Formúla 1

Fjöl­skylda Michael Schumacher: Gerum allt sem við getum til að hjálpa honum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Michael Schumacher.
Michael Schumacher. Vísir/Getty

Formúlukappinn Michael Schumacher verður fimmtugur á morgun 3. janúar 2019 en síðustu fimm ár hafa verið honum erfið.



Fjölmiðlar hafa verið að forvitnast um Michael Schumacher í tilefni af þessum stóru tímamótum í hans lífi.



Fjölskylda hans segist ætla að halda upp á fimmtugsafmæli Schumacher á morgun með því að fagna afrekum hans og sigrum frá mjög merkilegum ferli hans í formúlu eitt. Það hefur aftur á móti ekkert sést til Michael Schumacher í fimm ár og ekki af ástæðulausu.



Michael Schumacher slasaðist illa á höfði í slysi í skíðabrekki í frönsku ölpunum í lok desember árið 2013 og hefur ekki sést opinberlega síðan.



Michael Schumacher hefur haldið sig á heimili sínu í Sviss en lítið er vitað um endurhæfingu hans eða raunverulega stöðu á honum.



„Þú getur verið viss um það að hann er í góðum höndum. Við gerum allt sem við getum til að hjálpa honum,“ sagði eiginkona hans í fréttatilkynningu og bætti við:



„Vinsamlegast berið virðingu fyrir því að við erum að fylgja óskum Michael með því að halda viðkvæmum upplýsingum, eins og um heilsu hans, meðal okkar og biðjum ykkur um að virða friðhelgi einkalífsins.“



Ross Brawn, framkvæmdastjóri formúlu eitt, var á sínum tíma yfirmaður Schumacher hjá Ferrari. „Ég er stöðugt í sambandi við Corinnu [eiginkonu Schumacher] og ég er fullkomlega sammála þeirra ákvörðun,“ sagði Brawn.



Michael Schumacher er af mörgum talinn vera besti ökumaður allra tíma í formúlu eitt. Hann varð sjö sinnum heimsmeistari á árunum 1994 til 2004 og vann alls 91 keppni á ferlinum. Michael Schumacher varð heimsmeistari fimm ár í röð frá 2000 til 2004.



Síðasta formúlu eitt keppni Schumacher var í Brasilíu árið 2012 þegar hann var 43 ára. Hann hafði hætt keppni árið 2006 en snéri aftur þremur árum síðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×