Dæmdur til að horfa ítrekað á Disney-kvikmynd eftir að upp komst um veiðiþjófnað Vésteinn Örn Pétursson skrifar 17. desember 2018 20:30 Berry (t.v.) var dæmdur til þess að horfa oft á kvikmyndina Bamba. Myndin fjallar um dádýr, ekki ósvipað dýrinu til hægri. LCPD/Getty
Bandarískur maður hefur verið dæmdur til þess að horfa ítrekað á Disney-teiknimyndina Bamba, eftir að hann var sakfelldur fyrir stórfelldan veiðiþjófnað í Missouri-ríki í Bandaríkjunum. Veiðiþjófurinn, sem heitir David Berry Jr., var handtekinn í ágúst, ásamt föður sínum og bróður, fyrir að skjóta fjölda dádýra, skera af þeim höfuðin og skilja líkamsleifar þeirra eftir í skóginum þar sem þau rotnuðu. Málið er eitt stærsta veiðiþjófnaðarmál sem komið hefur upp í Missouri en samkvæmt embættismanni í ríkinu er fjöldi þeirra dádýra sem Berry drap ekki ljós en gæti verið allt að „nokkur hundruð.“ Dómarinn Robert George dæmdi Berry í eins árs fangelsi. Í dómsuppkvaðningunni kom fram að veiðiþjófurinn skyldi „horfa á Walt Disney-myndina Bamba, og fyrsta áhorf skyldi fara fram á eða fyrir 23. desember og einu sinni í mánuði eftir það.“ Kvikmyndin er löngu orðin sígild í hugum teiknimyndaaðdáenda en hún kom út árið 1942 og segir frá ungu dádýri, nefnilega Bamba, hvers móðir fellur fyrir hendi veiðimanns.
Bandaríkin Disney Dýr Mest lesið Kourani sjái ekki eftir neinu og eigi skilið sex til átta ár í fangelsi Innlent Ein leið í og úr hverfinu dragi úr öryggi íbúa Innlent Hryðjuverkamaðurinn í Ósló fær þyngsta dóm sögunnar Erlent Hlaut of þunga refsingu fyrir mistök Innlent Yfir 190 gestir Fabrikkunnar með nóróveiru síðasta sumar Innlent Býður þingmönnum að „fá hrollkaldan veruleikan í andlitið“ Innlent Gremja vegna golfbíla á meistaramóti Innlent „Ef þessi maður kemst út úr fangelsi mun hann drepa barnið mitt“ Innlent Engin gögn bendi til tengsla við Hamas Innlent Sjúklingur réðst á lækni sem fær ekki bætur frá ríkinu Innlent Fleiri fréttir Baktalaði Biden í golfi: „Gamla niðurbrotna skítahrúga“ Kristrún og félagar sækja atkvæði fyrir Verkamannaflokkinn Enn má pissa í sjóinn á Costa del Sol Uppsagnir á Skaganum og Bretar kjósa nýja valdhafa Hryðjuverkamaðurinn í Ósló fær þyngsta dóm sögunnar Bretar ganga að kjörborðinu Neil Gaiman sakaður um kynferðisofbeldi Trump eykur forskotið og Biden ekki á förum Þvertaka fyrir að Biden sé efins um framboð Ákærður fyrir árásina á Mette Frederiksen Ákærðir fyrir að hafa fellt tré með banvænum afleiðingum Maður á þrítugsaldri stunginn til bana í Kaupmannahöfn Gert að eyða gjafasæði vegna mistaka við merkingu Beryl við það að skella á Jamaíku Sá fyrsti sem kallar eftir því að Biden stígi til hliðar Friðhelgin stórauki vald forsetans Ákvörðun um refsingu Trump frestað 87 talin af vegna troðnings Einn látinn og þúsundir án vatns og rafmagns Enn slasast tugir í ókyrrð Orbán hyggst óvænt heimsækja Úkraínu Í höndum Macron að koma í veg fyrir stórsigur Le Pen Hæstiréttur segir Trump njóta friðhelgi að hluta Einn helsti rithöfundur Albaníu er allur Strangrúaðir mótmæltu herskyldu Varað við fellibylnum Beryl sem er á leið yfir Karíbahafið Kínversk geimflaug hrapaði til jarðar Flestir á því að Biden valdi ekki starfinu Sögulegur dagur fyrir frönsku þjóðina að baki „Ástæða til að hafa áhyggjur“ Sjá meira