Þýskaland gæti endað í sama styrkleikaflokki og Ísland í undankeppni EM 2020 Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. nóvember 2018 15:00 Þýska stórstjarnan Toni Kroos. Vísir/Getty
Í kvöld kemur endanlega í ljós hver verður tíunda þjóðin í öðrum styrkleikaflokki fyrir undankeppni EM 2020 en dregið verður í byrjun næst mánaðar. Þýskaland og Pólland „keppa“ um síðasta sætið í fyrsta styrkleikaflokki en það lið sem tapar þeirri baráttu dettur niður í annan styrkleikaflokk. Það er þegar ljóst að átta aðrar þjóðir verða með Ísland í öðrum styrkleikaflokki og þar með geta þær þjóðir aldrei lent með íslenska landsliðinu í riðli í undankeppninni. Þær þjóðir eru Austurríki, Bosnía, Tékkland, Danmörk, Rússland, Svíþjóð, Úkraína og Wales. Það yrði vissulega sögulegt ef að Þýskaland yrði ekki í efsta styrkleikaflokki en hvað þarf þá að gerast. Þýskaland hefur lokið sínum leikjum og endaði í neðsta sæti í sínum í A-deildinni með tvö stig. Pólverjar eru með eitt stig í neðsta sæti í sínum riðli en eiga einn leik eftir. Pólverjar heimsækja Portúgala í Guimaraes í kvöld en nægir jafntefli til að komast upp fyrir Þýskaland og tryggja sér sæti í fyrsta styrkleikaflokki í undankeppni EM 2020. Þjóðirnar sem eru öruggar í fyrsta styrkleikaflokk eru England, Holland, Portúgal, Sviss, Belgía, Króatía, Frakkland, Ítalía og Spánn. Drátturinn í undankeppni EM 2020 fer síðan fram í Dublin á Írlandi 2. desember næstkomandi.
EM 2020 í fótbolta Mest lesið Óvænt úrslit á HM í pílu í kvöld Sport Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark Fótbolti Charlie Woods fór holu í höggi í fyrsta sinn Golf Salah sló þrjú met í dag Fótbolti Wagner með slitið krossband og úr leik út tímabilið Körfubolti „Við vorum taugaóstyrkir“ Fótbolti Martröð hjá Manchester United í leikhúsi draumanna Enski boltinn Cullen stormaði út af blaðamannafundi Sport Útsalah á mörkum í Lundúnum Enski boltinn Dagskráin í dag: Það er pílan Sport Fleiri fréttir Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark „Við vorum taugaóstyrkir“ Salah sló þrjú met í dag Semur við félagið sem bæði mamma og pabbi spiluðu fyrir Everton hjálpaði sér og nágrönnunum í Liverpool Útsalah á mörkum í Lundúnum Martröð hjá Manchester United í leikhúsi draumanna Drottning Lengjudeildarinnar ætlar að vera með Fram í Bestu Öruggt hjá Real Madrid gegn Sevilla Liverpool liðið ferðast mest yfir jólin Fjórar knattspyrnukonur handteknar Jackson komst upp fyrir Eið Smára Heiður að vera keypt á metfé frá Val: „Stórt og gott skref“ Sara Björk á skotskónum í Sádi-Arabíu Skallaði þjálfara andstæðinganna eftir leik Endar Rashford í Sádí-Arabíu? Saka yfirgaf Selhurst Park á hækjum Bellingham tryggði Sunderland sigurinn Atletico rændi sigrinum í blálokin Juric tekinn við Southampton Arsenal valtaði yfir Crystal Palace Isak með þrennu í stórsigri Newcastle Haaland: Ég hef ekki verið nógu góður Gumma komin heim eftir átta ára fjarveru Guardiola: Við erum í vandræðum með að skora Lengi getur vont versnað hjá Man. City Hólmbert og félagar náðu ekki að vinna fallslaginn Nú verður hægt að vinna Beckenbauer bikarinn Messi með eigin treyjur upp um alla veggi á heimilinu Logi Ólafs kveður eftir áratugastarf í MH Sjá meira