Sjáðu Martin og félaga fagna í miðjum hópi stuðningsmanna Alba Berlín Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. mars 2019 13:00 Það var mikið fjör eftir leik ekki síst þegar leikmenn Alba Berlín mættu upp í stúku. Mynd/Twitter/@albaberlin
Martin Hermannsson og liðsfélagi hans í Alba Berlín spiluðu betur upp liðsfélaganna en nokkur annar. Martin og félagar í þýska körfuboltaliðinu Alba Berlín komust í gær áfram í undanúrslit EuroCup með því að slá út spænska liðið Unicaja frá Malaga. Martin var með 10 stig í leiknum og skoraði 11,3 stig að meðaltali í einvíginu á móti Unicaja. Hér fyrir neðan má sjá Martin og aðra leikmenn Alba Berlín fagna sigrinum með stuðningsmönnum sínum í gærkvöldi.Party im ALBA-Fanblock nach dem Halbfinal-Einzug im @EuroCup. #roadtogreatnesspic.twitter.com/4F9lwmdqcy — ALBA BERLIN (@albaberlin) March 13, 2019Martin var efstur í stoðsendingum í úrslitakeppni EuroCup fyrir leikinn í gær eftir 19 stoðsendingar í tveimur fyrstu leikjunum en endaði með 21 stoðsendingu í þremur leikjum eða 7,0 að meðaltali í leik. Martin er annar helmingurinn af öflugu stoðsendingatvíeyki í liði Alba Berlín því hann og liðfélagi hans Peyton Siva voru þeir sem gáfu flestar stoðsendingar af öllum leikmönnunum í átta liða úrslitunum. Peyton Siva komst upp fyrir okkar mann með því að gefa tíu stoðsendingar á félaga sína í leiknum í gær en Martin var bara með tvær stoðsendingar að þessu sinni. Peyton Siva var því samtals með 24 stoðsendingar í leikjunum þremur í átta liða úrslitunum eða átta að meðaltali í leik. Næsti mótherji Alba Berlín er spænska liðið MoraBanc Andorra og fara leikirnir fram frá 19. mars til 27. mars.Martin Hermannsson í leik með Alba Berlin.Getty/ Alexander Pohl
Körfubolti Mest lesið „Viðbjóðsleg“ frammistaða sem lætur stjóra missa starfið Enski boltinn „Væri gaman að spila við þá í hverri einustu viku” Íslenski boltinn Fær Njarðvík frekar stimpilinn? Íslenski boltinn Stillti upp fartölvu til að mótmæla Fótbolti Tap hjá Sverri í Aþenuslagnum Fótbolti Ólæti vörpuðu skugga á dramatískan borgarslag Fótbolti Uppgjörið: Valur - Víkingur 2-3 | Draumamark Tariks kom Víkingi á toppinn Íslenski boltinn Guðmundur og Arnór fögnuðu góðum sigri Handbolti „Gleymist að við tókum líka Kjarnafæðisbikarinn og getum unnið þrefalt“ Sport Uppgjörið: KR - Fram 7-1 | Benóný Breki og KR með sýningu Íslenski boltinn Fleiri fréttir Tryggvi með tíu í fyrsta leik Valsmenn neituðu að veita viðtöl „Mátti þetta ekki í Þýskalandi“ Martin magnaður í fyrsta sigrinum „Einhver náttúrulegasta þrenna sem ég hef séð“ Uppgjörið: Valur - Keflavík 88-98 | Öruggt hjá Keflavík og Finnur rekinn úr húsi Uppgjörið: Keflavík - Þór Ak. 82-86 | Þór skellti meisturunum Knicks og Timberwolves opna leikmannamarkaðinn með látum Ísold eltir annan draum: „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka í lífinu“ Tryggvi Snær í riðlakeppni Evrópubikarsins Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Meisturunum spáð sigri í Bónus deildunum Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Álftanes lét Frakkann fara og samdi við Okeke Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Sjá meira