín á milli að nýju en félögin höfðu áður átt í viðræðum um mögulega aðkomu Icelandair að rekstri WOW í nóvember síðastliðnum. Fyrrverandi forstjóri Icelandair Group, Jón Karl Ólafsson, hafði áður sagt að hann hefði litla sem enga trú á því að Icelandair kæmi til með að fjárfesta í WOW þar sem Airbus vélar síðarnefnda félagsins hentuðu einfaldlega ekki rekstri Icelandair.
Boeing Fréttir af flugi Icelandair WOW Air Tengdar fréttir Öryggisbúnaðurinn verður partur af vélum Icelandair í framtíðinni Icelandair keypti ekki tiltekinn öryggisbúnað í Boeing 737 MAX vélar sínar sem nú hafa verið kyrrsettar. 22. mars 2019 16:58 Hefur ekki trú á því að Icelandair kaupi WOW air Jón Karl Ólafsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri hjá Isavia og fyrrverandi forstjóri Icelandair, hefur ekki trú á því að þær viðræður sem nú standa yfir á milli Icelandair og WOW air endi með því að Icelandair kaupi WOW air. 24. mars 2019 10:50 Segir eðlilegt af Skúla að reyna allar leiðir enda sært ljón Augljóst að staðan Icelandair og WOW er verri. 22. mars 2019 08:22 Hræddur um að Indigo hafi fyrst og fremst ætlað sér að "þefa“ af WOW air Jón Karl Ólafsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri hjá Isavia og fyrrverandi forstjóri Icelandair, er ekki viss um að Indigo Partners hafi með viðræðum við WOW air ætlað sér að kaupa flugfélagið. 24. mars 2019 12:00 737 MAX uppfærslan sögð tilbúin Boeing er sagt vera búið að leggja lokahönd á uppfærslu á hugbúnaðaruppfærslu á flugstjórnarkerfi 737 MAX flugvélanna 24. mars 2019 07:45 Stjórnvöld reyna að auðvelda samruna flugfélaganna Fjármálaráðherra segir stöðu flugmála í landinu mjög alvarlega sem geti smitað út frá sér með auknu atvinnuleysi og minni hagvexti. Stjórnvöld muni gera sitt til að auðvelda samruna flugfélaganna, til að mynda varðandi uppbyggingu í Keflavík og gjaldtöku á ferðaþjónustuna en ekki leggja til fjármuni í reksturinn. 22. mars 2019 19:30 Icelandair og Wow air ræða aftur saman í samráði við stjórnvöld WOW air tilkynnti í kvöld að bandaríska félagið Indigo Partners hefði slitið viðræðum um kaup á félaginu. 21. mars 2019 21:18 Mest lesið Byggja hótel og 1.500 fermetra baðlón í Vestmannaeyjum Viðskipti innlent „Okkur langar til að búa til nýja tegund af bjórmenningu“ Atvinnulíf Snúrunni lokað fyrir fullt og allt Viðskipti innlent Eybjörg Helga ráðin forstjóri Eirar, Skjóls og Hamra Viðskipti innlent Fjögur ráðin í stjórnendastöður hjá Íslandsbanka Viðskipti innlent Dýrara að gera ekkert: „Erum öll að pissa í sömu laugina“ Atvinnulíf „Eitthvað við kvöldin og nóttina sem ég heillast af“ Atvinnulíf Sorp: Fólk að hoppa niður plastið í tunnunum til að þjappa því Atvinnulíf Úrelt kerfi: „Síðan kom bara einhver bíll og tæmdi allt“ Atvinnulíf Samkeppni eykst í Grænlandsflugi Viðskipti erlent Fleiri fréttir Byggja hótel og 1.500 fermetra baðlón í Vestmannaeyjum Eybjörg Helga ráðin forstjóri Eirar, Skjóls og Hamra Akademias tekur yfir rekstur Avia Fjögur ráðin í stjórnendastöður hjá Íslandsbanka Lyfjastofnun Evrópu tekur umsókn Alvotech til umsagnar Spá auknu atvinnuleysi og hagvexti Snúrunni lokað fyrir fullt og allt Misboðið hvernig staðið var að uppsögnum hjá nýjum eiganda Engin tilkynning um hópuppsögn í október Horyn nýr forstjóri kísilverksmiðjunnar á Bakka Breytt skipurit og nýir stjórnendur hjá Sýn Viðræðum slitið um samruna Samkaupa, Heimkaupa og Orkunnar Hagnaður Arion banka eykst um tæpa tvo milljarða Auknar líkur á annarri vaxtalækkun Bein útsending: Haustfundur Landsvirkjunar Ráðnir forstöðumenn hjá OK Reikna með tæplega þrjátíu milljarða minni fjárfestingu í Carbfix Verðbólga hjaðnar en kílómetragjaldið verður tekið inn í mælingu Ragnar, Pálmar og Haraldur til Verna Skellt í lás í Sambíóinu í Keflavík í kvöld Samkeppniseftirlitið í sáttaviðræðum við Festi Hlutdeildarlán dugðu fyrir 61 íbúð 97 brautskráðust frá HR Fundurinn virðist ekki hafa aukið trú fjárfesta Furðulegt að gjaldtaka taki ekki mið af styrkleika Fjögur erlend fyrirtæki keppa um rekstur Fríhafnarinnar Hagnaður dróst saman um þriðjung og skoða hlutafjáraukningu Bein útsending: Kynna afkomuna og fara nánar yfir breytingarnar Breki áfram formaður Bjarmi sest í stjórnina og Trausti tekur við Sjá meira
Öryggisbúnaðurinn verður partur af vélum Icelandair í framtíðinni Icelandair keypti ekki tiltekinn öryggisbúnað í Boeing 737 MAX vélar sínar sem nú hafa verið kyrrsettar. 22. mars 2019 16:58
Hefur ekki trú á því að Icelandair kaupi WOW air Jón Karl Ólafsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri hjá Isavia og fyrrverandi forstjóri Icelandair, hefur ekki trú á því að þær viðræður sem nú standa yfir á milli Icelandair og WOW air endi með því að Icelandair kaupi WOW air. 24. mars 2019 10:50
Segir eðlilegt af Skúla að reyna allar leiðir enda sært ljón Augljóst að staðan Icelandair og WOW er verri. 22. mars 2019 08:22
Hræddur um að Indigo hafi fyrst og fremst ætlað sér að "þefa“ af WOW air Jón Karl Ólafsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri hjá Isavia og fyrrverandi forstjóri Icelandair, er ekki viss um að Indigo Partners hafi með viðræðum við WOW air ætlað sér að kaupa flugfélagið. 24. mars 2019 12:00
737 MAX uppfærslan sögð tilbúin Boeing er sagt vera búið að leggja lokahönd á uppfærslu á hugbúnaðaruppfærslu á flugstjórnarkerfi 737 MAX flugvélanna 24. mars 2019 07:45
Stjórnvöld reyna að auðvelda samruna flugfélaganna Fjármálaráðherra segir stöðu flugmála í landinu mjög alvarlega sem geti smitað út frá sér með auknu atvinnuleysi og minni hagvexti. Stjórnvöld muni gera sitt til að auðvelda samruna flugfélaganna, til að mynda varðandi uppbyggingu í Keflavík og gjaldtöku á ferðaþjónustuna en ekki leggja til fjármuni í reksturinn. 22. mars 2019 19:30
Icelandair og Wow air ræða aftur saman í samráði við stjórnvöld WOW air tilkynnti í kvöld að bandaríska félagið Indigo Partners hefði slitið viðræðum um kaup á félaginu. 21. mars 2019 21:18